Fréttir

true

Býður upp á krakkajóga á Akranesi

Rósa Björk Árnadóttir hefur verið að bjóða upp á krakkajóga á Akranesi fyrir krakka á aldrinum 7-13 ára. Hún er menntaður heilsumarkþjálfi og krakka jógakennari frá Childplay Yoga og Little Flower Yoga auk þess sem hún er kennari í Kundalini jóga. Á námskeiðunum kennir hún börnum jóga í gegnum leik og tónlist. „Ég nota tónlistina…Lesa meira

true

Framkvæmdir við frístundamiðstöð á Akranesi ganga vel

Framkvæmdir við nýja frístundamiðstöð við Garðavöll á Akranesi hófust seinni hluta janúarmánaðar. Byrjað var að grafa fyrir húsinu í kjölfarið og voru fyrstu veggeiningar reistar á vormánuðum. „Hér hefur allt verið á fleygiferð síðan fyrsta skóflustungan var tekin í janúar og nú er svo komið að framkvæmdum utanhúss er nánast lokið og framkvæmdir inni eru…Lesa meira

true

Mikil breyting á veginum um Saurbæ í Dölum

Eins og vegfarendur í Saurbæ í Dölum urðu varir við á ferðum sínum þar síðastliðinn vetur og í sumar voru þar miklar vegaframkvæmdir. Þar voru starfsmenn Borgarverks að störfum en vegurinn var breikkaður og byggður upp á um 5,7 kílómetra kafla. Þá voru vegaxlir jafnaðar og kantarnir gerðir flatari til að auka öryggi vegfarenda. Verkið…Lesa meira

true

Með alltof þunga kerru í eftirdragi

Lögreglan á Vesturlandi hafði í liðinni viku afskipti af ökumanni bifreiðar með kerru í eftirdragi í þann mund sem henni var ekið út á Snæfellsnesveg. Vakti athygli lögreglumanna að bifreiðin virtist láta illa af stjórn. Stórt og mikið timburbúnt var á kerrunni, óbundið og stóð langt aftur af henni. Þar að auki var kerran ljóslaus…Lesa meira

true

Fór járnkarlinn á tæpum ellefu klukkustundum

Skagamaðurinn Almar Viðarsson er einn af 18 Íslendingum sem tóku þátt í járnkarlskeppninni í Barcelona á Spáni um síðustu helgi. Keppnin er ein fjölmennasta járnkarlskeppni heimsins, en þátttakendur voru rúmlega þrjú þúsund talsins. Járnkarlinn í Barcelona samanstóð af 3,86 km sundi í sjó. Að því loknu tóku við 180,25 km langar hjólreiðar og að endingu…Lesa meira

true

Mótmæla R-leið harðlega

Nokkuð hefur verð tekist á um framtíðar staðsetningu nýs Vestfjarðavegar um Reykhólasveit. Vegagerðin hefur sagt svokallaða ÞH-leið um Teigsskóg vera vænlegasta kostinn en kostnaðargreinir nú að leggja veg framhjá Reykhólum út á Reykjanes með brú og vegtengingu við Skálanes, eins og lagt var til í sumar. Ábúendur á Stað og nágrannar þeirra í Árbæ mótmæla…Lesa meira

true

Aukin upplýsingagjöf besta forvörnin

Í síðustu viku voru björgunaraðilar kallaðar út til leitar og björgunar að ungri konu sem var hætt komin í Kirkjufelli við Grundarfjörð. Í kjölfar tíðra slysa á fjallinu hefur komið upp umræða meðal íbúa og björgunaraðila um hvort ástæða væri til að takmarka umferð óvanra á Kirkjufell, einkum yfir vetrartímann. Í Skessuhorni í dag er…Lesa meira

true

Rafmagnstruflanir í Borgarfirði og Mýrum

Í morgun hafa verið truflanir á afhendingu rafmagns í Borgarbyggð. Í tilkynningu frá Rarik segir m.a.: „Aðgerðum á álmu að Borgarnesi er lokið og er ekki von á frekara rafmagnsleysi vegna þessa. Útleysing varð á kerfi Landsnets sem orsakaði rafmagnsleysið.“ Þá segir í annarri tilkynningu að aðgerðum á Mýralínu sé lokið og er ekki von…Lesa meira

true

Hálka og krapi á fjallvegum í morgun

Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á Bröttubrekku og Laxárdalsheiði í Dölum. Krapi og éljagangur er á Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Stefna að framþróun skólastarfs

Til stendur að færa starfsemi leikskólans Hnoðrabóls frá Grímsstöðum í Reykholtsdal að Kleppjárnsreykjum, í nýja byggingu sem reist verður við húsnæði grunnskólans. Hluti af eldri byggingum skólans verða rifnar og leikskólinn byggður á grunni þeirra. Verkið verður boðið út á haustdögum og stefnt á að húsið verði tilbúið eftir rúmt ár. Að framkvæmdum loknum verður…Lesa meira