Fréttir

true

Héldu fótboltamaraþon á Snæfellsnesi

Árlegt fótboltamaraþon Snæfellsnessamstarfsins fór fram um síðustu helgi. Þá spiluðu krakkar æa Snæfellsnesi fótbolta og söfnuðu áheitum en þau höfðu einnig gengið í hús fyrr í vikunni til að safna áheitum. Maraþonið hófst í Stykkishólmi klukkan 14:00 þegar iðskendur þar byrjuðu að spila og voru að til klukkan 18 þegar krakkarnir í Ólafsvík tóku við.…Lesa meira

true

Bingó til stuðnings þjóðarátakinu Ég á bara eitt líf

Í gær hélt Góðgerðarfélagið Eynir (GEY) í Fjölbrautaskóla Vesturlands bingó til styrktar Minningarsjóðs Einars Darra. Húsfyllir var í sal FVA og seldust bingóspjöldin nánast upp. Nemendur sem stóðu fyrir viðburðinum voru margir hverjir fyrrum skólafélagsar Einars Darra. Salurinn var smekklega skreyttur og myndaðist notaleg stemning meðal gesta og nemenda sem stóðu fyrir viðburðinum. Fjölmörg fyrirtæki…Lesa meira

true

„Mikilvægt að vera samkvæmur sjálfum sér“

Það hafa eflaust einhverjir lesendur Skessuhorns heyrt í Borgnesingnum Kristínu Sif Björgvinsdóttur í útvarpinu heima hjá sér, í bílnum eða í vinnunni án þess að vita af því, en Kristín Sif starfar sem útvarpsmaður á K100 og sendir út hressilega tónlist ásamt því að spjalla við hlustendur stöðvarinnar um líðandi stund og það sem er…Lesa meira

true

Skallagrímur varð að lúta í gras gegn Íslandsmeisturunum

Skallagrímur varð að játa sig sigraðan gegn Íslandsmeisturum KR í fyrstu umferð Domino‘s deildar karla í gær. Borgnesingar vru sterkir af fyrri hálfleik og höfðu yfirhöndina á löngum köflum. En heimamenn í KR náðu að snúa dæminu í þeim síðari og sigruðu að lokum með 109 stigum gegn 93. Skallagrímsmenn voru ákveðnir í upphafi leiks.…Lesa meira

true

Senda fatapakka til Hvíta-Rússlands

Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Grundarfirði luku nýverið við að pakka gjöfum til Hvíta-Rússlands. „Þetta er tíunda árið sem við erum að búa til barnaföt til að senda út. Við vinnum þau mest upp úr eldri fatnaði og efni sem við höfum fengið frá ýmsum stöðum,“ segir Hildur Sæmundsdóttir, fyrrum ljósmóðir og einn sjálfboðaliðanna í samtali…Lesa meira

true

Sólbaðsstofan Maríkó opnuð í dag

Sólbaðsstofan Maríkó verður opnuð á Akranesi í dag kl. 11:00. Stofan verður til húsa að Smiðjuvöllum 32, þar sem Hans og Gréta voru áður. Að baki Maríkó standa þau Vignir Barkarson og Kristín Ósk Kristinsdóttir ásamt Kristni Aroni Hjartarsyni og Helgu Dís Heiðarsdóttur. Skessuhorn leit við á sólbaðsstofunni fyrr í vikunni. Þar voru Vignir og…Lesa meira

true

Guðjón segir reiðina liðna tíð

Guðjón Skarphéðinsson, fyrrum sóknarprestur í Staðastaðarprestakalli á Snæfellsnesi og einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segist ánægður með sýknudóm Hæstaréttar síðastliðinn fimmtudag. „Það er gott hvað frá er,“ segir Guðjón í samtali við Skessuhorn. Guðjón var á sínum tíma dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa, ásamt þeim Sævari Ciesielski og Kristjáni Júlíussyni, orðið…Lesa meira

true

Æfingabúðir í glímu um síðustu helgi

Um helgina voru haldnar æfingabúðir í glímu að Laugum í Sælingsdal fyrir 7.-10. bekk og landsliðið í glímu. Rúmlega 30 iðkendur tóku þátt í æfingunum, frá UÍA, Umf. Njarðvík, GFD, UMSE, HSK og HSÞ. Helginni var varið í fræðsluerindi og fyrirlestra í bland við æfingar þar sem farið var yfir hin ýmsu tæknilegu atriði glímunnar.…Lesa meira

true

Tvö ný smáhýsi byggð á Stóra-Vatnshorni

„Ég hef tekið eftir því síðustu tvö til þrjú ár að þeir gestir sem koma hingað eru að leita eftir því að komast út fyrir þessa helstu túristastaði. Hingað sækir fólk í ró og næði og það heillar einmitt marga að sjá hversu lítil og fámenn ferðaþjónustan er hjá okkur,“ segir Valberg Sigfússon ábúandi á…Lesa meira