Fréttir

true

Skallagrímskonur töpuðu gegn Stjörnunni

Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar eftir hörkuleik gegn Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Garðabæ í gær og lokatölur urðu 73-62, heimakonum í vil. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu 4-8 þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Þá tók Stjarnan forystuna og leiddi 16-14 eftir upphafsfjórðunginn. Mikið jafnræði var með…Lesa meira

true

Öruggur sigur Snæfells í toppslagnum

Snæfell sigraði KR örugglega, 64-46, í toppslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærdag. Snæfell byrjaði leikinn mun betur og hélt KR í aðeins einu stigi fyrstu sex mínútur leiksins. Eftir það náðu gestirnir góðum spretti og minnkuðu muninn í 14-12 en Snæfellskonur leiddu 18-14 að fyrsta leikhluta loknum. Annar leikhluti…Lesa meira

true

Guðlaug við Langasand tekin í notkun

Í gær var Guðlaug við Langasand formlega tekin í notkun. Félagar úr Sjóbaðsfélagi Akraness voru fyrstir til að vígja laugina að aflokinni stuttri sjóferð. Meðan sjósundsfólkið gekk í sjóinn flutti Ragnar Sæmundsson formaður skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar ávarp og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri fór yfir sögu mannvirkisins, kostnað og fjármögnun. Loks var klippt á borða…Lesa meira

true

Byggingarleyfi fyrir legsteinasafn fellt úr gildi

Síðastliðinn fimmtudag kvað úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála upp úrskurð í kærumálum sem snerta deiliskipulag fyrir Húsafell II í Borgarfirði og veitingu byggingarleyfis fyrir listaverkahús og pakkhús á deiliskipulögðu svæði. Eigendur fasteignar á samliggjandi lóð, Gamla bæ á Húsafelli I, kærðu ákvörðun byggingafulltrúa Borgarbyggðar frá 12. janúar 2016 að veita leyfi fyrir byggingu húss undir legsteinasafn…Lesa meira

true

Blöð Skessuhorns til jóla

Nú í jólamánuðinum eiga tvö blöð eftir að koma út af Skessuhorni. Næsta blað er miðvikudaginn 12. desember og verður með hefðbundnu sniði. Jólablað Skessuhorns kemur svo út miðvikudaginn 19. desember. Að vanda verður það stærsta blað ársins. Auglýsendum og þeim sem þurfa að koma að efni í Jólablaðið er bent á að vera tímanlega…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á að grunur er um salmonellu í ferskum kjúklingi frá Matfugli. Dreifing hefur verið stöðvuð og varan innkölluð. Innköllunin á einungis við um eftirfarandi rekjaleikanúmer: Vörumerki: Kjúklingurinn er m.a. seldur undir merkjum Bónusar, Krónunnar og Ali Framleiðandi/heimilisfang: Matfugl ehf. Völuteigi 2, Mosfellsbæ Rekjanleikanúmer: 215-18-44-1-06 Dreifing: Verslanir Bónusar, Krónunnar, Fjarðarkaupa og Iceland…Lesa meira

true

Lilja Rannveig tekur sæti á þingi

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir frá Bakkakoti í Stafholtstungum tók í dag sæti á Alþingi í fjarveru Ásmundar Einars Daðasonar félagsmálaráðherra. Lilja Rannveig skipaði fjórða sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í NV kjördæmi við síðustu kosningar, en 1. varamaður er Stefán Vagn Stefánsson á Sauðárkróki. Lilja Rannveig er 22 ára háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna (SUF).Lesa meira

true

Oddviti Miðflokksins á Akranesi segir sig úr flokknum

Helga K Haug Jónsdóttir, sem leiddi lista Miðflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akranesi í vor, hefur sagt sig úr flokknum. Með bréfi sem hún hefur sent forystu Miflokksins segist hún miður sín yfir hegðun manna í svokölluðu Klausturbarsmáli. Segir hún að þingmenn eigi skilyrðislaust að segja af sér þingmennsku og kalla til varamenn. Bréf Helgu er…Lesa meira

true

Trúnaðarráð mótmælir uppsögnum Norðuráls

„Vegna uppsagna á 20 starfsmönnum Norðuráls þá vill trúnaðaðarráð stéttarfélagana mótmæla harðlega framgöngu yfirstjórnar Norðuáls sem ítrekað er að brjóta kjarasamning stéttarfélaganna og Norðuráls,“ segir í tilkynningu frá trúnaðarráði starfsmanna Norðuráls. „Brotin er grein 8.09.1 þar sem segir að tilkynna skuli trúnaðarmönnum með fyrirvara verulegar breytingar á rekstri og vinnutilhögun og það var ekki gert.…Lesa meira