Fréttir

true

Valdís Þóra í 38. sæti stigalistans

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, féll úr leik eftir tvo hringi á lokamóti Evrópumótaraðar kvenna sem fram fór á Spáni um helgina. Hún lék bæði fyrsta og annan hring á 76 höggum, eða á samtals tíu yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Til þess hefði hún þurft að leika á fimm…Lesa meira

true

Chaz með 53 stig í sigri ÍA

Skagamenn eru komnir aftur á sigurbraut í 2. deild karla í körfuknattleik eftir sigur á Leikni R. í sjöundu umferð deildarinnar. Leikur ÍA og Leiknis R. fór fram í Kennaraháskólanum í Reykjavík síðastliðið föstudagskvöld. Eftir að Leiknir tók forystuna kom ÍA til baka og vann að lokum 29 stiga sigur, 94-123 í leik þar sem…Lesa meira

true

Síminn komin aftur í Omnis Akranesi

Síminn og Omnis verslun á Akranesi hafa skrifað undir endursölusamning sem þýðir að Omnis mun verða umboðsaðili Símans á Akranesi. „Omnis verslun mun sinna sölu og þjónustuhlutverki fyrir Símann ásamt almennum ráðleggingum um vörur og þjónustur Símans auk afhendingu búnaðar. Omnis Verslun hefur áður sinnt þessu hlutverki og þekkir því vel til þeirra vara og…Lesa meira

true

Snæfellskonur fengu skell í Keflavík

Snæfell tapaði stórt gegn Keflavík, 82-55, þegar liðin mættust í níundu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Keflavík á sunnudagskvöld. Keflavík náði yfirhöndinni snemma leiks og komust í 16-4 áður en Snæfell tók leikhlé. Eftir það náðu Snæfellskonur aðeins betri tökum á leiknum, voru grimmar fram á við og tókst að minnka…Lesa meira

true

Skallagrímskonur rændar sigrinum

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar Breiðabliki í níundu umferð Domino‘s deildar kvenna á laugardagskvöld. Leikið var í Kópavogi og lokatölur urðu 85-79, þar sem Breiðabliki tókst að stela sigrinum á lokamínútunum eftir að Skallagrímur hafði leitt nánast frá upphafi. Var þetta fyrsti sigur Kópavogsliðsins í deildinni í vetur. Breiðablik skoraði fyrstu stigin en Skallagrímskonur…Lesa meira

true

Þurftu að nauðlenda á Reykhólaflugvelli

Á laugardaginn kom upp bilun í flugvélinni TF-DVD sem þeir Ásmundur Guðmundsson og Edward Finnsson flugu. Þeir voru á leið á Hornstrandir en urðu að nauðlenda vegna rafmagnsleysis og bilunar í vélinni. Halldór Jónsson, sem á flugvélina TF-FRK, fylgdi þeim inn til aðstoðar og stuðnings og gekk lendingin vel. Þeir Ásmundur og Edward leituðu til…Lesa meira

true

Fjórðungur er nýr hlaðvarpsþáttur um körfubolta

Hlaðvarpsþátturinn Fjórðungur er nýr þáttur í íslenskri hlaðvarpsflóru. Þar er íslenskur körfuknattleikur til umfjöllunar. Umsjón með þættinum hefur Borgnesingurinn Heiðar Lind Hansson, ásamt Árna Jóhannssyni. Báðir eru þeir sagnfræðingar að mennt, vinnufélagar á Þjóðskjalasafni Íslands og miklir áhugamenn um körfubolta. „Útvarpsformið hefur gengið í endurnýjun lífdaga og þessi miðill öðlast nýtt líf eftir tilkomu snjallsímanna.…Lesa meira

true

Skrifað undir átta ára leigusamning um Hernámssetrið

Guðjón Sigmundsson, staðarhaldari á Hernámssetrinu Hlöðum, og Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar skrifuðu á fimmtudaginn undir leigusamning til átta ára fyrir félagsheimilið og tjaldvæðið að Hlöðum. Áður en skrifað var undir samninginn þakkaði Linda Gauja fyrir að halda til haga öllum þessum munum og sögu sem tengist hernáminu í Hvalfirði og landinu öllu. Hún sagðist…Lesa meira

true

Draumur sem varð að veruleika

Fyrr í mánuðinum voru tíu ár liðin frá því vefsíðan mömmur.is fór fyrst í lofið en það er Skagakonan Hjördís Dögg Grímarsdóttir sem stendur bakvið síðuna. Á heimasíðunni má finna skemmtilegar skref fyrir skref hugmyndir að því hvernig hægt er að gera hinar ýmsu veitingar fyrir ólík tilefni. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti Hjördísi rétt fyrir helgi…Lesa meira

true

Knattspyrna og golf eru stærstu íþróttagreinarnar

Þeir sem stunda golfíþróttina hér á landi hafa aldrei verið fleiri en þeir eru nú, en 17.165 einstaklingar eru í dag skráðir í golfklúbba landsins og hefur fjölgað um 150 kylfinga frá í fyrra. Knattspyrnan er stærsta einstaka íþróttagreinin með tæplega 23.000 félaga innan KSÍ, en næst kemur Golfsambandið með rúmlega 17.000 félaga. Þetta kom…Lesa meira