Fréttir

true

Hætta rækjuvinnslu í Grundarfirði og segja upp starfsfólki

FISK Seafood ehf. í Grundarfirði hefur ákveðið að segja upp 19 starfsmönnum við rækjuvinnslu frá og með næstu mánaðamótum. Tveimur að auki er boðin vinna áfram við að taka niður tæki og undirbúa sölu þeirra. Var starfsmönnum kynnt þessi ákvörðun á fundi í gær. Í tilkynningu frá FISK Seafood segir að veiðar og vinnsla rækju…Lesa meira

true

Eigendur hvolps og hrossa sviptir forræði yfir dýrum sínum

Matvælastofnun hefur nýverið tekið dýr úr vörslum umráðamanna þar sem aðbúnaður stóðst ekki þær kröfur sem gerðar eru skv. lögum um velferð dýra. Í öðru málinu var um að ræða tvær hryssur, önnur með folaldi og hin fylfull, sem haldnar voru í gerði án aðgangs að beit og tryggri brynningu. Kröfum um úrbætur hafði ekki…Lesa meira

true

Skipum að fjölga á makrílveiðum

Stóru skipin eru að fá ágætan makrílafla sunnan við landið. Nú er verið að landa 750 tonnum úr Venus NS á Vopnafirði og fékks aflinn út af Reynisdýpi. Að sögn Kristjáns Þorvarðarsonar skipstjóra er meðalvigtin á makrílnum um 440 grömm, vel haldinn fiskur og átulítill. Haft er eftir Kristjáni að skipum sé nú að fjölga…Lesa meira

true

Íslandsmet slegið á Skallagrímsvelli

Thelma Lind Kristjánsdóttir úr Íþróttafélagi Reykjavíkur sló 36 ára gamalt Íslandsmet í kringlukasti kvenna þegar Kastmót UMSB fór fram við topp aðstæður á Skallagrímsvelli síðastliðinn fimmtudag. Á mótinu var keppt í spjótkasti, kúluvarpi og kringlukasti og lék veðrið við keppendur. Mesta athygli vakti að í kringlukastinu voru skráðir til leiks tveir af fremstu kösturum landsins;…Lesa meira

true

Unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina

Um Verstlunarmannahelgina verður 21. Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Þorlákshöfn. Mótshaldarar eru Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) og sveitarfélagið Ölfus auk Ungmennafélags Íslands (UMFÍ). Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ, segir meiri fjölbreytni á mótinu nú en nokkru sinni áður. Það veiti öllum þátttakendum tækifæri til að prófa spennandi greinar en meðal annars verður keppt í knattspyrnu, körfubolta…Lesa meira

true

Í fyrsta skipti fleiri en fimmtíu Íslendingar yfir tírætt

Jónas Ragnarsson ritstjóri upplýsingavefjarins Langlífis skrifar á vefinn að undanfarna áratugi hafi þeim farið fjölgandi sem ná hundrað ára aldri. Í júnímánuði var sett met þegar fjöldi hundrað ára og eldri á lífi fór í fyrsta sinn yfir fimmtíu. Nú eru þeir 52, 15 karlar og 37 konur. Áratugur er síðan fjöldinn komst fyrst upp…Lesa meira

true

Reykholtshátíð verður haldin um aðra helgi

Nú líður að Reykholtshátíð sem haldin er síðustu helgina í júlí ár hvert, sem nú ber upp á 27. til 29. júlí. Er þetta í 22. skipti sem hátíðin er haldin og að vanda er dagskráin afar fjölbreytt og skemmtilegt. „Í ár munu eingöngu koma fram íslenskir listamenn en bæði erlendir og íslenskir listamenn hafa…Lesa meira

true

Listamannabústaður opnaður í Gilsfirði

Undanfarna mánuði hefur mikil vinna verið lögð í að gera upp að innan bæinn á Gilsfjarðarbrekku í Reykhólahreppi. Feðgin frá Gróustöðum þau Guðlaug Guðmunda Ingibjörg og faðir hennar Bergsveinn Grétar Reynisson ásamt breska ljósmyndaranum Martin Cox, vinna nú hörðum höndum að því að gera Gilsfjarðarbrekku að svokölluðu „art residency“ sem mætti þýða yfir á íslensku…Lesa meira

true

Góðgerðargolfmót Ólafíu Þórunnar fyrir Umhyggju

Í gær fór fram góðgerðargolfmót Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur og KPMG til styrktar Umhyggju – félagi langveikra barna. Mótið var haldið á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbi Keilis. Mótið gekk mjög vel og var góð stemning meðal þátttakenda. Fjölmörg fyrirtæki lögðu hönd á plóginn og sendu 52 kylfinga til þátttöku sem skiptust á að leika með LPGA kylfingum…Lesa meira

true

Vinabæjaheimsókn sem endaði með að hún fann ástina í Finnlandi

Á tveggja ára fresti sjá Norræna félagið á Akranesi og vinabæir þess, Bamble í Noregi, Tönder í Danmörku, Västervik í Svíþjóð og Närpes í Finnlandi um að velja fjögur ungmenni úr hverjum bæ til að taka þátt í svokölluðu vinabæjamóti. Með móti þessu er markmiðið að efla norrænt samstarf á öllum sviðum samfélagsins. Skagakonan Klara…Lesa meira