Fréttir

true

Ingibjörg Birna er íbúi ársins í Reykhólahreppi

Eins og undanfarin ár var gengist við kjöri á íbúa ársins í Reykhólahreppi í tengslum við hátíðina Reykhóladaga, sem fram fór um síðustu helgi. Greint var frá valinu á kvöldvöku Reykhóladaga á laugardagskvöld. Flestar tilnefningar að þessu sinni fékk Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, fráfarandi sveitarstjóri hreppsins. Hlotnast Ingibjörgu því heiðursnafnbótin Íbúi ársins í Reykhólahreppi 2018, fyrir…Lesa meira

true

Níu vilja stýra skrifstofu Hvalfjarðarsveitar

Níu umsóknir bárust um starf skrifstofustjóra sem auglýst var til umsóknar fyrr í sumar. Umsóknarfresturinn var til og með 19. júlí. Þeir sem sóttu um starfið eru: Benjamín Gíslason Erna Rafnsdóttir Hilmar Þór Hafsteinsson Ingunn Stefánsdóttir Lúðvík Júlíusson, Ólafur Ólafsson Salvör Sigríður Jónsdóttir Svandís Edda Halldórsdóttir Þorvaldur Hjaltason Þá segir á heimasíðu sveitarfélagsins að Björgvini…Lesa meira

true

Kallabakarí opnar á nýjum stað

Kallabakarí á Akranesi opnar dyr sínar fyrir viðskiptavinum í nýju húsnæði að Innnesvegi 1 kl. 7:00, eða eftir rétta klukkustund. Bakaríið flytur frá Suðurgötu þar sem það hefur verið starfrækt frá því fyrirtækið var stofnað árið 1967. Brauða- og kökugerðin hefur verið opinbert nafn bakarísins, en í daglegu tali nefnt Kallabakarí. Bræðurnir Alfreð Freyr og…Lesa meira

true

Bátur strand á Breiðafirði

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Snæfellsnesi voru kallaðar út vegna báts sem strandaði á Breiðafirði fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg voru tveir menn um borð í bátnum þegar strandið varð. Amaði ekkert að þeim þegar björgunarsveitarmenn komu að bátnum. Einn hópur björgunarmanna bíður nú hjá bátnum eftir að flæði að en þá á að…Lesa meira

true

Harðkjarnatónleikar á Akranesi á morgun

Á morgun, miðvikudaginn 1. ágúst, verður blásið til skyndipönktónleika og harðkjarnatryllings fyrir framan Akranesvita. Fjórar hljómsveitir stíga á stokk, tvær íslenskar og tvær erlendar; Dauðyflin, franska sveitin Tromblon, Beyond Peace frá Bandaríkjunum og xGADDAVÍRx frá Akranesi, sem munu loka tónleikunum. Herlegheitin hefjast kl. 19:00 og standa yfir til kl. 22:00 í kvöld. Aðgangur að tónleikunum…Lesa meira

true

Tröppustígurinn á Saxhól tilnefndur til virtra verðlauna

Hönnun tröppustígarins á Saxhóli, í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli, hefur verið tilnefnd til virtra hönnunarverðlauna, Rosa Barba Landscape tvíæringsins. Er þetta tíunda í sinn sem verðlaunin eru veitt. Alls eru níu verkefni víðs vegar að úr heiminum tilnefnd til verðlaunanna. Það var teiknistofan Landslag sem hannaði tröppustíginn við Saxhól fyrir umhverfisstofnun. Hefur hönnun stígarins vakið nokkra athygli…Lesa meira

true

Víkingur Ó. semur við hollenskan framherja

Knattspyrnudeild Víkings Ó. hefur samið við Guyon Philips um að leika með liði Ólafsvíkinga í 1. deild karla út keppnistímabilið 2018. Frá þessu er greint á Facebook-síðu félagsins. Guyon er 25 ára gamall og leikur stöðu framherja. Hefur hann einkum leikið í næstefstudeild í heimalandinu Hollandi undanfarin ár. „Við væntum mikils af honum og bjóðum…Lesa meira

true

Aldrei fleiri umsóknir um nám við HA

Umsóknir um nám við Háskólann á Akureyri fyrir skólaárið 2018-2019 eru fleiri en nokkru sinni fyrr. Endanlegur fjöldi umsókna var 2083, að því er fram kemur í tilkynningu frá skólanum. „Þann 3. júlí síðastliðinn var búið að samþykkja 1531 umsókn en 552 umsækjendum hefur verið synjað eða þeir ekki sent inn fullnægjandi gögn með umsóknum…Lesa meira

true

Sæludagar í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina

Verslunarmannahelgin er handan við hornið og þá leggja landsmenn gjarnan land undir fót og sækja hátíðir víða um land. Eru eflaust margir sem taka stefnuna á fjölskylduhátíðina Sæludaga sem haldin verður í Vatnaskógi sem Skógarmenn KFUM ásamt KFUM og KFUK á Íslandi standa fyrir. Sæludagar eru vímulaus hátíð þar sem allir í fjölskyldunni skemmta sér…Lesa meira

true

Áttunda Flemming-púttið norðan heiða

Hátíðin Eldur í Húnaþingi var haldin á Hvammstanga í Húnaþingi vestra fór fram í síðustu viku. Fjölmargt var þar til skemmtunnar s. s. sirkus, tónleikar úti og inni, ýmsar íþróttagreinar, vatnsslönguknattspyrna og fleira og fleira. Flemming-pútt var nú haldið þar í áttunda skipti. Mótið fór fram föstudaginn 27. júlí í mjög góðu veðri og púttvöllurinn…Lesa meira