Fréttir

true

Hreystigarður fyrir fullorðna á döfinni á Akranesi

Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að settur yrði upp hreystigarður fyrir fullorna á Langasandssvæðinu. Verður garðurinn fyrir neðan Akraneshöllina. Hreystigarðurinn verður útbúinn átta líkamsræktartækjum með gervigras sem undirlag og gróður í kring til skjól- og rýmismyndunar. Sömuleiðis verða sett upp upplýsingaskilti sem sýna m.a. hvernig nota megi tækin til fjölbreyttar líkamsræktar. Tækin…Lesa meira

true

Snæfell steinlá gegn Vestra

Snæfell tapaði stórt gegn Vestra, 80-47, þegar liðin mættust á Ísafirði í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Snæfellingar skoruðu fyrstu stig leiksins, sem fór rólega af stað, en ekki leið á löngu þar til heimamenn í Vestra náðu undirtökunum og leiddu með sex stigum að loknum fyrsta leikhluta, 14-8. Snæfellingar héldu…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Íslandsmeistarana

Snæfellskonur gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara Keflavíkur, 87-75, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Leikurinn var jafnframt fyrsti heimaleikur Stykkishólmsliðsins í vetur. Snæfellskonur byrjuðu af krafti og komust í 10-0 áður en gestirnir komust á blað. Þær höfðu yfirhöndina allan fyrsta leikhlutann og höfðu afgerandi forystu að honum loknum, 34-18.…Lesa meira

true

Námskeið fyrir grunnskólabörn á Vesturlandi í skapandi skrifum

Menntamálastofnun og Samtök íslenskra barna- og unglingabókahöfunda (SÍUNG) bjóða upp á námskeið í skapandi skrifum í völdum skólum á Vesturlandi. Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og teiknari, stýrir námskeiðinu sem er ætlað til að auka áhuga barna á lestri bóka og ritun. Allir skólar á Vesturlandi sem var boðið var upp á námskeiðið hafa þegið boðið.…Lesa meira

true

Umferð jókst mest á Suðurlandi en dróst saman á Norðurlandi

Umferðin á Hringveginum í nýliðnum septembermánuði jókst um tæp sex prósent sem er töluvert meira en meðaltalsauking septembermánaða frá því árið 2005. Aukningin er hinsvegar töluvert minni en hún hefur verið nýliðin ár. Umferðin jókst mest á Suðurlandi, eða um 10,5%, en hún dróst saman um 2,1% á Norðurlandi. Á Vesturlandi jókst umferð um 3,1%…Lesa meira

true

Lagasetning í undirbúningi um eignarhald bújarða

Starfshópur um endurskoðun eignarhalds á bújörðum, sem skipaður var af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í júní 2017, skilaði nýverið skýrslu þar sem lagðar eru til breytingar á lögum í því skyni að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins. Í framhaldi af þeirri vinnu hyggst forsætisráðherra skipa starfshóp um endurskoðun laga og reglna er varða…Lesa meira

true

Fiskeldi er nú þegar burðarás í vestfirsku atvinnulífi

Á haustþingi Fjórðungssambands Vestfirðinga sem haldið var í síðustu viku var einróma samþykkt harðorð ályktun af kjörnum fulltrúum allra sveitarfélaga á Vestfjörðum. Tengist hún framtíð fiskeldis í sjó. „Það er áfall fyrir Vestfirði og þjóðarbúið í heild að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafi hafnað beiðni fyrirtækjanna Arnarlax (Fjarðarlax) og Arctic Fish (Arctic Sea Farm) um…Lesa meira

true

Hálka og éljagangur á fjallvegum

Á Vesturlandi er hálka og éljagangur á Holtavörðuheiði en hálka á Fróðárheiði. Hálkublettir í Borgarfirði og Vatnaleið en snjóþekja á Bröttubrekku. Á Vestfjörðum er snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði, Mikladal og Ströndum. Hálka eða hálkublettir er á  fjallvegum og í Ísafjarðardjúpi. Hálkublettir eru á Barðarströnd og Þröskuldum. Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðar eru ófærar.Lesa meira

true

Innkalla Ora fiskbúðing í dósum

Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun á Ora fiskbúðingi vegna galla í dósum. Ora hefur innkallað framleiðslulotur með tveimur „best fyrir“ dagsetningum, í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. Innköllunin nær til eftirfarandi vöru: Vöruheiti: Ora Fiskbúðingur í 1/1 dós (855 grömm), strikamerki: 5690519000032 og lotunúmer L1C1561, L1C1562, L1C1563, L1C1071, L1C1072. Varan er merkt best…Lesa meira

true

Minningartónleikar í Borgarneskirkju um Atla Snæ Jónsson

Sædís Björk Þórðardóttir hefur ekki setið auðum höndum síðustu vikurnar en hún er að undirbúa minningartónleika til heiðurs syni sínum Atla Snæ Jónssyni, sem lést eftir að hafa glímt við erfið veikindi í tæp tvö ár frá fæðingu. Tónleikarnir verða haldnir tuttugu árum frá því Atli Snær kvaddi heiminn og ætlar Sædís nú að halda…Lesa meira