Fréttir

true

Vorferð Blóðbankabílsins framundan á Snæfellsnes

Dagana 6. og 7. maí verður blóðsöfnun í Grundarfirði, Stykkishólmi og Ólafsvík. Eins og kunnugt er er Blóðbankabíllinn útibú frá Blóðbankanum. Í Grundarfirði verður bíllinn við Kjörbúðina mánudaginn 6. maí kl. 12:00-17:00. Bíllinn verður við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi miðvikudaginn 7. maí klukkan 8:30-12:00 og við Söluskálann ÓK í Ólafsvík sama dag frá klukkan 14:30-18:00. „Í…Lesa meira

true

Söguviðburðir framundan í Dölum

Sunnudaginn 12. maí næstkomandi verða haldnir tveir sögutengdir viðburðir í Dölum. Söguskilti verður afhjúpað við afleggjarann að Hjarðarholti í Laxárdal og síðan verður Sturlufélag stofnað. Fyrst verður afhjúpað söguskilti við afleggjarann að Hjarðarholti. Er það er fyrsta skiltið af fjórum söguskiltum á Gullna söguhringnum svokallaða. Mjólkursamsalan kostar gerð skiltanna, sem útbúin hafa verið í samvinnu…Lesa meira

true

Færeyska fánanum nú flaggað í eina öld

Færeyingar halda Flaggdagin hátíðlegan ár hvert 25. apríl. Nú eru liðin 100 ár frá því færeyski fáninn blakti fyrst við hún við brúðkaup í Fámjin í Suðurey 25. apríl 1919. Sendistofa Færeyja á Íslandi bauð Færeyingum á Íslandi og öðru tignarfólki til samkomu að Kjarvalsstöðum í Reykjavík af þessu tilefni. Boðið var upp á færeyskan…Lesa meira

true

Magnús hættir hjá Landmælingum

Magnús Guðmundsson lætur af störfum sem forstjóri Landmælinga Íslands í sumar. Hann hefur stýrt stofnuninni frá árinu 1998, eða allt frá því stofnunin var flutt á Akranes. „Ég mun hætta störfum í júní næstkomandi eftir að hafa starfað hjá þeirri traustu og góðu stofnun í mörg ár við skemmtileg og gefandi verkefni,“ ritar Magnús á…Lesa meira

true

Sluppu vel frá bílveltu

Bíll með erlendu ferðafólki fór út af veginum rétt austan við Grundarfjörð seinni partinn í gær. Að sögn lögreglu gengur það kraftaverki næst að ökumaður og farþegi sem í bílnum voru sluppu með skrámur, miðað við hvernig bíllinn var útlítandi, en hann er talinn gjörónýtur. Sjúkrabíll flutti ökumann og farþega til skoðunar á heilsugæsluna í…Lesa meira

true

Margrét Björk tekin við starfi forstöðumanns Markaðsstofunnar

Margrét Björk Björnsdóttir tók við starfi forstöðumanns Markaðsstofu Vesturlands nú um mánaðamótin. Síðast gegndi starfinu Rósa Gréta Ívarsdóttir sem nú er flutt erlendis. Margrét Björk, eða Maggý eins og hún er oftast kölluð, er vel kunnug Vesturlandi enda borinn og barnfæddur Snæfellingur og starfar hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Hún er m.a. höfundur skýrslunnar um…Lesa meira

true

Margir vilja beisla vindorkuna

Áætlanir um þrjú stór verkefni til undirbúnings vindorkugörðum eru nú á teikniborðinu í Dölum og Reykhólahreppi. Ef allar þessar þrjár hugmyndir koma til framkvæmda mun heildar raforkuframleiðsla þeirra verða allt að 410 megawött, eða uppundir jafn mikil orka og samanlögð raforkuframleiðsla Búrfellsvirkjunar og Blönduvirkjunar. Stærsta virkjunin hér á landi er Kárahnúkavirkjun sem framleiðir 690 MW.…Lesa meira

true

„Tilhlökkun og spenna í mannskapnum“

„Eins og venjulega er tilhlökkun og spenna í mannskapnum. Við erum vel stemmdir og vonum að við getum gert góða hluti í sumar,“ segir Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ó., í samtali við Skessuhorn. Víkingur Ó. hefur leik í Inkasso deild karla í knattspyrnu næstkomandi sunnudag, 5. maí, þegar liðið mætir Gróttu á Ólafsvíkurvelli. Liðið er…Lesa meira

true

Kartöflur nú án innflutningsverndar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur fallist á tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning að fella niður innflutningsvernd á kartöflum á tímabilinu 3. maí til 11. ágúst 2019 þar sem framboð á kartöflum þykir ekki nægjanlegt. „Í byrjun apríl barst ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara tilkynning um skort á kartöflum. Í kjölfarið var…Lesa meira