Fréttir

true

Afkoma Snæfellsbæjar mun betri en áætlað hafði verið

Ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2017 var til fyrri umræða í bæjarstjórn miðvikudaginn 11. apríl en verður tekinn til síðari umræða fimmtudaginn 3. maí nk. Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaðan töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða um 262,9 milljónir króna í samanteknum rekstrarreikningi A- og B-hluta en í fjárhagsáætlun var…Lesa meira

true

Ráslistar Vesturlandsdeildarinnar í kvöld

Búið er að birta ráslista fyrir lokakvöld Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum. Keppt verður í Faxaborg í kvöld. Keppt verður fyrst í tölti en deildin endar með keppni í flugskeiði.   Tölt Leiknis hestakerra – ráslisti: Guðbjartur Þór Stefánsson og Brjánnn frá Eystra-Súlunesi Konráð Axel Gylfason og Stígur frá Halldórsstöðum Linda Rún Pétursdóttir og Urður frá Grímarsstöðum…Lesa meira

true

Tökur hefjast við Snæfellsnes á heimildamynd um verndun háhyrninga

Næstkomandi sunnudag hefja félagasamtökin Orca Guardians, sem eiga rætur að rekja til Grundarfjarðar, tökur á Snæfellsnesi vegna heimildamyndar sem ber vinnuheitið „Háhyrningar við Vesturland og verndun þeirra: Breytt skynjun heimamanna á topprándýri hafsins.“ Í kynningu Orca Guardians vegna myndarinnar segir: „Í myndinni, sem verður bæði á íslensku og ensku, verður áhersla lögð á að sýna…Lesa meira

true

Verslunin Hans og Gréta opnar senn í Model

Verslunin Hans og Gréta á Akranesi verður flutt í nýtt og stærra húsnæði í byrjun næsta mánaðar. Verslunin er nú staðsett við Smiðjuvelli 32, í sama húsæði og Bónus, en mun flytja í sama rými og verslunin Model er til húsa, við Þjóðbraut 1. Nýja húsnæðið er um 200 fermetrar að stærð og því um…Lesa meira

true

Á rúntinum á 71 árs Willys jeppa

Þórarinn Jónsson frá Hamri í Þverárhlíð býr í Borgarnesi. Hann hefur talsvert fengist við að gera upp gamla bíla og dráttarvélar. Í blíðviðrinu í liðinni viku var Þórarinn á rúntinum á Willis árgerða 1947 sem hann hefur nýlega lokið við að gera upp. Fréttaritari Skessuhorns hitti Þórarinn að máli og spurði um bílinn. Bíll þessi…Lesa meira

true

Söngleikurinn Smellur settur upp í Grundaskóla

Nemendur á unglingastigi í Grundaskóla á Akranesi standa í ströngu þessa dagana við uppsetningu á söngleiknum Smelli sem verður frumsýndur í Bíóhöllinni laugardaginn 27. apríl. Er fyrir löngu orðin hefð fyrir að nemendur á unglingastigi setji upp söngleik sem þennan en það hefur verið gert þriðja hvert ár frá árinu 2003 og er þessi söngleikur…Lesa meira

true

Búgreina- og búnaðarfélög þurfa að ná fótfestu að nýju

Aðalfundur Búnaðarsamtaka Vesturlands fór fram síðastliðinn mánudag. Þá lét Þórhildur Þorsteinsdóttir bóndi á Brekku af embætti formanns og Jón Gíslaon bóndi á Lundi í Lundarreykjadal tók við keflinu. Bryndís Karlsdóttir bóndi á Geirmundarstöðum gekk einnig úr stjórninni og í stað hennar kom Sigrún Hanna Sigurðardóttir bóndi á Lyngbrekku í Dölum. Þriðji maður í stjórninni er…Lesa meira

true

Námskeið til að auka færni í kjarasamningagerð

Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari efnir til þriggja daga námsstefnu um samningagerð fyrir íslenskt samninganefndafólk dagana 2.- 4. maí á Bifröst í Borgarfirði. Þetta er í fyrsta skipti sem embættið gengst fyrir slíkri námstefnu í þessari mynd en hún verður endurtekin í byrjun október. Námsstefnan er hluti af umbótaverkefni á vegum embættisins og miðar að því bæta…Lesa meira

true

Tillaga um breytt fyrirkomulag strandveiða er umdeild

Fyrir Alþingi liggur nú að afgreiða nefndarfrumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða sem snertir strandveiðar. Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður nefndarinnar er fyrsti flutningsmaður. Breytingin sem um ræðir er sett til bráðabirgða og verður bætt við svohljóðandi ákvæði: „Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 6. gr. a skal ráðherra til 31. ágúst 2018 takmarka strandveiðar…Lesa meira

true

Skallagrímskonur komnar í sumarfrí

Skallagrímskonur féllu úr leik í úrslitakeppni Domino‘s deildar kvenna eftir tap gegn Haukum í Hafnarfirði í gærkvöldi, 77-63. Fyrir gærdaginn höfðu Haukar sigrað fyrstu tvo leikina, en sigra þurfti þrjá til að komast áfram í úrslit. Það var því á brattann að sækja fyrir Skallagrím gegn sterku liði deildarmeistara Hauka. Það var þó ljóst strax…Lesa meira