Fréttir

true

Hátt fiskverð vegur að hluta upp gæftaleysi

Sjómenn eru ánægðir þessa dagana vegna góðs fiskverðs á mörkuðum, en hins vegar hefur verið talsverð ótíð á köflum í haust og lítið verið róið. Gott fiskverð hefur hins vegar bætt það að mestu leyti upp. Þessu til marks má nefna að steinbítsverð hefur í haust farið yfir 500 krónur fyrir kílóið en var í…Lesa meira

true

Greinargerð um framvindu sóknaráætlana landshluta

Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál hefur sent frá sér greinargerð um framvindu samninga um sóknaráætlanir landshluta og ráðstöfun fjármuna ársins 2017. Þar kemur m.a. fram að á árinu var unnið að samtals 65 áhersluverkefnum í landshlutunum átta og að 594 verkefni hlutu styrki úr uppbyggingarsjóðum að fjárhæð tæpum 473 milljónum króna. Í gegnum sóknaráætlun Vesturlands var…Lesa meira

true

Samningaviðræður um lúkningu mála vegna Borgarbrautar 55

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í gær kom til afgreiðslu tillaga að lúkningu máls sem snertir fyrirtækin tvö sem hafa starfsemi á lóðinni Borgarbraut 55 í Borgarnesi. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns snýst það mál um athafnalóð þar sem tvö fyrirtæki hafa starfsemi; verslun Líflands annars vegar og Bifreiðaþjónusta Harðar ehf. hins vegar.…Lesa meira

true

Leikskólinn Klettaborg er 40 ára í dag

Í dag eru 40 ár frá því leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi var fyrst opnaður. Af því tilefni var mikið húllumhæ í leikskólanum í dag þegar blaðamaður Skessuhorns leit í heimsókn. Börnin mættu ýmist í sínu fínasta pússi eða búningum í tilefni dagsins og gæddu sér á afmælisköku og höfðu gaman saman. Klukkan 15 verður leikskólinn…Lesa meira

true

Opið fyrir umsóknir í viðskiptahraðal á sviði ferðaþjónustu

Startup Tourism er viðskiptahraðall sem sérsniðinn er að þörfum nýrra fyrirtækja á sviði ferðaþjónustu. Verkefninu er ætlað að veita viðskiptahugmyndum faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra. Opið er fyrir umsóknir í hraðalinn til 3. desember næstkomandi.  Næsti Startup Tourism áfangi hefst 14. janúar 2019 og…Lesa meira

true

Brú komin yfir Norðlingafljót við Helluvað

Í gærkvöldi var ný brú reist yfir Norðlingafljót ofan við Helluvað á Arnarvatnsheiði. Búið var að steypa veglega brúarstöpla á hraunkantinn sitthvorum megin við ána en sjálf brúin var sett saman á landi og hífð á sinn stað með 250 tonna krana. Áætlað er að um næstu mánaðamót ljúki vinnu við brúna og vegagerð. Það…Lesa meira

true

Sigur eftir æsispennandi lokamínútur

Skallagrímskonur kræktu í fyrstu stig vetrarins í Domino‘s deild kvenna með naumum sigri á Breiðabliki í Borgarnesi í gær, 76-75. Borgnesingar höfðu undirtökin í upphafi leiks, komust í 11-2 og höfðu átta stiga forskot að loknum fyrsta leikhluta, 25-17. Bæði lið léku þéttan varnarleik í öðrum fjórðungi og stigamunurinn breyttist lítið. Þegar flautað var til…Lesa meira

true

Vodafone vill leggja af fjarskiptasamband í Hítardal

Finnbogi Leifsson bóndi í Hítardal skrifaði Borgarbyggð bréf í lok síðasta mánaðar vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í fjarskiptamálum á jörð hans. Lagði hann máli sínu til stuðnings fram bréf frá fjarskiptafyrirrtækinu Vodafone þar sem honum var tilkynnt að fyrirtækið muni leggja af þráðlaust fjarskiptakerfi Lofthraða/eMax um komandi áramót. Afleiðing þess verður að…Lesa meira

true

„Draumurinn er að geta lifað á þessu“

Ljósmyndarinn og kvikmyndagerðakonan Birta Rán Björgvinsdóttir situr sjaldan auðum höndum og gerir í því að skora á eigin sköpunargleði eins oft og reglulega og hún getur. „Ég get ekki verið að gera það sama dag eftir dag. Ég vil fjölbreytni og ég sækist í hana. Það að geta gert mismunandi hluti á hverjum einasta degi,…Lesa meira