Fréttir

true

Heiðarleika er sannarlega enn að finna

Ung kona sem býr í sveitinni skammt ofan við Borgarnes varð fyrir því óláni fyrr í vikunni að missa úr vasa sínum 30 þúsund krónur í peningum. Kallaði hún eftir viðbrögðum samfélagsins og höfðaði til heiðarleika fólks og skrifaði um ólán sitt á íbúasíðunni Borgarnes á Facebook. „Núna langar mig að láta reyna á hversu…Lesa meira

true

Rjómabúið Erpsstaðir er handhafi Fjöreggsins

Rjómabúið Erpsstaðir hlaut í gær Fjöreggið 2018 fyrir frumkvöðlastarf á sviði matvælaferðamennsku og þróun afurða úr eigin framleiðslu. Viðurkenningin er veitt árlega af Matvæla- og næringarfræðafélagi Íslands, með stuðningi Samtaka iðnaðarins, fyrir lofsvert framtak á matvæla- og næringarsviði. Það var Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, sem afhenti Fjöreggið á Matvæladegi MNÍ sem haldinn var sama…Lesa meira

true

Drífa kosin forseti ASÍ

Alþýðusamband Íslands hefur nú í fyrsta skipti í 102 ára sögu félagsins kosið konu til að gegna forystu, en Drífa Snædal var nú rétt í þessu kjörin forseti ASÍ. Hlaut hún 65,8% atkvæða, en mótframbjóðandi hennar Sverrir Mar Albertsson hlaut 34,2%. Kosning varaforseta stendur nú yfir.Lesa meira

true

Dæmdur í farbann vegna gruns um nauðgun

Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Vesturlands frá 22. október sl. þar sem karlmaður með albanskt vegabréf var úrskurðaður í farbann til 19. nóvember nk. Hann er grunaður um nauðgun 22. ágúst í sumar sem átti sér stað á Vesturlandi og sætir rannsókn vegna þess máls. Taldi héraðsdómari yfirgnæfandi lýkur á að maðurinn myndi hverfa…Lesa meira

true

Vökudagar byrjaðir á Akranesi

Menningarhátíðin Vökudagar hófst á Akranesi síðastliðinn miðvikudag og stendur til 4. nóvember. Mjög þétt dagskrá ýmissa menningarviðburða er að finna í dagskrá hátíðarinnar og ástæða til að hvetja íbúa og nágranna að kynna sér hana vel. Dagskrána má m.a. finna í Skessuhorni. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari Skessuhorns tók á nýliðnum dögum.…Lesa meira

true

Borgarbyggð mótmælir framlagðri samgönguáætlun ráðherra

Byggðarráð Borgarbyggðar tók á fundi sínum í gær fyrir tillögu Sigurðar Inga Jóhannsson samgönguráðherra að fimmtán ára samgönguáætlun. Byggðarráð bókaði m.a. í umsögn sinni að litlu er áætlað að verja í vegagerð á Vesturlandi á komandi árum. Þá mótmælir byggðarráð harðlega hversu litlum fjármunum er varið í vegabætur innan sveitarfélagsins á næstu fimmtán árum, ekki…Lesa meira

true

Hrútasýning í Hvalfjarðarsveit

Hrútasýning Búnaðarfélags Hvalfjarðar var haldin föstudaginn 19. október á Eystri-Leirárgörðum. Hún var vel heppnuð, lífleg og spennandi. Veitt voru þrenn verðlaun í þremur flokkum hrúta. Að auki voru veitt ný verðlaun – Heiðarhornið fyrir besta hrút sýningarinnar. Áhorfendur kusu fallegustu gimbrar sýningarinnar. Þrjár gimbrar í efstu sætunum voru síðan boðnar upp og rann afrakstur sölunnar…Lesa meira

true

Jenný Lind lokar snyrtistofunni eftir mánuð

Snyrtistofu Jennýjar Lind í Borgarnesi verður lokað föstudaginn 30. nóvember nk. eftir 29 ára rekstur. Aðspurð um ástæðu lokunarinnar svarar Jenný því að; „einhvern tíman lokar maður.“ Hún segir nú sé einfaldlega komin tímamót. „Starfsumhverfið hefur breyst mikið frá því ég byrjaði og í dag eru áherslurnar orðnar aðrar. Hluti af rekstrinum hefur verið að…Lesa meira

true

Fjölmenni á fjölmenningardegi í Snæfellsbæ

Hinn árlegi Fjölmenningardagur var haldinn í Frystiklefanum í Rifi síðastliðinn laugardag. Björn Hilmarsson forseti bæjarstjórnar setti hátíðna og bauð gesti velkomna. Síðan tók sendiherra Póllands, Gerard Pokruszynski, til máls og hélt stutt ávarp á íslensku og pólsku en Pólverjar eru á eftir Íslendingum fjölmennastir í Snæfellbæ, af þeim 20 þjóðernum sem þar búa. Að þessu…Lesa meira

true

Einmenningsmót í boccia var spilað á Akranesi

Síðastliðinn laugardag var spilað einmenningsmót í boccia í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Það var Íþróttanefnd FEBBN / FAB og FEBAN – Félög eldri borgara í Borgarfirði og Akranesi og nágrenni sem stóð að mótinu en keppnisstjóri var Flemming Jessen. Alls tóku 37 keppendur frá fimm félögum þátt sem er nokkuð færra en undanfarin ár.…Lesa meira