Fréttir

true

Reglugerðir er lúta að þjónustu við fatlað fólk

Birtar hafa verið fimm nýjar reglugerðir félags- og jafnréttismálaráðherra sem allar snúa að því að bæta þjónustu við fatlað fólk og efla eftirlit með aðbúnaði á heimilum og stofnunum sem þjóna fötluðum. Reglugerðirnar eru settar með stoð í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir sem tóku gildi 1. október síðastliðinn. Í fyrsta…Lesa meira

true

Þórdís Kolbrún talin ein af leiðtogum framtíðarinnar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, er ein af hundrað stjórnmálaleiðtogum framtíðarinnar að mati tímaritsins Apolitical. Tímaritið sendi á miðvikudag frá sér listann „100 Future Leaders: The World‘s Most Influental Young People in Government“ eða „100 leiðtogar framtíðarinnar; áhrifamesta unga fólkið í ríkisstjórnum“ ef snara ætti heiti listans yfir á íslensku. Í inngangi…Lesa meira

true

„Ég er alltaf stolt fötluð kona“

“Gerendur í þessu tilviki eru valdhafar. Alveg óháð því hvar gerendur eru í valdastiganum er ofbeldi af þeirra hálfu alvarlegt. Það er hinsvegar sérstaklega hættulegt þegar fólk í valdastöðum viðhefur hatursorðræðu,” skrifar Freyja Haraldsóttir meðal annars í aðsendri grein á vef ÖBÍ, sem einnig er birt hér á vefnum undir aðsendar greinar. “Í fyrsta lagi…Lesa meira

true

Loka skilafrestur veglyklanna er í dag

Starfsmenn Spalar hafa nú greitt viðskiptavinum félagsins út verulegan hluta þeirra fjármuna sem þeir áttu á áskriftarreikningum sínum, það er andvirði ónotaðra ferða á veglykli og prentaðra afsláttarmiða. Þegar ríkið tók við rekstri Hvalfjarðarganga 1. október síðastliðinn áttu viðskiptavinir inni sem nemur 231 milljón króna. „Viðskiptavinir Spalar eru hvattir til að skila veglyklum og afsláttarmiðum…Lesa meira

true

Slæm færð víða um Vesturland

Nú er þæfingsfærð og stórhríð í Staðarsveit á Snæfellsnesi og ófært er á Fróðárheiði. Hálkublettir, snjóþekja og éljagangur er á öðrum leiðum en þó er greiðfært í uppsveitum Borgarfjarðar. Stórhríð er í Miðdölum og í Svínadal. Hálka og snjókoma er Holtavörðuheiði.Lesa meira

true

Forsala hefst í dag á útgáfutónleika Kórs Akraneskirkju

Kór Akraneskirkju gefur út geisladisk í desember og fagnar því með útgáfutónleikum í Vinaminni laugardaginn 15. desember klukkan 16:00. Á diskinum má finna úrval kórlaga sem kórinn hefur flutt í gegnum tíðina. Þetta er ekki jólatónlist en allar aðrar árstíðir koma við sögu. Textar eru á íslensku og má finna ljóð og þýðingar eftir Akurnesingana…Lesa meira

true

Unnið við grjótvarnargarða víða í Snæfellsbæ

Þessa dagana er unnið að sjóvörnum víða um Snæfellsbæ. Áætlaður kostnaður við sjóvarnargarða er 35,1 milljón króna og skiptist kostnaðurinn á milli ríkis og sveitarfélagsins þannig að 87,5% fellur á ríkið og 12,5% á Snæfellsbæ. Undir Ennisbökkum er Grjótverk ehf. frá Hnífsdal að endurhlaða 180 metra garð. Áður en verkið hófst þurfti að hreinsa úr…Lesa meira

true

Bannað að birta tekjuupplýsingar

Vefsíðunni Tekjur.is hefur nú verið lokað að kröfu Persónuverndar sem jafnframt krefst þess að öllum upplýsingum sem þar var að finna verði eytt. Það er niðurstaða stofnunarinnar að óheimilt sé að birta upplýsingar úr skattskrá með þessum hætti. Vefsíðan var opnuð í október og var gegn áskriftargjaldi hægt að nálgast upplýsingar um tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt…Lesa meira

true

Búið að opna fyrir umferð um Kjalarnes

Tilkynning var að berast frá Vegagerðinni um að búið er að opna fyrir umferð um Kjalarnes. Þar er engu að síður ennþá bálhvasst segir í tilkynningunni. Vegurinn hefur verið lokaður frá því í gærkvöldi vegna norðaustan hvassviðris.Lesa meira