Fréttir

true

Annir í heyskap um allt Vesturland í síðustu viku

Bændur á vestanverðu landinu hafa ekki átt sjö dagana sæla í sumar. Erfiðlega hefur gengið að heyja fyrir skepnurnar vegna vætutíðar sem verið hefur nær óslitið í júní og júlí. Veður var þó skaplegra í síðustu viku og sólin skein nokkra daga í röð. Bændur um allt Vesturland nýttu tækifærið, slógu tún sín og söfnuðu…Lesa meira

true

Viðhald framundan á Kjalarnesi

Ástand Vesturlandsvegar um Kjalarnes hefur verið mikið í umræðunni undanfarin misseri, einkum á sunnarlega á Vesturlandi. Á dagskrá er að breikka veginn í 2+1 en þangað til þær framkvæmdir hefjast þarf að halda veginum við. Einkum eru það hjólför vegarins, sem eru orðin djúp á löngum köflum, sem vegfarendur telja að skapi hættu við akstur.…Lesa meira

true

Flott veiðiferð á Úlfsvatni

Veiðin hefur verið góð á Arnarvatnsheiði í sumar og margir fengið vel í soðið. Fiskurinn virðist vera vel haldinn, bæði bleikjan og urriðinn. „Fórum fjögur um helgina í Úlfsvatn, skemmtileg ferð,“ segir Ægir Hauksson veiðimaður í spjalli við Skessuhorn nýkominn af heiðinni. „Við veiddum vel flotta urriða og eina bleikju en fengum allar gerðir af…Lesa meira

true

Harmonikkutónleikar í Reykholtskirkju á morgun

Norsk harmonikkuhljómsveit heldur tónleika í Reykholtskirkju á morgun, fimmtudaginn 2. ágúst. Sveitin er skipuð tíu harmonikkuleikurum auk bassaleikara og gítarleikara. Hún hefur á undanförnum árum komið fram á hinum ýmsu harmonikkumótum á Norðurlöndum og unnið til margra verðlauna fyrir sérlega vandaðan flutning. „Hljómsveitin er hér á vegum Félags harmonikkuunnenda í Reykjavík og mun koma fram…Lesa meira

true

Álftarunginn Gassi ræður ríkjum á Brennistöðum

Sólin lýsti upp bæjarstæðið á Brennistöðum í Flókadal í uppsveitum Borgarfjarðar þegar blaðamann Skessuhorns bar þar að garði skömmu fyrir helgi. Ástæða heimsóknarinnar var að ræða við Þóru Árnadóttur bónda um álftarunga sem hún elur nú upp ásamt móður sinni, Vigdísi Sigvaldadóttur, eða Viggu eins og hún er kölluð í daglegu tali. Þegar blaðamaður keyrði…Lesa meira

true

Skagakonur burstuðu Fjölni

ÍA vann stórsigur á Fjölni, 4-0, þegar liðin mættust í 12. umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli í gær. Frá fyrstu mínútu var ljóst í hvað stefndi. Skagakonur voru mun sterkari allan leikinn og sigur þeirra verðskuldaður. ÍA byrjaði leikinn af miklum krafti og komst yfir strax á 8. mínútu leiksins. Maren Leósdóttir…Lesa meira

true

Þverá komin yfir tvö þúsund laxa

„Veiðin gengur frábærlega hjá okkur og Þverá er komin yfir tvö þúsund laxa,“ sagði Aðalsteinn Pétursson við Þverá í Borgarfirði í síðustu viku. Áin er sú langefsta yfir landið eins og staðan er núna. Veiðin í henni hefur gengið feiknavel í sumar. „Þetta er flott sumar,“ sagði Aðalsteinn, en þar hefur hann leiðbeint veiðimönnum í…Lesa meira

true

Veita leyfi fyrir vindmöstrum

Umsókn Storm orku ehf. um uppsetningu á þremur möstrum til vindmælinga að Hróðnýjarstöðum var til umfjöllunar á síðasta fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafði áður tekið jákvætt í erindið en kallað eftir betri gögnum, s.s. uppdrætti með nákvæmri staðsetningum vegslóða og mastra. Sveitarstjórn samþykkti með fjórum atkvæðum gegn þremur að veita Storm orku ehf.…Lesa meira

true

Stefnt að stofnun Sturlufélags

Eins og flestum mun kunnugt eru í ár liðin 100 ár frá því að Ísland varð fullvalda ríki. Af því tilefni, sem og 804 ára afmælis sagnaritarans Sturlu Þórðarsonar, blés Sturlunefnd, í samvinnu við Dalabyggð, til Sturluhátíðar síðastliðinn sunnudag í Tjarnarlundi í Saurbæ í Dölum. Ragnheiður Pálsdóttir, varaoddviti Dalabyggðar, bauð gesti velkomna í héraðið þar…Lesa meira

true

Upplifir einstaka frelsistilfinningu á sjónum

Borgnesingurinn Hallbjörg Erla Fjeldsted ver nú fleiri stundum þessa dagana úti á sjó heldur en á landi. Hún útskrifaðist úr Skipstjórnarskólanum um síðustu jólin og starfar nú hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu sem siglir sínum bátum út frá höfninni við miðborg Reykjavíkur. Þar safnar hún sér tímum hægt og bítandi til þess að verða skipstjóri einn daginn…Lesa meira