Fréttir

true

Opnað fyrir tilboð í lagningu ljósleiðara

Hjá Ríkiskaupum voru í dag opnuð tilboð í lagningu ljósleiðara í dreifbýli Borgarbyggðar. Þrjú tilboð bárust og kom hæsta tilboðið frá Þjótanda ehf að upphæð 1.127.938.710 krónur. Næsthæsta tilboðið átti Borgarverk ehf að upphæð 1.032.904.586 krónur. Lægsta tilboðið kom frá SH Leiðaranum ehf. og hljóðaði það upp á 774.861.244 krónur. Um er að ræða eitt…Lesa meira

true

Ungmennafélagið Víkingur er 90 ára

Ungmennafélagið Víkingur í Snæfellsbæ var 90 ára 6. október síðastliðinn. Haldið var upp á daginn og bauð félagið til veislu í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar á sunnudaginn. Margrét Sif Sævarsdóttir formaður Umf. Víkings/Reynis bauð gesti velkomna og sagði stuttlega frá sögu félagsins. Þar kom meðal annars fram að þegar Víkingur var stofnaður var það eins og flest…Lesa meira

true

Ráðstefna um byggðamál framundan í Stykkishólmi

Byggðaþróun og umhverfismál, hvernig getur blómleg byggð og náttúruvernd farið saman, er umræðuefni á stórri byggðaráðstefnu sem haldin verður á Fosshótel Stykkishólmi dagana 16.-17. október nk. Að ráðstefnunni standa Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Stykkishólmsbær. „Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði…Lesa meira

true

Egill kominn heim í Borgarnes

Í liðnum mánuði keypti Eðalfiskur í Borgarnesi þrotabú Egils sjávarafurða á Siglufirði. Innifalið í kaupum voru vélar, tæki og vörumerkið Egils síld. „Meginhluti starfsemi Egils var reyktur lax sem seldur var á Bandaríkjamarkað og með kaupunum erum við hjá Eðalfiski að styrkja stöðu okkar með útflutningi. Nú má segja að Egill sé kominn heim í…Lesa meira

true

Fyrsti sigurinn í meira en ár

ÍA bar sigurorð af liði Stál-úlfs á útivelli, 91-108, þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik á sunnudagskvöld. Sigurinn var fyrsti sigur Skagamanna í Íslandsmótinu í körfuknattleik í meira en ár, en liðið tapaði öllum leikjum sínum í 1. deildinni á síðasta keppnistímabili. Eftir tvo leiki hafa Skagamenn því tvö stig í sjötta…Lesa meira

true

Grunnskólabörn í varðskipinu Þór í Stykkishólmi

Varðskipið Þór kom í fyrsta sinn til hafnar í Stykkishólmi síðastliðinn fimmtudag. Nemendum í þriðja bekk í Grunnskólanum í Stykkishólmi var boðið um borð í varðskipið og fengu þeir bæði höfðinglegar móttökur og leiðsögn hjá sjálfum forstjóra Gæslunnar; Georg Lárussyni. Börnin í þriðja bekk eru um tuttugu talsins. Þau voru að vonum glöð með þetta…Lesa meira

true

Kartöfluuppskeran fremur rýr að þessu sinni

Vætutíð framan af sumri var ekki hagfeld til kartöfluræktunar, ef marka má uppskeruna víða. Þó eru að sjálfsögðu undantekningar á því þar sem aðstæður hafa hentað veðráttu sumarsins. Þá eru sumir sem einfaldlega geta ræktað kartöflur, sama hvernig viðrað, hafa það í blóðinu. Meðfylgjandi myndir voru teknar við kartföflugarðana á Akranesi um þarsíðustu helgi. Þar…Lesa meira

true

Sýningin Íslenskur landbúnaður um helgina

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2018 verður haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík dagana 12. til 14. október næstkomandi. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar, framkvæmdastjóra sýningarinnar, verður þetta stærsta landbúnaðarsýning sem haldin hefur verið í Laugardalshöll. Þegar hafa um eitt hundrað sýningaraðilar pantað bása bæði á úti- og innisvæði sýningarinnar og er uppselt. Jafnframt er haft eftir Ólafi…Lesa meira