Fréttir

true

Ráðuneytum send kvörtun vegna undirskriftasöfnunar

Fimm af sjö fráfarnadi sveitarstjórnarfulltrúum í Dalabyggð hafa sent formlega kvörtun til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og dómsmálaráðuneytis vegna sveitarstjórnarkosninganna 26. maí síðastliðinn. Jóhannes Haukur Hauksson, fráfarandi oddviti, er einn þeirra fimm sveitarstjórnarfulltrúa sem sendu kvörtunina til ráðuneytanna. „Kvörtunin til sveitarstjórnarráðuneytis lýtur að því hvernig staðið var að söfnun undirskrifta þar sem sölunni á Laugum í…Lesa meira

true

Undirskriftalisti í Dölum marklaus

Formgalli var á undirskriftalista sem afhentur var sveitarstjórn Dalabyggðar 24. maí síðastliðinn og telst listinn því marklaus. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sveitarfélagsins frá því síðastliðinn miðvikudag. Eins og greint var frá í Skessuhorni fékk sveitarstjórn listann afhentan fyrir fund sinn 24. maí. Höfðu 213 af 495 kjörgengum íbúum Dalabyggðar, 43%, lagt nafn…Lesa meira

true

Kaffihúsið Gilbakki opnað á Hellissandi

Nýtt og glæsilegt kaffihús var opnað á Hellissandi á dögunum. Kaffihúsið Gilbakki, sem staðsett er við Höskuldarbraut, er rekið af þeim hjónum Önnu Þóru Böðvarsdóttur og Lúðvík Ver Smárasyni. Áður hefur Anna Þóra rekið Gamla Rif til margra ára en því er nú búið að breyta í gistihús. Húsnæði kaffihússins er sérstak fyrir margra hluta…Lesa meira

true

Raf-Magnaður Halli Melló

Heiðurstónleikar í Bíóhöllinni í kvöld Það er ekki á hverjum degi sem menn fá tækifæri til að sitja sína eigin heiðurstónleika. Sú verður hins vegar raunin í kvöld þegar leikarinn góðkunni Hallgrímur Ólafsson mun ganga í sal Bíóhallarinnar á Akranesi á tónleika honum til heiðurs. Hallgrímur er landsmönnum flestum kunnur sem víkingaklapparinn taktlausi Magnús Magnús…Lesa meira

true

Grettir strandaði á Breiðafirði

Grynningar ranglega merktar inn á kort Grettir BA, skip Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum, strandaði á grynningum skammt utan við Stykkishólm á tíunda tímanum í fyrrakvöld. „Þetta gerðist svolítið fyrir háfjöru. Áhöfn skipsins beið eftir flóði og sigldi af stað heim á leið þegar flæddi undan skipinu,“ segir Finnur Árnason, framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar, í samtali við Skessuhorn. Ástæða…Lesa meira

true

Svífur um á bleiku skýi

Þórunn Birna Guðmundsdóttir gekkst undir kynleiðréttingu í desember 2017 Þórunn Birna Guðmundssdóttir tekur hlýlega á móti blaðamanni í snyrtilegri íbúð skammt frá íþróttasvæðinu á Jaðarsbökkum á Akranesi. „Kaffið er á leiðinni,“ segir hún um leið og hún fer inn í eldhús til að  klára að hella upp á, meðan blaðamaður lítur í kringum sig í…Lesa meira

true

Keppt í kraftlyftingum og bekkpressu á Akranesi

Íslandsmeistaramót öldunga og unglinga í kraftlyftingum fór fram á Akranesi um helgina. Mótið var fámennt en góðmennt og góð stemning meðal keppenda og áhorfenda, að því er fram kemur á Facebook-síðu Kraftlyftingafélags Akraness. Í bekkpressu í Junior flokki mætti Svavar Örn Sigurðsson úr Kraftlyftingafélagi Akraness til leiks. Hann lyfti 155 kg sem er hans besta…Lesa meira

true

Reynslumikið bæjarstjórnarfólk lætur af störfum

Fráfarandi bæjarstjórn Snæfellsbæjar fundaði í síðasta sinn á miðvikudaginn í síðustu viku. Þrautreyndir bæjarstjórnarfulltrúar láta af störfum og nýtt fólk kemur inn í þeirra stað, eins og gengur og gerist. Kristján Þórðarson á Ölkeldu hættir eftir 16 ára setu í bæjarstjórn, fjögur kjörtímabil og Kristjana Hermannsdóttir eftir tólf ár, eða þrjú kjörtímabil. Kristjana gegndi enn…Lesa meira

true

Norðurálsmótið vel heppnað þrátt fyrir smá vætu

Hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu fór fram á Akranesi um helgina, 8.-10. júní sl. Mótið er fyrir drengi í 7. flokki, sem eru á aldrinum sex til átta ára. Óformlegt upphaf mótsins var venju samkvæmt skrúðganga sem farin var frá Stillholti áleiðis í Akraneshöllina á föstudagsmorgun. Þar var mótið formlega sett og fyrstu leikirnir voru…Lesa meira

true

Úrslit frá úrtökumóti Dreyra og Glaðs

  Sameiginlegt úrtökumót Hestamannafélagsins Dreyra og Hestamannafélagsins Glaðs fyrir komandi Landsmót hestamanna fór fram á Æðarodda um helgina. Jafnframt var mótið gæðingamót Dreyra en þátttakendur í barna- og unglingaflokki Glaðs fengu einnig að taka þátt í því móti. „Mótið fór afskaplega vel fram, þátttaka var ágæt en þó hefði verið gaman að sjá fleiri félaga…Lesa meira