Fréttir

true

Alzheimersamtökin og tenglar félagsins á Vesturlandi

„Er minnið að gefa sig? Ert þú eða jafnvel einhver sem þér er annt um farinn að gleyma? Endurtekur viðkomandi spurningarnar eða á erfitt með að finna orðin? Ber jafnvel á persónuleikabreytingum? Þessi einkenni og fleiri gætu verið fyrstu vísbendingar um heilabilunarsjúkdóma eins og t.d Alzheimer.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alzheimertenglum á Vesturlandi…Lesa meira

true

„Akranes er alltaf að verða áhugaverðari búsetukostur“

Ekkert lát hefur orðið á íbúðarhúsabyggingum á Akranesi undanfarin misseri. Mörg hús hafa risið undanfarin ár og mörg eru í byggingu um þessar mundir, hvort sem það eru fjölbýlishús, einbýlis, rað- eða parhús. Alls eru 110 íbúðir nú í byggingu á 35 lóðum í bæjarfélaginu. Auk þess hafa byggingarleyfi verið gefin út fyrir 44 íbúðum…Lesa meira

true

„Engin teikn á lofti um að hey séu léleg“

Vegna vætutíðar á Vesturlandi um sumarmánuðina gátu bændur víðast hvar í landshlutanum ekki hafið slátt eins fljótt og þeir hefðu kosið. Einnig var nokkuð um að þeir þyrftu að hirða beint úr sláttuskáranum eða í öllu falli sætta sig við að hirða heyið blautara en gengur og gerist. Sömu sögu er að segja af bændum…Lesa meira

true

Tvær næturlokanir eftir

Minnt er á að í þessari viku eru Hvalfjarðargöngin lokuð vegna viðhalds og hreinsunar. Er lokað frá miðnætti og til sex að morgni aðfararnætur fimmtudags og föstudags.Lesa meira

true

Nýr leikstjórnandi í raðir Skallagríms

Meistaraflokkur karla í körfuknattleik í Skallagrími hefur samið við króatíska leikstjórnandann Ivan Mikulic um að leika með liðinu í vetur. Ivan er 27 ára gamall. Hann spilaði síðasta tímabil með rúmenska úrvalsdeildarliðinu SCM U Craiova. Þar skoraði hann 11,4 stig, tók 4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Í tilkynningu frá Skallagrími…Lesa meira

true

Haustþing SSV hefst á morgun

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hefst á morgun, fimmtudaginn 20. september, og stendur yfir þar til í hádeginu á föstudag. Sá háttur verður hafður á að þessu sinni að halda þingið á tveimur dögum. Er það gert til að gefa nýju sveitarstjórnarfólki tækifæri til að kynnast auk þess sem kynning verður á starsfemi SSV. Samþykkt…Lesa meira

true

Bæjarstjórn sendir yfirlýsingu vegna lokunar bankaútibús

Í yfirlýsingu sem bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar sendi frá sér síðdegis í dag er lýst yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Arion banka um að loka útibúi sínu í Grundarfirði 5. nóvember næstkomandi og hvetur stjórnendur bankans til að endurskoða hana. Frá lokun útibúsins var greint í frétt hér á vefnum fyrr í dag. Stríðir gegn eigin stefnu…Lesa meira

true

Ferðamaður lést í hlíðum Kirkjufells

Erlendur ferðamaður lést þegar hann hrapaði í hlíðum Kirkjufells í Grundarfirði í morgun. Stór hópur viðbragðsaðila og björgunarfólks var kallað á staðinn sem og þyrla Langhelgisgæslunnar. Maðurinn fannst laust eftir klukkan tíu í morgun og var það annað erlent göngufólk sem kom að honum. Talið er að maðurinn hafi orðið viðskila við hóp göngufólks á…Lesa meira

true

Eignatilfærsla í útvegsgeiranum

FISK-Seafood ehf. á Sauðárkróki hefur gengið frá samningi um kaupum á öllum eignarhlut Brims hf. í Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyjum. Um er að ræða þriðjungs hlut alls hlutafjár í Vinnslustöðinni. Kaupverðið er 9,4 milljarðar króna. Samningurinn verður sendur Samkeppniseftirlitinu. Í tilkynningu frá FISK-Seafood segir að stjórn og stjórnendur fyrirtækisins vænti góðs samstarfs við eigendur og…Lesa meira

true

Útibúi Arionbanka verður lokað í Grundarfirði

Arionbanki hefur ákveðið að loka útibúi bankans í Grundarfirði og sameina það útibúinu í Stykkishólmi frá og með 5. nóvember næstkomandi. Um leið lokar síðasta bankaútibúið í Grundarfirði þar sem hátt í þúsund manns búa og fjölmörg fyrirtæki hafa starfsemi. Báðum starfsmönnum Arionbanka í Grundarfirði hefur verið boðin vinna í Stykkishólmi. „Áfram verður alhliða hraðþjónustubanki…Lesa meira