Fréttir

true

Dimmiterað í FVA

Það var fríður flokkur væntanlegra útskriftarnema sem bauð starfsfólki Fjölbrautaskóla Vesturlands upp á morgunverðarhlaðborð klukkan 8 í morgun. Að því búnu var brunað í óvissuferð. Í kvöld er svo ball í Gamla kaupfélaginu. Meðfylgjandi mynd er fengin af Facebook síðu skólans en þar má sjá nokkrar útgáfur af Batman og Catwoman.Lesa meira

true

Tuttugu sagt upp hjá Norðuráli

Í morgun var tuttugu starfsmönnum Norðuráls sagt upp störfum. Að sögn Sólveigar Kr. Bergmann upplýsingafulltrúa fyrirtækisins ganga uppsagnirnar þvert á svið og deildir fyrirtækisins. Flestir sem missa vinnu sína tilheyra stoðsviðum og verða störf þeirra lögð niður auk þess sem gerðar verða skipulagsbreytingar. Ákvörðun um uppsagnir nú var, að sögn Sólveigar, tekin í ljósi rekstrarumhverfis…Lesa meira

true

Iðnaður er langstærsta atvinnugreinin á Vesturlandi

Út er komin hjá Byggðastofnun skýrslan Atvinnutekjur 2008-2017 eftir atvinnugreinum og svæðum. Í henni er leitast við að greina hvaða atvinnugreinar standa undir tekjum fólks eftir landssvæðum og hvaða breytingar hafa orðið á tímabilinu frá bankahruni. Meðal helstu niðurstaðna á landsvísu má nefna að atvinnutekjur hækkuðu að raunvirði um 7,4% á milli áranna 2016 og…Lesa meira

true

Breyta krónum í gull í Grundaskóla fyrir Malaví

Á morgun, fimmtudaginn 29. nóvember, er árlegur Malaví markaður í Grundaskóla á Akranesi. Hægt verður að kaupa ýmsar vörur sem nemendur hafa unnið undir leiðsögn kennara síðastliðnar vikur. Öll innkoma af markaðnum rennur óskipt í söfnun fyrir börn í Malavíu. Markaðurinn verður opinn frá kl. 11:45-13:00 og í hádeginu munu nemendur starfrækja sérstakt kaffihús í…Lesa meira

true

Bæjarstjórn unga fólksins fundaði

Í síðustu viku kom bæjarstjórn unga fólksins á Akranesi saman í bæjarþingsal Akraneskaupstaðar. Fundinn sátu einnig bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar og bæjarstjóri. Það var Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar, sem stýrði fundinum. Í bæjarstjórn unga fólksins eiga sæti þau Helgi Hrafn Bergþórsson, fulltrúi nemendafélags Grundaskóla, Embla Ísakesen, fulltrúi nemendafélags Brekkubæjarskóla, Guðjón Snær Magnússon, fulltrúi nemenda við Fjölbrautaskóla…Lesa meira

true

Aðvörun frá Vegagerðinni vegna veðurs

Tilkynning frá Vegagerðinni: Síðdegis og til morguns er spáð ofsaroki með N- og NA-átt, sérstaklega sunnan jökla þar sem verður líka sviptivindasamt.  25-30 m/s á hringveginum frá Lómagnúpi austur á Höfn með hámarki í fyrrmálið.  Hviður um og yfir 50 m/s. Einnig hviður 40-50 m/s undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Hviðuveður á Kjalarnesi og undir…Lesa meira

true

Sérstök hátíðardagskrá á afmæli fullveldisins

Í tilefni af hundrað ára fullveldisafmæli þjóðarinnar verða hátíðartónleikar í Reykholtskirkju laugardaginn 1. desember næstkomandi. Það eru Jónína Erna Arnardóttir píanóleikari og Bergþór Pálsson söngvari sem hafa tekið efnið saman og flytja dagskrá sem þau nefna; „Frá fullveldi til fullveldis,“ næstu daga víðsvegar um héraðið. Á fullveldisdaginn sjálfan, á hátíðartónleikum í Reykholtskirkju, bætast karlakórinn Söngbræður…Lesa meira

true

Mikið hærri vatns- og fráveitugjöld í Borgarnesi

Ómar Örn Ragnarsson íbúi í Borgarnesi vekur með færslu á Facebook athygli á háum vatns- og fráveitugjöldum sem íbúum í Borgarnesi er gert að greiða til Orkuveitu Reykjavíkur. Í ljósi þess að Orkuveita Reykjavíkur er nú rekin með miklum hagnaði stendur til að eigendur fái greiddan 14 milljarða króna í arð á næstu sex árum.…Lesa meira

true

Byrjar að hvessa um hádegið og óveður fram á morgundag

Mjög djúp lægð gengur yfir landið í dag og á morgun. Gul viðvörun er í gildi fyrir allt landið en gera má ráð fyrir að taki að hvessa um hádegisbil í dag um suðvestanvert landið og að veðrið nái hámarki í kvöld, en teygi sig fram á morgundaginn einnig. Hér á Vesturlandi gengur í norðaustan…Lesa meira

true

Framkvæmdum við stækkun Grunnskólans í Borgarnesi miðar vel

Framkvæmdir við stækkun og endurbætur Grunnskólans í Borgarnesi hófust snemma sumars. Eiríkur J Ingólfsson er verktakinn við framkvæmdirnar. Byggður verður nýr fjölnota salur við húsið og eldhús auk þess sem verið er að endurbæta hluta af gamla húsnæðinu. Nýtt þak verður sett á stærsta hluta gamla hússins auk þess sem loftræstikerfi verður komið fyrir og…Lesa meira