Fréttir

true

Kynntu breytingar á skipulagi Sementsreits

Gert ráð fyrir heimild til að rífa strompinn Að kvöldi þriðjudagsins 5. júní var haldinn kynningarfundur um breytt deiliskipulag Sementsreitsins á Akranesi. Breytingin á skipulaginu felur í sér að heimilt verði að rífa Sementsstrompinn. Endanleg ákvörðun þess efnis verður tekin í bæjarstjórn að loknu formlegu skipulagsferli. Byrjað var á að rifja upp niðurstöður ráðgefandi skoðanakönnunar…Lesa meira

true

Opnar ljósmyndasýningu í Skorradal í dag

Í dag, laugardaginn 16. júní, verður ljósmyndasýning opnuð á Stálpastöðum í Skorradal. Það er Hvanneyringurinn og áhugaljósmyndarinn Sigurjón Einarsson sem mun sýna stækkaðar ljósmyndir á Stálpastöðu. Sýning hans nefnist Fuglar í Skorradal. ,,Ég vona nú bara að veðrið verði okkur hliðhollt,“ segir Sigurjón brattur um sýninguna þar sem hún verður undir berum himni. Að auki kostar…Lesa meira

true

Kajak sendir frá sér HM lag

Skagapiltarnir í hljómsveitinni Kajak hafa sent frá sér nýtt íslenskt stuðningslag fyrir HM í knattspyrnu. „Fyrir rúmri viku síðan vorum við að vinna í litlum lagstúf sem fór síðan alltaf meir og meir að hljóma eins og fótboltasöngur þannig við slóum til og ákváðum að semja HM lag til stuðnings íslenska landsliðinu,“ segja piltarnir í…Lesa meira

true

HM stemning á Teigaseli

Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu hófst í Rússlandi í gær. Mótsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu, enda leikur Ísland þar í fyrsta skipti á morgun, laugardaginn 16. júní. Má segja að sannkallað HM æði hafi gripið um sig hjá landi og þjóð. Fánalitirnir sjást víða, vinnustaðir hafa verið skreyttir og fólk gerir sér dagamun af…Lesa meira

true

Kári fékk skell

Kári tapaði stórt þegar liðið heimsótti Aftureldingu í 2. deild karla í knattspyrnu í gær. Káramenn náðu sér engan veginn á strik í leiknum og máttu að endingu sætta sig við 5-1 tap. Leikurinn fór prýðileg af stað og Ragnar Már Lárusson kom Kára yfir á 20. mínútu. Tryggvi Magnússon jafnaði hins vegar fyrir Aftureldingu…Lesa meira

true

Segir að aðeins hafi seljendaláni verið mótmælt

Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni var sveitarstjórn Dalabyggðar afhentur undirskriftalisti fyrir fund sinn 24. maí síðastliðinn. Alls höfðu 213 íbúar sveitarfélagsins skrifað undir eftirfarandi: „Í samræmi við 64. gr. samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar óskum við undirrituð eftir því að almenn atkvæðagreiðsla fari fram um mál nr. 1609021 – sala eigna…Lesa meira

true

Ný bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar ætlar að fækka nefndum

Á mánudag fór fram fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar í Stykkishólmi. Nokkur mál voru þar á dagsskrá. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir oddviti H-listans var kosin forseti bæjarstjórnar og samþykkt að Jakob Björgvin Jakobsson yrði nýr bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar. Hann er fæddur og uppalinn Hólmari sem flutti til Reykjavíkur 16 ára gamall og snýr nú aftur á æskuslóðirnar. Jakob nam…Lesa meira

true

Jöklarar verða steyptir í brons

Slysavarnardeildin Helga Bárðardóttir í Snæfellsbæ ætlar að láta steypa styttuna Jöklarar, sem staðsett er í Sjómannagarðinum á Hellissandi, í brons. „Þetta er stytta sem slysavarnardeildin lét gera árið 1974 til minningar um fallna sjómenn. Ragnar Kjartansson myndhöggvari gerði styttuna á sínum tíma úr epoxý og átti það efni að vera varanlegt, sem nú hefur komið…Lesa meira

true

Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Borgarbyggð

Nýkjörin sveitarstjórn Borgarbyggðar fundaði fyrsta sinni í gær, miðvikudaginn 13. júní. Á fyrsta fundi var kosið í helstu trúnaðarstörf. Lilja Björg Ágútsdóttir var kjörin forseti sveitarstjórnar, Magnús Smári Snorrason fyrsti varaforseti og Finnbogi Leifsson annar varaforseti. Samþykkt var að semja við Gunnlaug A. Júlíusson um að hann gegni áfram starfi sveitarstjóra næstu fjögur árin, eða…Lesa meira

true

Hugmyndir um útisvið og torg í Hólminum

Unnin hefur verið tillaga að útisviði í Hólmgarði í Stykkishólmi til að nota fyrir tónleikahald og við ýmis önnur hátíðarhöld í bænum. Hugmyndin er að byggja nýtt svið og hellulagt svæði sem mun svo mynda torg fyrir miðjum garðinum. Heildarstærð torgsins er áætluð um 360 fermetrar. Einar Júlíusson, yfirmaður tæknisviðs og skipulags- og byggingarfulltrúi Stykkishólmsbæjar,…Lesa meira