Fréttir

true

Opnunarhátíð B59 Hotel á morgun

Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni verður B59 Hotel í Borgarnesi formlega opnpað næstkomandi laugardag, 16. júní. Á morgun, föstudaginn 15. júní, verður hins vegar blásið til sérstakrar opnunarhátíðar. Íbúum í Borgarnesi, Akranesi og nærsveitum er boðið í heimsókn og að kynna sér nýja hótelið. Opna húsið hefst kl. 14:00 og stendur til…Lesa meira

true

Sementsverksmiðjan er sextug í dag

Í dag, fimmtudaginn 14. júní, eru sextíu ár liðin frá því Sementsverksmiðjan á Akranesi var vígð. Hinn 14. júní 1958 bar upp á laugardag og var vígsludagurinn mikill hátíðisdagur á Akranesi. Bygging verksmiðjunnar hafði þá staðið yfir um tveggja ára skeið. Á baksíðu Morgunblaðsins birtist eftirfarandi klausa í tilefni dagsins, rituð af Oddi Sveinssyni, fréttaritara…Lesa meira

true

Nýr veitingastaður opnaður á Reykhólum

Veitingastaðurinn 380 Restaurant verður opnaður á Reykhólum klukkan 16 í dag og verður opinn til klukkan 21. Staðurinn er rekinn af hjónunum Reyni Þór Róbertssyni og Ásu Fossdal en þau reka Hólabúð á Reykhólum. „Til að byrja með verðum við með sæti fyrir 24 en salurinn getur tekið 50 manns. Um helgina munum við bjóða…Lesa meira

true

Mikil HM stemning á Rakarastofu Gísla

Á Rakarastofu Gísla á Akranesi ríkir mikil stemning yfir Heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu sem hefst í dag, 14. júní. Búið er að skreyta stofuna vandlega í íslensku fánalitunum. „Við erum í miklum fíling fyrir mótinu og ætlum að sjálfsögðu að fylgjast vel með,“ segir Gísli Guðmundsson rakari. Gísli er einnig mikill stuðningsmaður ÍA og hefur…Lesa meira

true

Kristen áfram með Snæfelli

Snæfellingar hafa framlengt samning sinn við Bandaríkjakonuna Kristen Denise McCarthy fyrir næsta tímabil í Domino´s deildinni. Hún spilaði lykilhlutverk í liðinu síðasta vetur, skoraði 29 stig, reif niður 13 fráköst og gaf fjórar stoðsendingar að meðaltali í leik. Kristen spilaði fyrst með Snæfelli tímabilið 2014-2015 þar sem hún varð Íslandsmeistari með liðinu og var jafnframt…Lesa meira

true

„Það þurfa allir þak yfir höfuðið“

Mikil hreyfing hefur verið á fasteignamarkaði undanfarna mánuði og að sögn Soffíu Sóleyjar Magnúsdóttur fasteignasala virðist ekkert lát á því í fyrirsjáanlegri framtíð. „Það hefur verið mjög mikið að gera, eignir eru að fara mjög hratt og það vantar alltaf fleiri á skrá,“ segir hún. Soffía hafði aldrei unnið við fasteignasölu þegar hún stofnaði Fasteignamiðlun…Lesa meira

true

Sigruðu fyrsta leikinn á nýja gervigrasinu

Víkingur Ó. vann öruggan sigur á Leikni R., 3-0, þegar liðin mættust í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn var sá fyrsti á nýja gervigrasinu á Ólafsvíkurvelli og fyrsti heimaleikur Víkings í sumar. Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og voru sterkari framan af fyrri hálfleik. Smám saman komust gestirnir þó inn í leikinn…Lesa meira

true

Markalaust í toppslagnum

ÍA og HK skildu jöfn í toppslag 1. deildar karla í knattspyrnu í gær. Þrátt fyrir fjörugan leik með fullt af góðum færum tókst hvorugu liðinu að koma boltanum yfir línuna og staðan því markalaus í leikslok. Jafnræði var með liðunum framan af leik og bæði liðin náðu að skapa sér ágætis færi. Heimamenn í…Lesa meira

true

Myndlistarsýning tileinkuð hænunni Belindu verður opnuð í Akranesvita

Hjónin Anna G. Torfadóttir og Gunnar J. Straumland stefna á að halda saman listasýningu í Akranesvita í júlí. Sýningin verður opnuð föstudaginn 6. júlí og stendur yfir út júlímánuð. Er þetta fyrsta listasýningin sem þau halda saman í 12 ár en áður hafa þau haldið sýningar hvort í sínu lagi. Þau eru bæði myndlistarmenn og…Lesa meira

true

Gáfu Sólvöllum þríhjól á sumarhátíðinni

Foreldrafélag Leikskólans Sólvalla í Grundarfirði stóð fyrir skemmtilegri sumarhátíð á leikskólanum miðvikudaginn 6. júní síðastliðinn. Foreldrafélagið afhenti leikskólanum tvö þríhjól að gjöf í tilefni dagsins. Þá var blásinn upp risastór hoppukastali og grillaðar pylsur fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra. Veðrið var með eindæmum gott þennan dag og heppnaðist sumarhátíðin afskaplega vel og gleðin skein úr…Lesa meira