Fréttir

true

Safnað fyrir endurhæfingartæki á Jólabingói Kvenfélagsins 19. júní

Hið árlega jólabingó Kvenfélagsins 19. júní fer fram í sal Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 30. nóvember klukkan 20. Þessi viðburður hefur nú verið haldinn árlega í tæp fimmtíu ár en Kvenfélagið 19. júní á einmitt 80 ára afmæli á þessu ári. Margir nýir meðlimir hafa gengið í félagið síðustu misserin sem er nú fjölmennasta…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir næstu tvo daga

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið frá því um nónbil á morgun, miðvikudag, og fram á fimmtudagskvöld. Í viðvörun segir: “Það gengur í norðaustan 15-23 m/s um miðjan dag á miðvikudag. Hvassast verður á Snæfellsnesi og við Hafnarfjall þar sem vindhviður geta náð 45 m/s. Þar verður varasamt að vera á ferð…Lesa meira

true

Enn og aftur skáka Sveinbjörn og Lárus öðrum

Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gær. Forystu öll kvöldin höfðu félagarnir Sveinbjörn Eyjólfsson og Lárus Pétursson. Uppskáru þeir 59,7% skor en í öðru sæti urðu Borgnesingarnir Rúnar Ragnarsson og Guðjón Karlsson með 57,4%. Þriðju urðu gömlu kempurnar úr Stafholtstungunum, þeir Kristján F Axelsson og Jóhann Oddsson með 53,6% og sjónarmun á eftir þeim í fjórða…Lesa meira

true

Auglýsa stöðu forstjóra HVE

Velferðarráðuneytið hefur auglýst embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands laust til umsóknar. Heilbrigðisráðherra mun setja í stöðuna til eins árs og stefnt á að það verði gert í síðasta lagi 1. febrúar næstkomandi. Settur forstjóri HVE er nú Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir en Guðjón Brjánsson alþingismaður er í leyfi frá störfum forstjóra og situr á þingi. Fimm ára…Lesa meira

true

Tilkynning um jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness

Árleg jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram fimmtudaginn 13. desember frá klukkan 13-17 í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25a. Tekið verður á móti umsóknum dagana 29. og 30. nóvember og 3. til 6. desember á milli klukkan 11 og 13 í símum 859-3000 (María) og 859-3200 (Svanborg). Alllir umsækjendur þurfa að skila inn staðgreiðsluskrá sem…Lesa meira

true

Ari hættur með Skallagrím

Ari Gunnarsson hefur látið af þjálfun kvennaliðs Skallagríms. Leikurinn gegn Breiðabliki sl. laugardag var því hans síðasti við stjórnvölinn. Leit er hafin að nýjum þjálfara, að því fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. „Meistaraflokksráð kvenna og Ari Gunnarsson hafa komist að samkomulagi um að Ari hætti þjálfun meistaraflokks kvenna. Meistaraflokksráð þakkar Ara fyrir störf…Lesa meira

true

Starfsfólk situr námskeið í átthagafræði

Fyrirtækið GRun í Grundarfirði er með í gangi námskeiðaröð fyrir starfsfólk sitt, en margt af því er af erlendu bergi brotið. Fyrirtækið fékk í síðustu viku nýsköpunarverðlaun Vesturlands fyrir uppbyggingu á nýrri bolfisksvinnslu. Við það tækifæri sagði Rósa Guðmundsdóttir framleiðslustjóri m.a.:  „Við fengum Símenntundarmiðstöðina á Vesturlandi með okkur í lið og héldum námskeið þar sem…Lesa meira

true

Litla stúlkan með eldspýturnar í Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar sýnir nú um helgina söngleikinn Litla stúlkan með eldspýturnar, sem byggður er á sögu H.C. Andersens. Tónlistina samdi Keith Strachan. Halldóra Rósa Björnsdóttir leikstýrir og Theodóra Þorsteinsdóttir sér um tónlistarstjórn. Birna Þorsteinsdóttir leikur með á píanó og Ólafur Flosason leikur á óbó í nokkrum lögum. Með hlutverk litlu stúlkunnar fer Kolfinna Dís…Lesa meira

true

Blóði safnað í dag á Hvanneyri og í Borgarnesi

Í dag, þriðjudaginn 27. nóvember verður bíll Blóðbankans á ferðinni í Borgarbyggð. Klukkan 10:00-12:30 verður bíllinn við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Frá klukkan 14-17 verður hann svo við N1 í Borgarnesi. Allir eru velkomnir og hvattir til að gefa blóð.Lesa meira