Fréttir

true

Maður úr lífhættu eftir hnífsstunguárás á Akranesi

Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi barst Lögreglunni á Vesturlandi beiðni frá Sjúkrahúsinu á Akranesi vegna manns sem þangað hafði komið og lét ófriðlega. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var maðurinn á bak og burt. Á meðan lögreglumenn voru enn á vettvangi barst svo önnur tilkynning frá manni sem búsettur er nærri sjúkrahúsinu. Bað sá um…Lesa meira

true

Vítaspyrna í uppbótartíma tryggði sigur Víkings

Víkingur Ó. vann dramatískan sigur á Reykvíkingunum í ÍR þegar liðin mættust í gær í 12. umferð Inkassodeildarinnar. Þetta var síðasti leikur umferðarinnar en ástæðan að hann var spilaður svona seint er sú að Víkingur var að keppa í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í liðinni viku þar sem liðið tryggði sér þátttöku í undanúrslitum. Snæfellingar…Lesa meira

true

Í lífshættu eftir hnífsstungu

Karlmaður var hætt kominn eftir að annar karlmaður stakk hann með hnífi í heimahúsi á Akranesi í nótt. Fréttavefurinn Vísir.is og Bylgjan greindu fyrst frá. Samkvæmt frétt Vísis missti sá fyrrnefndi mikið blóð. Í stað þess að flytja hann á sjúkrahúsið á Akranesi var hann fluttur með forgangi á slysadeild Landspítalans þar sem hann gekkst…Lesa meira

true

Akrafjallsvegur lokaður vegna malbikunarframkvæmda

Í dag og á morgun, 23. og 24. júlí, er stefnt að því að malbika 3,7 km langan kafla á Akrafjallsvegi. Veginum verður lokað í báðar áttir og allri umferð beint norðan við Akrafjall og í gegnum Akranes. Áætlað er að vinnan standi yfir allan sólarhringinn frá klukkan 09:00 í dag og til kl. 20:00…Lesa meira

true

Kvennalið Snæfells semur við Heiðu Hlín

Akureyringurinn Heiða Hlín Björnsdóttir hefur samið við Snæfell um að spila með liðinu í Dominos deildinni á komandi tímabili. Heiða var burðarás þegar hún spilaði með Þór Akureyri í fyrstu deildinni á síðasta tímabili þar sem hún skoraði 17 stig, tók 7,1 fráköst og gaf 1,8 stoðsendingu að meðaltali í leik. „Við bjóðum hana hjartanlega…Lesa meira

true

Við garðaúðun á að huga að velferð býflugna

„Matvælastofnun hefur borist ábending frá Býflugnaræktendafélagi Íslands. Stjórn félagsins hefur lýst yfir áhyggjum sínum af réttarstöðu býflugnabænda og velferð býflugna í tengslum við notkun eiturefna við eyðingu á skordýrum,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Notkun eiturefna við garðaúðun, eftirlit með slíkri starfsemi og útgáfa starfsleyfa á því sviði heyrir ekki undir Matvælastofnun. Öðru máli gegnir…Lesa meira

true

Sturluhátíð verður næstkomandi sunnudag

Sturla Þórðarson sagnaritarinn mikli var fæddur 29. júlí 1214. Þennan dag, sunnudaginn 29. júlí næstkomandi, verður haldin Sturluhátíð í Tjarnarlundi í Saurbæ. Samkoman hefst klukkan 14. „Að þessu sinni er atburðurinn tengdur fullveldinu. Það er vegna þess að fornritin íslensku voru í senn menningararfur og undirstaða sjálfstæðisbaráttunnar, baráttunnar fyrir fullveldi þjóðarinnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur…Lesa meira

true

Skagasigur á heimavelli

Skagastelpur unnu baráttusigur á Haukum úr Hafnarfirði í fyrsta leik seinni umferðar Inkassodeildar er liðin mættust á Akranesvelli á föstudaginn var. ÍA ásamt Haukum eru í harðri baráttu í efri hluta deildarinnar og hvert stig dýrmætt nú þegar líður á tímabilið. Þannig einkenndust upphafs mínútur af mikilli barátta og leikgleði meðal leikmanna beggja liða sem…Lesa meira

true

Hvalurinn reyndist blendingur

Laugardaginn 7. júlí var hvalur dreginn á land í Hvalstöðinni í Hvalfirði sem bar einkenni bæði langreyðar og steypireyðar. Birtar voru myndir af hvalnum og skapaðist mikil umræða í erlendum fjölmiðlum um málið þar sem því var staðfastlega haldið fram að hvalurinn væri steypireyður sem hefur verið friðaður undanfarin 60 ár. Hafrannsóknastofnun ákvað í ljósi…Lesa meira

true

Markalaust jafntefli hjá karlaliði ÍA

Karlalið meistaraflokks ÍA í fótbolta gerði markalaust jafntefli í fyrsta leik seinni umferðar Inkassodeildar er liðið spilaði við Leikni í Breiðholtinu í gær. Bæði lið fóru stigalaus frá síðustu umferð og því ljóst að mikill baráttuleikur væri framundan. Hvert stig er Skagamönnum mikilvægt í toppbaráttunni og því kom ekki á óvart að þeir gulu byrjuðu…Lesa meira