Fréttir

true

Hollenskur miðjumaður til ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við hollenska leikmaninn Vincent Weijl um að leika með liðinu í 1. deild karla út keppnistímabilið. Vincent er 27 ára, reynslumikill miðjumaður, uppalinn hjá AZ Alkmaar og var á samningi hjá Liverpool á sínum tíma. Hann hefur á sínum atvinnumannaferli leikið með liðum í Danmörku, Hollandi, Spáni og Malasínu. Hann jafnframt…Lesa meira

true

Bygging parhúsa áformuð á Reykhólum

Skipulags-, húsnæðis- og hafnarnefndar Reykhólahrepps samþykkti á síðasta fundi sínum tillögu þess efnis að sveitarfélagið fari í framkvæmdir við byggingu parhúsa við Hólatröð 5 og 7. Sveitarstjórn samþykkti tillögu nefndarinnar samhljóða á síðasta fundi sínum. Skipulagsfulltrúa var falið að kanna alútboð vegna framkvæmdarinnar.Lesa meira

true

Tveir greinst með listeríu á árinu

Hvatt til hitunar á frosnu grænmeti fyrir neyslu „Matvælastofnun og Sóttvarnarlæknir hvetja neytendur til að hita allt frosið grænmeti fyrir neyslu. Þeir hópar sem eru fyrst og fremst í hættu á að verða veikir eru ung börn aldraðir, þungaðar konur og fólk með skert ónæmiskerfi,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Tveir hafa greins með listeríusýkingu…Lesa meira

true

Bikarmót FRÍ var haldið í Borgarnesi

Bikarmót Frjálsíþróttasambands Íslands var haldið á Skallagrímsvelli í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Var þetta 52. bikarmót FRÍ. Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar sá um skipulag og framkvæmd mótsins. Nutu þau liðsinnis fjölmargra sjálfboðaliða frá Ungmennafélagi Borgarfjarðar. Að því er fram kemur á heimasíðu UMSB fór mótið vel fram og gekk eins og best verður á kosið, enda þeir sem…Lesa meira

true

Opið hús vegna skipulagsbreytingar

Miðvikudaginn 1. ágúst milli kl. 17:00 og 18:00 verður starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar. Þar verður breytingartillaga að deiliskipulagi Frístundabyggðar í landi Urriðaár kynnt sérstaklega þeim sem þess óska. Frístundabyggð í landi Urriðaár var skipulögð árið 2000. Síðan þá hafa kröfur og væntingar til frístundahúsa breyst. Breytingin á deiliskipulaginu…Lesa meira

true

Víkingi afhent minningargjöf um Steina Brands

Aðalsteinn Guðbrandsson, sem alltaf var kallaður Steini Brands, hefði orðið 100 ára laugardaginn 21. júlí síðastliðinn. Af því tilefni komu börn hans og ættingjar saman í Ólafsvík um helgina til að minnast hans. Steini Brands var mikill áhugamaður um fótbolta og studdi Víking Ólafsvík dyggilega alla sína tíð. Notuðu ættingjar Steina tækifærið til að afhenda…Lesa meira

true

Skagamenn völtuðu yfir Þór

ÍA vann stórsigur á Þór frá Akureyri, 5-0, þegar liðin mættust í toppslag 1. deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var í blíðskaparveðri á Akranesvelli. Leikurinn fór nokkuð rólega af stað og hvorugu liðinu tókst að skapa sér nein afgerandi marktækifæri framan af fyrri hálfleik. Skagamenn voru meira með boltann en gestirnir frá Akureyri…Lesa meira

true

Styrkvegafé hefur lækkað um 50%

Á síðasta fundi byggðarráðs Borgarbyggðar var lagt fram svarbréf Vegagerðarinnar, dags. 27. júní 2018, við umsókn um styrk til viðhalds styrkvega. Eins og fram hefur komið í fréttum er framlag ársins til styrkvega í Borgarbyggð einungis 1,7 m.kr. og lækkar um 300 þúsund krónur frá síðasta ári. Frá árinu 2010 hefur framlagið lækkað nálægt 50%…Lesa meira

true

Nýtt bílastæði í útboð

Á fundi bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar 19. júlí sl. voru lögð fram hönnungargögn vegna nýs bílastæðis við Kirkjufellsfoss, unnin af Landslagi ehf. Byggðarráð samþykkti samhljóða að farið verði í útboð á jarðvinnu bílastæðisins og frágangi þess. Grundarfjarðarbær fékk styrk til verksins úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, að verðmæti tæplega 62 milljónir króna, þegar úthlutað var í vor.Lesa meira

true

Kynna deiliskipulagsbreytingu vegna frístundabyggðar við Urriðaá

Miðvikudaginn 1. ágúst næstkomandi milli klukkan 17:00 og 18:00 verða starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Þar verður breytingartillaga á deiliskipulagi frístundabyggðar í landið Urriðaár kynnt. „Frístundabyggðin var skipulögð árið 2000. Á þeim tíma sem liðinn er síðan, hafa kröfur og væntingar til frístundahúsa breyst. Breytingin…Lesa meira