Fréttir

true

Leikskólinn Teigasel á Akranesi tuttugu ára

Leikskólinn Teigasel á Akranesi fagnaði tuttugu ára afmæli sínu á fimmtudaginn í síðustu viku. Nemendur og starfsfólk skólans fögnuðu með því að ganga í skrúðgöngu á Akratorg, íslenski fáninn var dreginn að húni við leikskólann og eftir hádegi var opið hús fyrir foreldra, ömmur, afa, frænkur og frændur barnanna. Upp um alla veggi leikskólans mátti…Lesa meira

true

Breytt vetraráætlun Strætó á leið 57

Vetraráætlun 2018-2019 fyrir Strætó á landsbyggðinni tók gildi sunnudaginn 9. september síðastliðinn. Strætó vill vekja sérstaka athygli á breytingu hjá leið 57, bílnum sem er í ferðum frá höfuðborgarsvæðinu, um Vesturland og til Akureyrar. Samkvæmt breyttri áætlun mun Leið 57 EKKI aka frá Akureyri til Borgarness klukkan 16:20 á fimmtudögum í vetur. Leið 57 fer…Lesa meira

true

„Í raun verið að kenna krökkunum á lífið“

Fjármálalæsi kennt sem valfag í framhaldsskólum   Aldís Ólafsdóttir kennir fjármálalæsi við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, auk annarra námsgreina. Fjármálalæsi hefur verið kennt við skólann undanfarin ár. Um er að ræða praktískt nám þar sem farið er yfir helstu atriði í fjármálum einstaklings og heimilis. Skessuhorn hitti Aldísi að máli fyrir helgi og ræddi við…Lesa meira

true

Borgarbraut rennislétt að nýju

Í gær var mikið umleikis í Borgarnesi frá morgni og fram á kvöld, en þá var Borgarbraut í Borgarnesi lögð malbiki allt frá Límtré Vírneti og niður í gamla bæinn. Ástand götunnar hefur lengi verið bágborið og því framkvæmdin kærkomin þeim sem oft aka þarna um. Annarri akreininni var lokað í einu og umferð stýrt…Lesa meira

true

Skallagrímur tryggði sér sæti í þriðju deild

Eftir langa 15 ára dvöl í neðstu deild fótboltans hefur karlalið Skallagríms í Borgarnesi loks snúið blaðinu við og tryggt sér sæti í 3. deild á næsta tímabili og þátttöku í úrslitaleik 4. deildar gegn Reyni í Sandgerði. Skallagrímur hafði betur gegn Álftnesingum í einvígi liðanna í gærkvöldi og fara Borgnesingar upp um deild á…Lesa meira

true

Fyrirlestur um fantasíu – furður í bókmenntum og afþreyingariðnaði

Sigrún Elíasdóttir flytur erindi í Safnahúsi Borgarfjarðar í kvöld, fimmtudaginn 13. september kl. 19.30.  Erindi hennar fjallar um fantasíur, furður í bókmenntum og afþreyingariðnaði, og er hluti af fyrirlestraröð Safnahúss á árinu. „Um þessar mundir er sprenging í vinsældum fantasíuefnis, eða furðusagna eins og íslenska þýðingin hljóðar upp á. Innan furðusagna rúmast draugasögur, Ódysseifskviða, Harry…Lesa meira

true

Haugtankur byggður á Hvanneyri

Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á byggingu nýs haugtanks við fjósið á Hvanneyrarbúinu, sem Landbúnaðarháskóli Íslands rekur. Fram til þessa hefur mykju verið safnað í svokallaðan haugpoka úr PVC efni. Sá er orðinn of lítill fyrir núverandi bústofn og hefur ekki virkað sem skyldi. Haugtankurinn er austan við nýja fjósið. Fyrst var steypt…Lesa meira

true

Tónleikar í Innra-Hólmskirkju til styrktar viðhaldssjóði

Sunnudaginn 16. september næstkomandi klukkan 16 verða haldnir tónleikar í Innra-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit. Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari munu þar flytja tónverk frá barokktímanum og til okkar daga. Það er listafélagið Kalman sem stendur fyrir tónleikunum. Á næstu misserum munu fara fram tónleikar í kirkjunni þar sem allur aðgangseyrir mun renna í viðahaldssjóð…Lesa meira

true

Fjölþættar aðgerðir kynntar til verndunar íslenskri tungu

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kynnti í dag í Veröld – húsi Vigdísar, aðgerðaáætlun til varnar íslenskri tungu. Aðgerðirnar snerta ólíkar hliðar þjóðlífsins en markmið þeirra allra ber að sama brunni; að tryggja að íslenska verði áfram notuð á öllum sviðum íslensks samfélags. Tillögur ráðherrans eru fjórþættar og marka þær allar þáttaskil í afstöðu ríkisins…Lesa meira