Fréttir

true

Æfa af kappi fyrir Team Rynkeby í sumar

Fyrir sautján árum hófst góðgerðaverkefnið Team Rynkeby þegar nokkrir starfsmenn danska safaframleiðandans Rynkeby Foods ákváðu að hjóla frá Danmörku til Parísar. Fengu þeir styrki til ferðarinnar og rann ágóði af söfnun þeirra til krabbameinsdeildar barna á sjúkrahúsinu í Óðinsvéum. Upp frá því hefur þessi 1300 kílómetra hjólreiðaferð vaxið og dafnað að umfangi og þátttökulið bæst…Lesa meira

true

Sindratorfæran á Hellu á morgun

Á morgun, laugardaginn 4. maí klukkan 11, hefst Sindratorfæran á Hellu. Mikil spenna er í fólki þar sem þetta er fyrsta umferð Íslandsmótsins og upphaf keppnistímabilsins. 19 keppendur er skráðir til leiks og ef keppendalistinn er skoðaður má þar sjá mörg ný nöfn. Þrír nýir ökumenn í götubílaflokki og fimm í sérútbúnum, þar af tveir…Lesa meira

true

Færðu Brákarhlíð veglega gjöf til að byggja gróðurhús

Opinn ársfundur dvalar- og hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar var haldinn 30. apríl síðastliðinn. Til fundarins mættu m.a. fulltrúar Lionsklúbbs Borgarness, þeir Ari Björnsson formaður ásamt Páli S. Brynjarssyni og Inga Tryggvasyni. Afhentu þeir Hollvinasamtökum heimilisins 500 þúsund króna styrk til byggingar gróðurhúss. Það voru þau Jón G. Guðbjörnsson formaður stjórnar Brákarhlíðar og Halla Magnusdóttir forstöðumaður þjónustusviðs sem…Lesa meira

true

Hver Íslendingur fer að meðaltali tvisvar á ári til útlanda

Í fyrra fóru Íslendingar í um 668 þúsund ferðir til útlanda og námu útgjöld þeirra 199 milljörðum króna við þessi ferðalög. Þetta jafngildir því að hver Íslendingur hafi að jafnaði farið í tvær utanlandsferðir á árinu. Meðalútgjöld í ferð námu um 297 þúsund krónum og lækkaði lítillega frá fyrra ári. Meðalútgjöld Íslendinga á ferðalagi erlendis…Lesa meira

true

Nánar skal rannsaka meint brot Hvals

Ríkissaksóknari hefur ógilt ákvörðun Lögreglustjórans á Vesturlandi um að hætta rannsókn á einu af þremur meintum brotum Hvals hf. á reglum um hvalveiðar. Beinir ríkissaksóknari því til lögregluembættisins að málið verði rannsakað betur. Frettavefur RÚV greinir frá. Náttúruverndarsamtökin Jarðarvinir kærðu Hval hf. síðastiðið haust fyrir brot á reglugerð um hvalveiðar. Kæran snýr að veiðum Hvals…Lesa meira

true

Dimmiterað var í FVA á þriðjudaginn

Útskriftarnemar Fjölbrautaskóla Vesturlands héldu lokahóf sitt, dimmisjón, þriðjudaginn 30. apríl. Venju samkvæmt byrjuðu nemendur á að bjóða kennurum og starfsfólki skólans til morgunverðar á sal skólans. Því næst tók við nokkuð sprell innanhúss, þar sem m.a. var litið við í kennslustundir og ýmsar þrautir leystar. Að svo búnu hélt útskriftarhópurinn sem leið lá til Reykjavíkur…Lesa meira

true

Rjómabúsbændur tilnefndir til Embluverðlauna

Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir á Rjómabúinu Erpsstöðum hafa verið tilnefnd til hinna norrænu Emblu-matarverðlauna. Eru þau fulltrúar Íslands í flokknum Matvælaiðnaðarmaður Norðurlanda 2019. Verðlaunin verða afhent í Reykjavík 1. júní næstkomandi. Auglýst var eftir tilnefningum á öllum Norðurlöndunum. Alls bárust 320 tilnefningar, þar af meira en 50 frá Íslandi. Embluverðlaunin voru fyrst…Lesa meira

true

Landburður af fiski á Akranesi

Mokveiði hefur verið að undanförnu á bátum sem landa afla á Akranesi. Línubátar leggja fyrir þorsk, grásleppuvertíðin er hafin og þá hófst strandveiðitímabilið í dag, fimmtudaginn 2. maí. Böðvar Ingvason hefur umsjón með útibúi Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar á Akranesi. Hann var að vonum hinn ánægðasti þegar Skessuhorn ræddi við hann á hlaupum á hafnarsvæðinu fyrr í…Lesa meira

true

Rafmagnslaust um tíma í nótt

Rafmagnslaust verður í Reykholtsdal og Hálsasveit, frá Deildartungu að Augastöðum, aðfararnótt föstudags klukan 01:00 til 02:00 vegna vinnu í spennistöð. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390. -fréttatilkynningLesa meira

true

Borgarbyggð kemur til móts við húsbyggjendur

Byggðarráð Borgarbyggðar ákvað á fundi sínum í dag að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af íbúðarhúsnæði og 100% afslátt af lóðagjöldum til að hvetja til byggingaframkvæmda í sveitarfélaginu. Afslátturinn mun gilda allt þetta ár og kemur því til ívilnunar fyrir þá sem hafa þegar fengið úthlutað lóðum á árinu 2019. Afslátturinn tekur til allra lóða…Lesa meira