Fréttir

true

Vel heppnuð Mýraeldahátíð um helgina

Mjög svo vel heppnuð Mýraeldahátíð var haldin í blíðskaparveðri í reiðhöllina Faxaborg í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Hátíðin er haldin annað hvert ár af Búnaðarfélagi Mýramanna til að minnast sinubrunans mikla í apríl 2006. „Við erum afskaplega ánægð með hátíðina og hversu margir komu. Ég myndi áætla að yfir þúsund manns hafi komið í Faxaborg og…Lesa meira

true

Þórhallur heldur hjónanámskeið næsta mánudag

„Vegna fjölmargra fyrirspurna verður nú eftir páska boðið upp á síðasta hjónanámskeið vorsins, þann 16. apríl, í Reykjavík,“ segir í tilkynningu frá Þórhalli Heimissyni. „Námskeiðið verður með hefbundnum hætti, stuttir fyrirlestrar – verkefni – æfingar og samtal. Eftir námskeiðið fá hjón með heim 7 vikna heimaverkefni. Fjallað er um ástina, samskipti, kynlífið, börnin, vinnuna, peningana,…Lesa meira

true

Hillir undir að endurbætur hjúkrunarrýma í Stykkishólmi geti hafist

Sigurður Páll Jónsson þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi og bæjarfulltrúi í Stykkishólmi bar á þingi á mánudaginn upp fyrirspurn til heilbrigðisráðherra vegna búsetu eldri borgara í Stykkishólmi. Minnti hann á að árið 2012 hafi verið undirrituð viljayfirlýsing milli þáverandi heilbrigðisráðherra og forseta bæjarstjórnar í Stykkishólmi um sameiningu hjúkrunarrýmis og dvalarheimilis við sjúkrahús Stykkishólms undir sama þaki…Lesa meira

true

Samfylkingin í Borgarbyggð kynnir framboðslista

Framboðslisti Samfylkingarinnar og óháðra í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi í gær. Þær breytingar verða nú á listanum frá síðustu kosningum að Geirlaug Jóhannsdóttir sem verið hefur í efsta sæti gefur ekki kost á sér að nýju til forystu, en skipar nú heiðurssætið. Magnús Smári Snorrason sveitarstjórnarfulltrúi, sem skipaði…Lesa meira

true

„Þetta stríð er að drepa okkur úr áhyggjum“

Fyrir bráðum tveimur árum síðan opnuðu hjónin Jorge Ricardo Cabrera og Alicia Guerrero veitingastaðinn La Colina í Borgarnesi. Þar bjóða þau upp á eldbakaðar pitsur og gengur reksturinn vel. Með tíð og tíma langar þau að bæta við réttum frá heimalandinu Kólumbíu og gera matarhefð landsins hátt undir höfði. En það er ekki víst að…Lesa meira

true

Lokamót Vesturlandsdeildarinnar verður annað kvöld

Keppt var í fimmgangi í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í Faxaborg síðastliðinn fimmtudag. Þau Þytur og Randi Holaker frá Skáney vörðu með nokkrum yfirburðum verðlaunasæti sitt frá síðasta ári í þessari grein. Vesturlandsdeildin er eins og kunnugt er einstaklings- og liðakeppni en 34 knapar mynda sjö, fjögurra og fimm manna lið, sem etja kappi í sex…Lesa meira

true

Að vera skáld og skapa – árlegt verkefni í Safnahúsi á fyrsta sumardegi

Tónlistarskóli Borgarfjarðar og Safnahús Borgarfjarðar hafa á undanförnum árum unnið saman að því að hvetja ungt fólk til að semja tónlist við borgfirsk ljóð. Fer verkefnið þannig fram að ljóðahefti er útbúið og sett í hendur nemenda. Þeir velja sér texta úr safninu og semja lög við. Þeir ákveða síðan flutningsmátann sjálfir og frumflytja verkin…Lesa meira

true

Alþjóðlegt meistaramót rafbíla haldið á Íslandi

Akstursíþróttasamband Íslands (AKÍS) hefur gengið frá samningum við Alþjóða aksturssambandið (FIA) þess efnis að ein umferð í alþjóðlegu meistaramóti rafbíla FIA í nákvæmnisakstri, oft kallað eRally (FIA Electric and New Energy Championship), verði haldið á Íslandi í september á þessu ári. ,,Það kom okkur skemmtilega á óvart hve mikill áhugi reyndist vera á því hjá…Lesa meira

true

Sýna kvikmynd frá bresku fornbílamóti

Í kvöld klukkan 20 verður í húsnæði Fornbílafjelags Borgarfjarðar í Brákarey sýnd mynd frá brezku fornbílamóti. Þar var meðal annars sérstök kynning á völdum milli- og eftirstríðsárabílum (Classic Vintage and Post War Cars), flestir brezkir en einnig annarra landa bílar. Evrópskir eftirstríðsárabílarnir voru flestir fremur óburðugir enda var bílaiðnaðurinn í Evrópu nokkur ár að ná…Lesa meira