Fréttir

true

Óháður aðili metur valkosti í vegagerð

Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefnd Reykhólahrepps samþykkti mánudaginn 9. apríl tillögu þess efnis að fresta breytingum á aðalskipulagi og fá óháða verkfræðistofu, helst erlenda, til að meta og fara yfir valkosti í vegagerð í Gufudalssveit. „Ekki hafa verið fengnir hlutlausir óháðir fagaðilar til að meta hvort draga megi úr kostnaði og auka umferðaröryggi jarðgangaleiðar undir Hjallaháls…Lesa meira

true

Niðurrif efnisgeymslu Sementsverksmiðjunnar hafið

Niðurrif mannvirkja Sementsverksmiðjunnar á Akranesi gengur vel og eru framkvæmdir á undan áætlun miðað við verksamning við Work North ehf. Í dag og til 21. apríl næstkomandi verður stóra efnisgeymlan samhliða Faxabraut rifin og af þeim sökum verður götunni lokað fyrir allri umferð á meðan. Líkur eru til að búið verði fyrir næstu mánaðamót að…Lesa meira

true

Team Rynkeby Ísland æfði á Akranesi og í Hvalfirði

Síðastliðinn laugardag var hjólalið Team Rynkeby Ísland á æfingu á Akranesi og í nágrenni. Lagt var að stað að morgni frá Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum og hjólað inn að gamla Botnsskála í Hvalfirði og þaðan til baka. Samtals rúmlega 100 kílómetra leið. Um var að ræða eina af skylduæfingum liðsins, en að jafnaði er æft tvisvar…Lesa meira

true

Síðustu forvöð á morgun að sjá sýninguna 300 Brunahanar

Vegna fjölda áskorana verður sýningin „300 Brunahanar – stúdía í máli og myndum“ opin laugardaginn 14. apríl frá kl. 13-17. Höfundar sýningarinnar eru Garðar H. Guðjónsson blaðamaður og Guðni Hannesson ljósmyndari. Sýningin er haldin í gömlu lögreglustöðinni að Kirkjubraut 10 á Akranesi og eru allir eru velkomnir. Garðar og Guðni hjóluðu um Akranes sumarið 2017…Lesa meira

true

Tankbíll til Grundarfjarðar fyrir afrekstur af dagatalssölu

Starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar keypti á dögunum gamlan tankbíl frá Brunavörnum Árnessýslu. Tankbíllinn er af gerðinni Iveco og er framleiddur árið 1985 og er því löglegur fornbíll. Tankurinn á honum er 12 þúsund lítra og munar um minna þegar mikið liggur við. Í vetur voru aðstæður oft þannig að nánast ómöulegt var að komast í vatnsból…Lesa meira

true

Stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi

Síðastliðinn laugardag fór fram verðlaunaafhending fyrir góðan árangur í stærðfræðikeppni grunnskólanna á Vesturlandi, en keppnin fór fram í liðnum mánuði í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Það er FVA sem skipuleggur og stendur fyrir keppninni líkt og fjölmörg undanfarin ár. Keppnin er fyrir þrjá elstu bekki grunnskóla og öllum boðið að taka þátt sem vilja. Kallaðir…Lesa meira

true

Um grísahald í garðinum

Síðustu ár hefur færst í vöxt að bændur og aðrir einstaklingar kaupi einstaka svín til að ala sjálfir, sérstaklega yfir sumartímann. Matvælastofnun hefur nú gefið út leiðbeiningar fyrir þá sem hafa hugsað sér að kaupa grísi þar sem dregin eru fram helstu atriði sem hafa þarf í huga. Í leiðbeiningunum er farið yfir þær kröfur…Lesa meira

true

Þakklát að hafa fengið að leiða skólastarf með góðu fólki

Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir lætur af störfum sem skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar í vor eftir rúman áratug í starfi. Hún var ráðin skólastjóri Varmalandsskóla árið 2007 og hóf störf þá um haustið. Hún varð síðan skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar árið 2010 eftir sameiningu skólanna í uppsveitum Borgarfjarðar. Deildir skólans eru þrjár; á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. „Tilfinningar mínar…Lesa meira

true

Rekstrarniðurstaða Dalabyggðar jákvæð um 61 milljón króna

Rekstrarniðurstaða Dalabyggðar var jákvæð um sem nemur 61,3 milljónum króna á árinu 2017. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Dalabyggðar. Rekstrartekjur samstæðu A og B hluta voru 895,9 milljónir en rekstrargjöld 796,7 milljónir. Án fjármunatekna og -gjalda var rekstrarniðurstaða jákvæð um 70,7 milljónir. Fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur námu 9,8 milljónum og niðurstaðan því jákvæð um…Lesa meira

true

Vogur hættir að taka við ungmennum undir 18 ára

„Það er ákvörðun okkar hjá meðferðarsviði og framkvæmdastjórn SÁÁ að hætta að taka inn á sjúkrahúsið Vog ólögráða einstaklinga og miða ungmennameðferðina við 18 ára,“ segir í tilkynningu frá SÁÁ. „Augljós krafa um að ólögráða einstaklingar geti ekki verið í sama rými og fullorðnir í meðferð er meira en sjúkrahúsið Vogur getur orðið við að…Lesa meira