Fréttir

true

Stuttmyndin Donor fjallar um skipulagðan líffæraþjófnað

Stuttmyndin Donor er nýjasta verk kvikmyndagerðarmannsins Guðna Líndal Benediktssonar frá Staðarhúsum í Borgarfirði. Um er að ræða níundu myndina sem hann leikstýrir og skrifar í samstarfi við framleiðslufyrirtæki sitt, Fenrir Films. Það er rekið af hópi kvikmyndagerðarmanna sem hafa unnið að fjölda verkefna innan geirans undanfarin ár, meðal annars Game of Thrones og Star Wars:…Lesa meira

true

Björgunarsveitarfólk á Vesturlandi kom saman

Síðastliðinn mánudag voru níutíu ár liðin frá stofnun Slysavarnafélags Íslands, en stofnun þess markaði upphaf skipulagðs björgunar- og slysavarnastarfs á Íslandi. Í tilefni tímamótanna fögnuðu félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og hjá slysavarnadeildunum tímamótunum um allt land og meðal annars hér á Vesturlandi. Um kvöldið var haldin veisla í húsnæði þeirra, sem endaði á því að…Lesa meira

true

Flest sveitarfélög hækka verð fyrir skóladagsvist og mat

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám frá árinu 2017 – 2018 fyrir skóladagvistun, hressingu og hádegismat í skólum í fimmtán sveitarfélögum víða um land. Mikill munur reyndist á kostnaði en hæst eru gjöldin fyrir skóladagvistun ásamt hádegismat og hressingu hjá Garðabæ eða 37.114 kr. en lægst í Vestmanneyjum eða 24.360 kr. Verðhækkanir sveitarfélaganna fyrir eitt…Lesa meira

true

Hálka og snjóþekja á vegum

Á vegum á Suður- og Vesturlandi er víða hálka eða snjóþekja. Flughálka og óveður er á Útnesvegi á Snæfellsnesi, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þá er hálka eða snjóþekja á vegum á Vestfjörðum og éljagangur mjög víða. Þæfingur er á Klettshálsi. Athygli er vakin á því að leiðindaspá er fyrir daginn í dag og aftur…Lesa meira

true

Ný íslensk kvikmynd tekin upp í Dölum

Á næstunni verður teymi kvikmyndagerðarmanna við upptökur að nýrri íslenskri kvikmynd í Dalabyggð. Helsti tökustaður myndarinnar verður bærinn Erpsstaðir. Um er að ræða nýja mynd leikstjórans Gríms Hákonarsonar, sem er líklega þekktastur fyrir myndina Hrúta frá árinu 2015. „Kvikmyndin ber titilinn Héraðið og er eins konar kvensöguhetja,“ segir Sara Nassim, framleiðslustjóri myndarinnar, í samtali við…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Njarðvík eftir framlengingu

Snæfell bar siguorð af botnliði Njarðvíkur, 70-73, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gær. Eftir spennandi leik var jafnt eftir venjulegan leiktíma og þurfti að grípa til framlengingar. Þar réðust úrslitin ekki fyrr en á lokasekúndunum og Snæfellskonur komu því í veg fyrir fyrsta sigur Njarðvíkur í deildinni í vetur. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina…Lesa meira

true

Leikskólar á Akranesi í fjögurra vikna sumrfrí

Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt tillögu skóla- og frístundaráðs um sumarleyfi leikskóla Akraneskaupstaðar næstkomandi sumar. Samþykkt var að skólarnir verði lokaðir í fjórar vikur og mun tímasetning ráðast af könnun sem hver og einn leikskóli mun gera meðal foreldra. Hvert barn þarf að taka fjórar vikur samfellt í sumarleyfi ár hvert samkvæmt verklagsreglum um leikskóla bæjarins.…Lesa meira

true

Ný tæki á Leitarstöð Krabbameinsfélagsins

Krabbameinsfélag Íslands hefur nú endurnýjað að stórum hluta tækjabúnað Leitarstöðvarinnar til skipulegrar leitar að brjóstakrabbameini. Safnað var fyrir tækjunum í Bleiku slaufunni 2016. Alls söfnuðust 132 milljónir í átakinu sem runnu óskiptar til tækjakaupanna. Endurnýjunin gerist í tveimur áföngum og hafa nú hópleitartæki verið uppfærð. „Ávinningurinn af endurnýjuðum tækjabúnaði er meðal annars minni geislun og…Lesa meira

true

Google Maps ekki treystandi

Skessuhorni barst ábending frá starfsfólki orlofshúsanna í Svignaskarði um að Svignaskarð væri rangt skráð inni í Google Maps kortaforritinu. Er starfsfólkið orðið langþreytt á því að eyða föstudagseftirmiðdegi, þegar sóttir eru lyklar að húsunum, í að leiðsegja fólki út úr ógöngum sem það er komið í vegna rangrar skráningar í Google Maps. Þeir sem eiga…Lesa meira

true

Mikið af loðnu að sjá norðan við fyrra veiðisvæði

Víkingur AK er nú á leiðinni frá Vopnafirði til Reykjavíkur, þar sem hitt uppsjávarveiðiskip HB Granda, Venus NS, er í höfn. Þess er beðið með óþreyju að niðurstöður Hafrannsóknastofnunar á mælingu stærðar og úbreiðslu loðnustofnsins liggi fyrir en þá fyrst verður ákveðið hvort bætt verður við útgefinn byrjunarkvóta. ,,Við lukum síðasta loðnutúrnum í bili með…Lesa meira