Fréttir

true

Formannsskipti hjá RKÍ á Akranesi og Hvalfjarðarsveit

Rauði krossinn á Akranesi og Hvalfjarðarsveit hélt aðalfund sinn 18. febrúar síðastliðinn. Á fundinum var Ursula Árnadóttir kosin formaður en Alda Vilhjálmsdóttir sem gegnt hefur formennsku um áraraðir gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Tilgangur Rauða krossins er að vernda líf og heilsu og tryggja virðingu fyrir mannlegu lífi, vinna að gagnkvæmum skilningi, vináttu…Lesa meira

true

Dansnámskeið til styrktar verkefninu Sýnum karakter

Framundan er fjögurra vikna dansnámskeið á Hvanneyri og í Borgarnesi. Námskeiðið er hluti af styrktarátaki fyrir sjálfsstyrkingu og bætta félagsfærni barna og unglinga innan Ungmennasambands Borgarfjarðar. Námskeiðið er haldið af Aldísi Örnu Tryggvadóttur og mun allir ágóði þess renna til verkefnisins Sýnum karakter, sem UMSB er að innleiða í samvinnu við UMFÍ um þessar mundir.…Lesa meira

true

Nöfn fermingarbarna má ekki birta án upplýsts samþykkis

Á hverju ári fyrir fyrstu fermingarathafnir hefur Skessuhorn birt lista yfir nöfn væntanlegra fermingarbarna í landshlutanum. Samkvæmt persónuverndarlögum sem tóku gildi síðasta sumar er óheimilt að birta nöfn fermingarbarnanna án skriflegs leyfis foreldris. Ekki hefur náðst að fá undirskriftir allra foreldra og hefur ritstjórn því ákeðið að birta ekki nöfn fermingarbarna á Vesturlandi að þessu…Lesa meira

true

Söngleikurinn Rock of Ages færður á fjalirnar

Að undanförnu hafa staðið yfir stífar æfingar hjá leiklistarklúbbi Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á söngleiknum Rock of Ages. Frumsýnt verður næstkomandi föstudag. Að sögn formanna leiklistarklúbbsins, þeirra Thelmu Rakelar Ottesen, Hrannar Eyjólfsdóttur og Freyju Maríu Sigurjónsdóttur, koma um 80 manns að sýningunni með einhverjum hætti, en á svið stíga um 25 efnilegir leikarar sem…Lesa meira

true

Sýna fram á að hægt sé að vaxa í starfi ef vilji er til

„Við gerðum nú ekki ráð fyrir þessu svo þetta kom okkur mjög á óvart,“ segja þær Áslaug Þorvaldsdóttir og Justyna Jasinska sem voru á dögunum heiðraðar í vinnunni fyrir að eiga um þessar mundir tíu ára starfsafmæli á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þær eru báðar mjög góð dæmi þess að hægt sé að vaxa í starfi…Lesa meira

true

Undankeppni Nótunnar í Borgarnesi á laugardag

Næstkomandi laugardag klukkan 14 verða haldnir svæðistónleikar í Hjálmakletti í Borgarnesi sem jafnframt eru undankeppni fyrir landskeppni Nótunnar sem haldin verður 6. apríl í Hofi á Akureyri. Í Borgarnesi keppa fulltrúar tónlistarskóla af Vesturlandi og Vestfjörðum.Lesa meira

true

Nocturnal Blood er svar við væmni í vampírubókmenntum

Skagakonan Villimey Mist Sigurbjörnsdóttir hefur frá unga aldri verið heilluð af vampírum og þeim sagnaheimi sem umlykur þær. Hún þakkar eldri bróður sínum, Hafsteini Mar Sigurbjörnssyni áhugann, en hann var duglegur við að kynna hana fyrir allskyns vampírum eins og Drakúla greifa sem varð hvað frægastur í skáldsögu Bram Stoker og fjöldi annarra skáldsagna byggir…Lesa meira

true

Sýklalyfjaónæmi er til staðar í íslensku búfé

Vöktun Matvælastofnunar á sýklalyfjaónæmi í kjöti og dýrum árið 2018 sýnir að sýklalyfjaónæmi er til staðar í íslensku búfé og að horfa þurfi til fleiri þátta en innflutnings til að sporna við frekari útbreiðslu. Í tilkynningu frá Matvælastofnun er þó tekið fram að ónæmi fyrir sýklalyfjum í íslensku búfé er minna en í flestum Evrópulöndum,…Lesa meira

true

Öryrkjar skrifa ekki uppá tillögur um nýtt framfærslukerfi

Ríkisstjórnin setti á síðasta ári á stofn samráðshóp um breytt framfærslukerfi almannatrygginga. Nú eru komin fram lokadrög að skýrslu hópsins. Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands var meðal þátttakenda í starfi hópsins. „ÖBÍ hefur tekið þá afstöðu að skrifa ekki undir skýrsluna. Það er gert af þeirri ástæðu að lausir endar í því starfi eru…Lesa meira

true

KFUM og K með skeytasölu á Akranesi

KFUM og K á Akranesi mun á næstu vikum, á fermingardögum á Akranesi, selja heillaóskaskeyti. Salan verður að þessu sinni á Reiðhjólaverkstæði Axels Gústafssonar við Merkigerði 2. Hægt er að panta skeyti með að hringja í síma 896-1979 eða koma á verkstæðið. Opið verður alla sunnudaga sem fermt verður á milli klukkan 10 og 18.…Lesa meira