Fréttir

true

Útvarp Akranes í loftið á tvöföldu afmælisári

Þegar aðventan gengur í garð stilla Akurnesingar viðtæki sín á FM 95,0 og hlýða á útsendingar Útvarps Akraness. Engin undantekning verður þar á að þessu sinni, því Útvarp Akranes fer í loftið á morgun, föstudaginn 30. nóvember, og stendur yfir þar til síðdegis fyrsta sunnudag í aðventu, 2. desember. Dagskráin er að vanda með fjölbreyttu…Lesa meira

true

Lionsmenn klárir í ljósakrossana

Nú í upphafi aðventunnar, eins og ár hvert, þá munum við Lionsmenn á Akranesi undirbúa útleigu okkar á ljósakrossum. Við höfum notið velvilja bæjarbúa og þeirra sem utan bæjarins búa í gegnum árin í þessu verkefni okkar. Í mörg ár höfum við getað keypt tæki og gefið sjúkrahúsinu á grunni velvilja þeirra sem leigja af…Lesa meira

true

Litla stúlkan með eldspýturnar í Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar sýnir nú um helgina söngleikinn Litla stúlkan með eldspýturnar, sem byggður er á sögu H.C. Andersens. Tónlistina samdi Keith Strachan. Halldóra Rósa Björnsdóttir leikstýrir og Theodóra Þorsteinsdóttir sér um tónlistarstjórn. Birna Þorsteinsdóttir leikur með á píanó og Ólafur Flosason leikur á óbó í nokkrum lögum. Með hlutverk litlu stúlkunnar fer Kolfinna Dís…Lesa meira

true

Hvassviðri en tíðindalítil nótt

Þrátt fyrir nokkuð hvassviðri víðast hvar í landshlutanum var gærkvöldið og nóttin róleg hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Lögregla aðstoðaði íbúa í húsi á Akranesi við að loka og festa glugga sem hafði fokið upp í rokinu. Þá var kallað eftir aðstoð lögreglu vegna vinnupalls sem var að losna upp í vindinum í morgun, einnig á…Lesa meira

true

Rauðar tölur á markaði þar sem ekki verður af samruna flugfélaga

Fallið hefur verið frá kaupum Icelandair Group á WOW air, en kaupsamningur var undirritaður 5. nóvember síðastliðinn með fyrirvara um samþykki hluthafa. „Þetta er sameiginleg niðurstaða beggja aðila,“ segir í tilkynningu frá Icelandair til Kauphallarinnar í dag. Markaðurinn tekur þessum tíðindum með þeim hætti að gengi hlutabréfa í öllum skráðum félögum í Kauphöllinni hefur hríðfallið…Lesa meira

true

Ekki tekur að lægja fyrr en laust fyrir hádegi

Vegurinn um Kjalarnes er áfram lokaður sökum hvassviðris. Sömuleiðis er þjóðvegurinn í Staðarsveit lokaður og um Fróðárheiði, en við Hraunsmúla mælast nú 48 m/sek vindhraði og ekkert ferðaveður. Við Hafnarfjall er nú 31 m/sekúndu. Á öðrum leiðum á Vesturlandi er yfirleitt hálka og óveður, þótt vegirnir séu ekki lokaðir. Veðurstofan spáir því að áfram verði…Lesa meira

true

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar heldur tvenna jólatónleika

Tvennir Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar verða haldnir í menningarhúsinu Hjálmakletti í Borgarnesi fimmtudaginn 13. desember nk. kl. 17:00 og 20:30. Þar koma fram meðlimir hljómlistarfélagsins, ungir og upprennandi tónlistarmenn í Borgarfirði, barnakór auk Pálma Gunnarssonar. „Tónleikarnir eru ekki reknir í hagnaðarskyni og fer allur rekstrarafgangur í sjóð sem verður notaður til þess að styðja við bakið…Lesa meira

true

Lagt til að almannavarnanefnd Vesturlands hafi starfsmann

„Lagt hefur verið til að almannavarnanefnd Vesturlands hafi yfir að ráða starfsmanni í 50% starfi til reynslu á næsta ári. Málið er núna í ferli hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og viðkomandi sveitarfélögum,“ segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Vesturlandi og formaður almannavarnanefndar Vesturlands í samtali við Skessuhorn. „Hlutverk starfsmannsins yrði að halda utan um starf…Lesa meira

true

Leik Skallagríms og Keflavíkur frestað

Leik Skallagríms og Keflavíkur í Domino‘s deild kvenna, sem fara átti fram í Borgarnesi í kvöld, hefur verið frestað vegna veðurs. Leik Tindastóls og Fjölnis í 1. deild kvenna og leik Sindra og Hattar í 1. deild karla hefur einnig verið frestað af sömu ástæðu. Unnið er að því að finna leikjunum nýja leikdaga, að…Lesa meira

true

Hrútaskráin er eitt mest lesna blað bænda

Eitt af mest lesnu blöðum á landsbyggðinni er einatt Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna. Blaðið er gefið út að hausti, tímanlega áður en fengitími gengur í garð, þannig að bændur og búfjáreigendur geti myndað séð skoðun á hvaða rútar verða valdir til kynbóta. Skráin er kynnt á bændafundum sem nú standa yfir. Meðal annars er fundur í Búðardal…Lesa meira