Fréttir

true

Íslenskt lambakjöt í útrás

Um 200 tonn seldust í Japan í fyrra Markaðsstofan Icelandic Lamb hefur undanfarin misseri unnið að markaðssetningu á íslensku lambakjöti í Japan. Er það gert í samvinnu við kjötútflytjendur og japanska innflutningsfyrirtækið Global Vision. Fyrirtækið flytur inn til Japans ýmsar sérvörur frá Evrópu og Norður-Ameríku og selur til veitingastaða, dreifingaraðila og sérverslana. „Íslenskt lamba- og…Lesa meira

true

Ingi Þór hættur hjá Snæfelli

Körfuknattleiksþjálfarinn Ingi Þór Steinþórsson hefur látið af störfum hjá Snæfelli. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef félagsins síðasta miðvikudag. Ingi Þór þykir einn af bestu körfuknattleiksþjálfurum landsins. Hann hóf störf hjá Snæfelli árið 2009 og hefur þjálfað báða meistaraflokka félagsins, auk þess að halda utan um starf yngri flokka félagsins. Hann á að baki…Lesa meira

true

Eldur í bát í Ólafsvík

Eldur kviknaði í Brynju SH í Ólafsvíkurhöfn í dag þegar miðstöð bátsins bilaði. Kviknaði eldurinn í olíumiðstöð í vélarrúmi í bátnum. Mikill reykur var og byrjuðu slökkviliðmenn að reykræsta um leið og komið var á staðinn. Minniháttar tjón varð á bátnum og enginn slasaðist.Lesa meira

true

Fleiri vilja í verknám

Samkvæmt tölum frá menntastofnun hafa rúmlega 3800 nemendur  skilað inn umsóknum fyrir næsta skólaár. Allar líkur benda á fjölgun í verknámi og má greina að 17% þeirra sem sóttu um skólavist fyrir haustið hafi valið sér verknámsbrautir sem sitt fyrsta val. Fyrir ári innrituðust 12% nemenda á verk- eða starfsnámsbrautir. Að þessu sinni eru rafiðngreinar…Lesa meira

true

Ísland í efsta sætið

Ísland tók toppsætið í sínum riðli þegar það vann góðan og mikilvægan sigur á Slóvenum 2-0 í undankeppni HM kvenna á Laugardalsvelli í gær. Með sigrinum eru stelpurnar komnar upp fyrir Þýskaland í riðlinum sem situr í öðru sæti með 15 stig beint á eftir Íslandi sem er með 16 stig eftir sigur gærkvöldsins. Tveir…Lesa meira

true

Keppt í kraftlyftingum og bekkpressu á Akranesi

Íslandsmeistaramót öldunga og unglinga í kraftlyftingum fór fram á Akranesi um helgina. Mótið var fámennt en góðmennt og góð stemning meðal keppenda og áhorfenda, að því er fram kemur á Facebook-síðu Kraftlyftingafélags Akraness. Í bekkpressu í Junior flokki mætti Svavar Örn Sigurðsson úr Kraftlyftingafélagi Akraness til leiks. Hann lyfti 155 kg sem er hans besta…Lesa meira

true

Magnús Guðmundsson settur framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarði

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur sett Magnús Guðmundsson, forstjóra Landmælinga Íslands, tímabundið sem framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs. Umhverfisráðherra ákvað í janúar að láta gera óháða úttekt á starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs í samræmi við lög um opinber fjármál. Ástæðan var sú að afkoma og rekstur þjóðgarðsins þótti ekki viðunandi. Úttekt ráðgjafafyrirtækisins Capacent sýnir veruleg frávik í rekstri…Lesa meira

true

Mæstro opnaður í Grundarfirði

Undanfarin ár hefur Baldur Orri Rafnsson rekið pylsuvagninn Meistarann í Grundarfirði við góðan orðstír. Nú hefur örlítil breyting orðið þar á, því Meistarinn heitir núna Mæstro Street Food. Einnig hefur útliti vagnsins verið breytt lítillega. Í stað rauða vagnsins sem staðið hefur í Grundarfirði undanfarin ár er vagninn núna svartur og stíhreinn. Góður rómur hefur…Lesa meira

true

Gáfu heilsugæslunni í Stykkishólmi öndunarmæli

Lionsklúbbur Stykkishólms kom færandi hendi á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi á dögunum. Félagsmenn færðu stofnuninni að gjöf öndunarmæli, eða svokallaða spirometriu, sem mun nýtast við greiningu og meðferð sjúklinga með öndunarfærasjúkdóma. „Það er gott að vita til þess að félög eins og Lions láta gott af sér leiða fyrir fólkið í bænum. Við færum…Lesa meira

true

Forsetinn vakti lukku á Norðurálsmótinu

Hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu var haldið um síðustu helgi á Akranesi þar sem 1500 iðkendur frá 36 félögum öttu kappi. Mikill fjöldi foreldra, ættingja og annarra gesta fylgja keppendum. Þeirra á meðal var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sem studdi þétt við bakið á syni sínum og félögum hans í Ungmennafélagi Álftaness. Sinnti hann…Lesa meira