Fréttir

true

Sjötti hver á vinnumarkaði er útlendingur

Árið 2017 voru að jafnaði 197.094 starfandi einstaklingar á vinnumarkaði hér á landi. Af þeim voru konur 92.855 eða 47,1% og karlar 104.239 eða 52,9%. Starfandi innflytjendur voru að jafnaði 32.543 árið 2017 eða 16,5% af öllum starfandi, eða sjötti hver á vinnumarkaði. Störf útlendinga eru m.a. á sviði ferðaþjónustu, byggingastarfsemi, iðnaðar og fiskvinnslu.Lesa meira

true

Lentu í sjálfheldu skammt frá Arnarstapa

Þyrla Landhelgisgæslunnar var í nótt kölluð á utanvert Snæfellsnes. Tveir ferðamenn höfðu komist í sjálfheldu í klettabelti í Botnsfjalli rétt austan við Arnarstapa. Lögregla og björgunarsveitarfólk mátu aðstæður þannig að rétt væri að kalla út þyrlu klukkan eitt um nóttina enda skollið á myrkur og aðstæður til björgunar af landi því erfiðar. Þyrlan var mætt…Lesa meira

true

Ný forusta kennara

Ragnar Þór Pétursson hefur tekið við formennsku í Kennarasambandi Íslands og Anna María Gunnarsdóttir framhaldsskólakennari embætti varaformanns. Þingi KÍ lauk fyrir helgi. Ragnar Þór er grunnskólakennari og hefur síðustu árin starfað í Norðlingaskóla. Anna María hefur kennt íslensku í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hún hefur einnig starfað innan vébanda Kennarasambandsins, var m.a. formaður skólamálanefndar KÍ síðustu…Lesa meira

true

Boða aðalfund Hollvinasamtaka Borgarness

Aðalfundur Hollvinasamtaka Borgarness verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl kl. 20:00 í samkomusal Stéttarfélags Vesturlands. Á dagskrá er kosning stjórnar, skýrsla formanns og lagðir fram reikningar. Þá verður rætt um skipulag Brákarhátíðar sem og önnur mál. Hollvinasamtökin eru opin öllum þeim sem áhuga hafa á að styðja málefni til hagsbóta fyrir íbúa Borgarness og nærsveita. Helsta…Lesa meira

true

Opinn fundur um niðurstöður umhverfisvöktunar á Grundartanga

Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga. Fundurinn verður á morgun, þriðjudaginn 17. apríl að Hótel Glym í Hvalfjarðarsveit. Fundurinn hefst klukkan 15:30 og er haldinn þar sem kveðið er á í starfsleyfum tiltekinna stærri fyrirtækja að boða skuli til opins kynningarfundar um umhverfisvöktun og losun af völdum starfseminnar. Dagskrá…Lesa meira

true

Helga Jensína ráðin skólastjóri GBF

Helga Jensína Svavarsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Grunnskóla Borgarfjarðar, en Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir sagði í vetur starfi sínu lausu og hættir í vor. Helga Jensína er grunnskólakennari að mennt og búsett á Vatnshömrum í Andakíl. Á starfsferli sínum hefur hún kennt við Andakílsskóla á Hvanneyri, við Ingunnarskóla í Grafarholti, Grunnskólann í Borgarnesi og frá árinu…Lesa meira

true

Vefurinn Ljósborg nú aðgengilegur

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar 12. apríl síðastliðinn var opnaður nýr upplýsingavefur um lagningu ljósleiðara í sveitarfélaginu; Ljósleiðari Borgarbyggðar. Hann er tengdur inn á vef Borgarbyggðar undir heitinu „Ljósborg“. „Á vefnum er að finna margháttaðar upplýsingar sem tengjast verkefninu og fréttir verða settar inn eftir því sem því vindur fram,“ segir í tilkynningu. „Ýmsar upplýsingar er…Lesa meira

true

Marella Steinsdóttir nýr formaður ÍA

Marella Steinsdóttir er tekur við formennsku í Íþróttabandlagi Akraness eftir 74. ársþing ÍA sem haldið var í gærkvöldi. Tekur hún við embættinu af Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur, sem var fyrsta konan til að gegna formennsku í ÍA. Hún gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Framkvæmdastjórn ÍA tekur töluverðum breytingum frá fyrra ári. Hörður Helgason tekur…Lesa meira

true

Mikill verðmunur á umfelgunum

Nú stendur yfir tími umfelgana þegar bíleigendur skipta sumardekkjunum inn fyrir vetrardekkin. Verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi 10. apríl sl. könnun á verði fyrir umfelganir. Í ljós kom að allt að 117% munur, eða 8.050 kr., var á umfelgun fyrir bíla með dekkjastærðina 265/60R18 (stórir jeppar með 18‘‘ dekk). Könnunin var framkvæmd á 30 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um…Lesa meira

true

Andri Adolphsson til ÍA á láni

Skagamaðurinn Andri Adolphsson  mun leika með ÍA í Inkasso deildinni í knattspyrnu á komandi sumri. Andri er uppalinn hjá ÍA og lék með liði Skagamanna til ársins 2015. Síðan þá hefur hann leikið með Val og varð Íslandsmeistari með liðinu síðasta sumar þar sem hann kom við sögu í 16 leikjum í deild og bikar.…Lesa meira