Fréttir

true

Hvalfjarðargöng orðin gjaldfrjáls

Innheimtu veggjalda fyrir akstur í gegnum Hvalfjargöng hefur verið hætt. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, var sá síðasti ökumaðurinn sem greiddi fyrir ferðina laust eftir klukkan 13:00 í dag. Sigurður Ingi færði síðan blómvönd þeim vegfarendum sem voru fyrstir til að aka í gegnum göngin eftir að gjaldtöku var hætt. Voru það ítalskir ferðamenn…Lesa meira

true

Opna sólbaðsstofu á Akranesi í næstu viku

Sólbaðsstofan Maríkó verður opnuð á Akranesi eftir rétta viku, föstudaginn 5. október. Stofan verður til húsa að Smiðjuvöllum 32, í rými í verslanamiðstöðinni sem Hans og Gréta voru síðast. Einnig eru í húsinu Apótek Vesturlands, Classic Hárstofa, Bónus og Domino‘s Pizza. Að stofunni standa Vignir Barkarson og Kristín Ósk Kristinsdóttir ásamt þeim Kristni Aroni Hjartarsyni…Lesa meira

true

Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson

Snorrastofa heldur minningu Snorra Sturlusonar á lofti með ýmsu móti. Meðal annars hefur þess um árabil verið minnst, oft með minningarfyrirlestri, að hann var veginn í Reykholti 23. september 1241. Að þessu sinni flytur dr. Haukur Þorgeirsson fyrirlesturinn, „Sömdu Sturlungar þetta allt saman?“ þriðjudaginn 2. október næstkomandi kl. 20:30 í Bókhlöðu Snorrastofu. Þar gerir Haukur…Lesa meira

true

Húsbíll fauk á hliðina

Húsbíll fauk á hliðina þar sem honum var ekið um Borgarfjarðarbraut í morgun. Leiðindaveður var á staðnum þegar óhappið varð, eins og reyndar víðar í landshlutanum, rigning og hvasst. Fjórir voru í bílnum þegar hann fauk á hliðina en allir sluppu þeir án meiðsla, að því er fram kemur á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vesturlandi. Vegfarendur…Lesa meira

true

Óveður um vestanvert landið

Á Vesturlandi og Vestfjörðum eru hálkublettir á Hrafnseyrarheiði en snjóþekja á Þorskafjarðarheiði og Dynjandisheiði. Óveður er á Holtavörðuheiði, í Kolgrafarfirði, á Hálfdán og á Mikladal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Rakel og Bjarni kosin í stjórn stjórn SÍS

Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem nú stendur yfir á Akureyri var kosin ný stjórn samtakanna. Í henni eiga sæti ellefu fulltrúar og aðrir ellefu til vara. Fyrir Norðvesturkjördæmi voru kjörin í aðalstjórn þau Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi og Bjarni Jónsson sem sæti á í sveitarstjórn Skagafjarðar. Til vara verða þau Daníel Jakobsson á…Lesa meira

true

Þurfa 120 þúsund króna hærri laun en aðrir Norðurlandabúar

Greiðslubyrði af 35 milljóna króna húsnæðisláni á Íslandi er 72 þúsund krónum hærri á mánuði en á hinum Norðurlöndunum, sé miðað við óverðtryggð lán til 30 ára. Þetta má sjá í umfjöllun í nýjasta Efnahagsyfirliti VR. Laun á Íslandi þurfa að vera umtalsvert hærri en í samanburðarlöndunum til að standa undir hárri greiðslubyrði lána. Í…Lesa meira

true

Leyfi til laxeldis felld úr gildi í Patreksfirði og Tálknafirði

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi í gær tvo úrskurði þar sem felld er úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um að veita Fjarðarlaxi ehf. og Arctic Sea Farm rekstrarleyfi fyrir 17.500 tonna ársframleiðslu á laxi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði. Niðurstaða nefndarinnar byggir á að umhverfismatsskýrsla fyrirtækjanna og álit Skipulagsstofnunar á skýrslunni geti ekki verið lögmætur…Lesa meira

true

Um eða uppúr klukkan 13 lýkur gjaldtöku

Eftir hádegið í dag verður slökkt á þeim búnaði við Hvalfjarðargöngin sem haft hefur það hlutverk síðan í júlí 1998 að skrá umferð og bókfæra gjald af vegfarendum. Jafnframt hættir sala veggjalda í skýlinu. Af þessu tilefni mæta á svæðið forsvarsmenn Spalar auk samgönguráðherra. Að sögn Gísla Gíslasonar stjórnarformanns Spalar er áætlað að klukkan 13:15…Lesa meira

true

Frumvarp um þungunarrof til umsagnar

Velferðarráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra til nýrra laga um þungunarrof. Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um þungunarrof. Markmið þeirra er að tryggja að sjálfsforræði kvenna verði virt með öruggum aðgangi að heilbrigðisþjónustu fyrir þær konur sem óska eftir þungunarrofi. Lagt er til að konu verði veitt…Lesa meira