Fréttir

true

Spennan eykst á toppi 1. deildar karla

ÍA og HK gerðu markalaust jafntefli þegar liðin mættust í toppslag 1. deildar karla í knattspyrnu á Akranesvelli nú í kvöld. Leikurinn var heilt yfir hálf bragðdaufur en Skagamenn hefðu hæglega getað sótt sigur því þeir misnotuðu tvær vítaspyrnur í leiknum. Fyrst var það Jeppe Hansen sem fór á vítapunktinn á lokamínútu fyrri hálfleiks. Hann…Lesa meira

true

Sívöktun fiskiskipa gæti orðið hvalreki fyrir embættisiðnaðinn

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa lýst einarðri andstöðu sinni við fyrirætlun stjórnvalda að setja upp myndavélavöktun um borði í íslenskum fiskiskipum, sem og við löndun sjávarafla. Sjávarútvegsráðherra hefur eins og kunnugt er lagt fram frumvarp þar að lútandi. Frumvarpið hefur að undanförnu verið í umsagnarferli en í kynningu um það segir: „Meginmarkmið meðfylgjandi frumvarps er…Lesa meira

true

Brotist inn í Hólabúð á Reykhólum

Aðfararnótt fimmtudagsins var brotist inn í Hólabúð á Reykhólum. Peningar og tóbak var tekið ófrjálsri hendi, ásamt því að sjóðsvélinni sjálfri var stolið. Þetta kemur fram á Reykhólavefnum. Á vefnum eru þeir sem geta veitt einhverjar upplýsingar um málið vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Reyni Þór Róbertsson og Ásu Fossdal í Hólabúðinni eða…Lesa meira

true

Góð vörn skóp sigur ÍA stúlkna

Skagastelpur náðu sér í dýrmæt þrjú stig þegar þær unnu Fylki í 15. umferð Inkassodeildar í Akraneshöllinni í gær. Með sigrinum bætir ÍA stöðu sína í efri hluta deildarinnar og á enn möguleika á að komast upp um deild nú þegar þrír leikir eru eftir af tímabilinu. Heimastúlkur komu ákveðnar til leiks og settu tóninn…Lesa meira

true

Toppslagur á Akranesvelli klukkan 18

ÍA og HK mætast í toppslag 1. deildarkarla í knattspyrnu á Akranesvelli í kvöld. Skagamenn tróna á toppi deildarinanr með 39 stig en HK hefur stigi minna í öðru sæti. Þar fyrir neðan er Þór Ak með 33 stig og síðan Þróttur R og Víkingur Ó. með 32 stig hvort lið. Fimm umferðir eru eftir…Lesa meira

true

Tekist á um málefni Borgarbrautar 55 á fundi sveitarstjórnar

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hélt fyrsta fund sinn eftir sumarleyfi í gær. Þar bar ýmislegt á góma en fyrirferðarmest var umræða um skipulag við Borgarbraut 55 og samskipti lögfræðings sveitarfélagsins við eigendur fyrirtækja á lóðinni. Ítarlega hefur verið fjallað um það mál í Skessuhorni. Sveitarstjórn skiptist í tvo hópa í afstöðu sinni til málsins. Fram kom á…Lesa meira

true

Fiskiðjan Bylgja tekin á leigu undir makrílfrystingu

Þrjár útgerðir línubáta í Snæfellsbæ hafa sameinast um að leigja Fiskiðjuna Bylguna af skiptastjóra þrotabúsins sem fer með ráðstöfun eigna. Útgerðafélögin leigja húsnæðið undir frystingu á makríl sem notaður verður í beitu. „Við erum að frysta 25 tonn á sólarhring,“ segir Arnór Ísfjörð Guðmundsson annar verkstjóranna í samtali við Skessuhorn. „Þetta skapar um tíu störf…Lesa meira

true

Fjölmennt á Íslandsmeistaramóti í hrútadómum

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum fór fram á sunnudaginn var á Sauðfjársetrinu á Ströndum, sem er til húsa í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð. Fjöldi fólks mætti á dómana, eða hrútaþuklið eins og það er kallað í daglegu tali, og fór þessi skringilega skemmtun sem um leið er grafalvarleg keppni vel fram. Um 50 keppendur tóku þátt í…Lesa meira

true

Gera forkönnun á örplastmengun í kræklingi

Umhverfisstofnun hefur samið við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum að rannsaka umfang örplastmengunar í kræklingi á völdum stöðum við Ísland. Þetta er einnig áfangi í að leggja grunn að frekari rannsóknum á örplasti í hafinu og lífríki þess við Ísland. Sýnatökur hafa verið í gangi í sumar og klárast um miðjan september. Í kjölfarið verður…Lesa meira

true

CrossFit Ægir mun opna útibú í Borgarnesi

Um það bil ár er síðan að bræðurnir Gunnar Smári og Jóhann Örn Jónbjörnssynir ásamt Sunnefu Burgess opnuðu CrossFit stöðina Ægi við Vesturgötu 119 á Akranesi. Stöðinni hefur verið vel tekin af bæjarbúum Akraneskaupstaðar og eru margir sem nýta sér þessa tegund líkamsræktar. Nú ætlar stöðin að færa út kvíarnar og stefnt er að því…Lesa meira