Fréttir

true

Sé nægum þrýstingi beitt víkur umhverfisvernd

Landssamband veiðifélaga lýsir yfir vonbrigðum með þá niðurstöðu Alþingis að breyta fiskeldislögum þannig að opnað sé á möguleika ráðherra til að gefa út rekstrarleyfi til bráðarbirgða til allt að 20 mánaða. „Lýsir Landsambandið einnig furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að hafa umsögn um umrædda lagasetningu. Af umræðum undanfarna daga verður…Lesa meira

true

Frumvarp ráðherra svar við ákalli Vestfirðinga

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um fiskeldi. „Frumvarpinu er ætlað að lagfæra með almennum hætti annmarka á lögum um fiskeldi til framtíðar. Sá annmarki birtist í því að samkvæmt gildandi lögum er eina úrræði Matvælastofnunar í þeim tilvikum sem rekstrarleyfi fiskeldisstöðvar er fellt úr gildi…Lesa meira

true

Vöðvasullur í sauðfé rakinn til óhreinsaðra hunda

Vöðvasullur hefur greinst í fé frá nokkrum bæjum við heilbrigðiseftirlit í sláturhúsum. Þessi sullur er ekki hættulegur fólki en veldur tjóni vegna skemmda á kjöti. Um er að ræða blöðrur í vöðvum sem innihalda lirfustig bandorms sem lifir í hundum. Því vill Matvælastofnun brýna fyrir hundaeigendum að láta ormahreinsa hunda sína. Vöðvasullur eru blöðrur í…Lesa meira

true

Vill ekki málaflokkur landbúnaðar verði veiktur

Sigurður Páll Jónsson, fulltrúi Miðflokksins í atvinnuveganefnd Alþingis, hefur krafist fundar í atvinnuveganefnd eins fljótt og verða vill. „Ástæðan er sú fyrirætlan ráðherra að færa málaflokk matvæla og landbúnaðar undir skrifstofu alþjóðamála í atvinnuvegaráðuneytinu og þar með að veikja og draga úr vægi landbúnaðar í ráðuneytinu,“ segir í tilkynningu. „Þá vekur nýfallinn dómur Hæstaréttar ýmsar…Lesa meira

true

Minningartónleikar í Borgarneskirkju í kvöld

Í kvöld klukkan 20 verður Minningarsamvera í Borgarneskirkju. Þar verður Atla Snæs Jónssonar minnst, en í dag eru 22 ár frá fæðingu hans og ríflega 20 ár frá því hann lést. Ýmsir listamenn munu stíga á stokk. Má þar nefna Svavar Knút, Þóru Sif, Daða, Anítu, Viðar og Barböru. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum, en…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Skallagríms í hús

Skallagrímsmenn eru komnir á blað í Domino‘s deild karla eftir góðan sigur á liði Grindvíkinga, 93-88 í gær. Leikið var í Borgarnesi og var þetta fyrsti heimaleikur Skallagríms í deildinni í vetur. Skallagrímur hóf leikinn af krafti. Liðið lét finna fyrir sér í vörninni og góð stemning einkenndi leik liðsins. Þeir voru enda sterkari í…Lesa meira

true

Bleiki dagurinn er í dag

„Í Bleiku slaufunni 2018 tökum við höndum saman við vinkonuhópa því samstöðukraftur kvenna getur verið magnaður. Það sýna hópar sem halda saman svo áratugum skiptir í gegnum súrt og sætt, veita ómetanlegan stuðning og hvatningu þegar á þarf að halda. Sameinumst um að hvetja „konurnar okkar“ til þátttöku í skimun,“ segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu…Lesa meira

true

Vatnstjón vegna lekra ofna á þriggja daga fresti

Tryggingafélagið VÍS í Reykjavík hefur sent tilkynningu þar sem bent er á tíð vatnstjón sem einkum verður vart á haustin þegar ofnar eru keyrðir upp eftir sumarið: „Vatnstjón vegna leka út frá ofnum eru algeng á íslenskum heimilum en 3ja hvern dag er slíkt tjón tilkynnt til VÍS. Oft má sjá fyrirboða slíks tjóns á…Lesa meira

true

Tekur sér frí frá þingstörfum

Haraldur Benediktsson, bóndi og fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis, hefur ákveðið að taka sér hvíld frá þingstörfum og kallað inn varamann, Teit Björn Einarsson. Ástæðan eru veikindi sem hrjáð hafa Harald í sumar og haust en hann hefur glímt með sýkingar í kviðarholi og víðar og hefur því að læknisráði tekið sér frí frá þingstörfum til að…Lesa meira

true

Fjallað um hrossahald á fræðslukvöldi Borgfirðings

Miðvikudaginn 17. október nk. klukkan 20 verður Guðlaugur V Antonsson með fyrirlestur um hrossahald, aðbúnað og eftirlit. „Fjallað verður meðal annars um innréttingar í hesthúsum og þær reglugerðir sem þeim fylgja. Fyrirlesturinn verður í félagsheimili Borgfirðings í Borgarnesi, frítt inn og allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá fræðslunefnd Borgfirðings.Lesa meira