Fréttir

true

Línubátum hefur fjölgað sem landa í Snæfellsbæ

Þrátt fyrir að leiðindaveður að undanförnu hefur verið nóg að gera í höfnum Snæfellsbæjar. Í morgun kom línubáturinn Páll Jónsson GK inn til löndunar í Ólafsvík. Starfsmenn Fiskmarkaðar Snæfellsbæjar sáu um löndunina. Að sögn Andra Steins Benediktssonar framkvæmdastjóra er aflinn um 73 tonn og verður honum öllum ekið til Grindarvíkur til vinnslu hjá Vísi ehf.…Lesa meira

true

Sunnlenskir bændur fjölmenntu á fund vegna innflutnings landbúnaðarvara

Um 250 manns sóttu opinn fund sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hélt í gærkvöldi í félagsheimilinu Þingborg á Suðurlandi. Tilefni fundarins var frumvarp sem ráðherrann hefur lagt fram og birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda varðandi innflutning á m.a. ófrystu kjöti. Með frumvarpinu telur ráðherra sig vera að bregðast við dómum Hæstaréttar Íslands…Lesa meira

true

Dreifbýlið í Grundarfirði tengt ljósleiðara

Íbúar Útsveitarinnar í Grundarfjarðarbæ geta nú tengst ljósleiðaranum. Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að ófyrirséðar tafir hafi orðið í desember og janúar á blæstri síðasta hluta ljósleiðaralagnar. Ástæðan mun vera sú að nýlegt rör í eigu Mílu laskaðist svo þurfti að gera við það. Tenging komst á í lok janúarmánaðar og því geta Útsveitungar tengst…Lesa meira

true

Skákin notuð til að draga nemendur frá símunum

Bragi Þorfinnsson, stórmeistari í skák, sótti Grunnskóla Stykkishólms nýverið heim og bauð upp á tveggja daga skákkennslu í öllum bekkjum skólans. Skákkennslunni lauk svo með taflmóti. Forsaga skákkennslunnar í grunnskólanum er sú að Íslandsmeistaramótið í atskák var haldið í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi í desember síðastliðnum. Safnið er sem kunnugt er sambyggt grunnskólanum. Þar buðu fulltrúar…Lesa meira

true

Leikflokkur Húnaþings vestra frumsýnir Hárið í apríl

Síðastliðið haust sameinuðust Leikdeild ungmennafélagsins Grettis á Laugarbakka og Leikflokkurinn á Hvammstanga undir nafninu Leikflokkur Húnaþings vestra. Eftir sameininguna var farið af stað með barnasýninguna Snædrottningin undir leikstjórn Gretu Clough, í þýðingu Sigurðar Líndals Þórissonar. „Heppnaðist sú sýning mjög vel og má geta þess að með sýningunni var vígður ljósabúnaður sem leikflokkurinn og Félagsheimilið Hvammstanga…Lesa meira

true

Valdís Þóra komst ekki áfram

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, komst ekki áfram á Australian Ladies Classic mótinu sem hófst í Ástralíu fyrir helgi. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi. Valdís lék fyrstu tvo hringina í mótinu á samtals níu höggum yfir pari og var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Einkum náði…Lesa meira

true

Kútmagakvöld Lions var haldið í Grundarfirði

Lionsklúbbur Grundarfjarðar hélt árlegt kútmagakvöld í sal Fjölbrautaskóla Snæfellinga laugardaginn 23. febrúar. Tilgangurinn með kútmagakvöldinu var fyrst og fremst að safna fé fyrir viðbyggingu Dvalarheimilisins Fellaskjóls sem nú er í byggingu. Frábær mæting var á viðburðinn enda Lionsmenn þekktir fyrir að bera fram dýrindis fiskmeti ásamt kútmögunum alræmdu. Einnig voru hinir ýmsu lukkuleikir á dagskrá…Lesa meira

true

Á fimmta hundrað mál á skrifstofu byggingafulltrúa

Á skrifstofu byggingafulltrúa Borgarbyggðar eru fjölmörg verkefni til afreiðslu og dreifast þau um allt sveitarfélagið. Sem dæmi um stór verkefni sem nú eru í gangi, eða langt komin á byggingarstigi, er fjölbýlishús og hótel við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi, stækkun og endurbætur á Grunnskóla Borgarness, stækkun Hótel Hamars, nýtt verslunarhús við Digranesgötu 4 og stækkun…Lesa meira

true

Kepptu í fyrsta sinn í A deild meistaraflokks

Bikarmótið í hópfimleikum var haldið á Selfossi um síðustu helgi. Fimleikafélag Akraness sendi meistaraflokk kvenna til keppni í mótinu og var þetta í fyrsta sinn sem lið frá ÍA keppir í A deild meistaraflokks. Fór svo að lokum að ÍA hafnaði í 4. sæti á mótinu með 42.500 stig. Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari með…Lesa meira

true

Brianna Banks hætt hjá Skallagrími

Bandaríska körfuknattleikskonan Brianna Banks hefur yfirgefið Skallagrím. Mun hún því ekki leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild kvenna það sem eftir lifir tímabils. Það er Karfan.is sem greinir frá. Þar er haft eftir Ragnheiði Guðmundsdóttur, sem situr í meistarflokksráði hjá Skallagrími, að Brianna hafi gerst sek um samningsbrot. Í framhaldi af því hafi hún…Lesa meira