Fréttir

true

Stórt tap í fyrsta leik Skagamanna

ÍA mátti sætta sig við stórt tap gegn Álftanesi, 72-136, þegar liðin mættust í fyrsta leik 2. deildar karla í körfuknattleik á föstudag. Gestirnir frá Álftanesi höfðu undirtökin í upphafi leiks og leiddu með 30 stigum gegn 15 eftir eftir fyrsta leikhluta. En Skagamenn svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta, léku mun betur en í…Lesa meira

true

Alþjóðleg landslagsarkitektaverðlaun fyrir hönnun stígs á Saxhól

Teiknistofan Landslag hlaut í liðinni viku ein virtustu verðlaun sem veitt eru fyrir landslagsarkitektúr, hin alþjóðlegu Rosa Barba Landscape Prize. Verðlaunin fékk fyrirtækið fyrir hönnun á tröppustíg upp á Saxhól í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Þetta er án efa mesta viðurkenning sem íslenskir landslagsarkitektar hafa hlotið og ætti að hvetja hönnuði og framkvæmdaaðila til faglegra og vandaðra…Lesa meira

true

Lengsta ferð sumarsins ellefuhundruð sinnum lengri en sú stysta

Steinar Ragnarsson úr Borgarnesi hefur síðastliðin átta ár starfað við hópferðaakstur hjá Reyni Jóhannssyni á Akranesi og ekur einum af bláu bílunum sem merktir eru Trex. Sem slíkur ekur Steinar með íslenska hópa og erlenda ferðamenn vítt og breitt um landið. Í gær fékk hann það hlutverk að ferja gesti sem viðstaddir voru afhendingu Hvalfjðarganga…Lesa meira

true

Met Baldurs stendur enn óhaggað

Sauðamessa var fyrst haldin í Borgarnesi haustið 2004, en þessi árlega hátíð verður eins og kunnugt er um næstu helgi. Þessi hátíð til heiðurs íslensku sauðkindinni hefur laðað að þúsundir gesta, en talið var að um fjögur þúsund manns hafi sótt hana 2004. Einn er sá dagskrárliður sem haldist hefur óbreyttur alla tíð, en það…Lesa meira

true

OR hlýtur risastyrk til að breyta mengun í stein

Orkuveita Reykjavíkur ásamt samstarfsaðilum hefur hlotið ríflega tveggja milljarða króna styrk úr Horizon 2020 Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB. Styrkurinn er til verkefnisins GECO, sem miðar að sporlausri nýtingu jarðhita. OR leiðir þetta samstarfsverkefni 18 fyrirtækja og stofnana víðs vegar úr Evrópu. Markmið GECO, sem stendur fyrir Geothermal Emission Control, er að þróa jarðhitavirkjanir með sem…Lesa meira

true

Íslenska ríkinu afhent Hvalfjarðargöng til eignar

Um nónbil í dag fór fram undirskrift samnings þar sem Spölur, eigandi Hvalfjarðarganga, afhenti íslensku þjóðinni göngin til eignar. Hér er um eina stærstu gjöf að ræða sem íslenska ríkinu hefur verið afhent, jafnvel frá því þegar Bretar gáfu flugvellinn í Vatnsmýri. Klukkan 16 í dag gekk svo samningurinn í gildi og yfirfærslan hefur því…Lesa meira

true

Hálkublettir á fjallvegum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í morgun eru hálkublettir á Fróðárheiði, Klettshálsi, Þorskafjarðarheiði sem og á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðum. Hálka er á Holtavörðuheiði.Lesa meira

true

Húsbíll á hliðinni utan vegar

Húsbíll fauk á hliðina á Borgarfjarðarbraut, vestan við Árdal í Andakíl, í morgun. Fernt var í bílnum og sakaði engan. Bíllinn liggur enn utan vegar og mun ekki verða reynt að ná honum upp á veginn fyrr en vindur gengur niður. Töluvert hvassviðri var um tíma í morgun og framyfir hádegið. Strekkingsvindur er enn nú…Lesa meira

true

Foreldrar þurfi að vera meðvitaðir um skjá- og tölvunotkun barna sinna

Guðrún Katrín Jóhannesdóttir félagsfræðingur og Lovísa María Emilsdóttir félagsráðgjafi verða með námskeið um skjá- og tölvunotkun barna í Grunnskóla Snæfellsbæjar þriðjudaginn 2. október næstkomandi. Á námskeiðinu verður foreldrum kennt hvernig þeir geti stuðlað að heilbrigðri umgengni barna sinna við skjái og tölvur. „Tölvur eru alls staðar í kringum okkur,“ bendir Guðrún Katrín á og bætir…Lesa meira