Fréttir

true

Myndband: Sjókajaknámskeið á Breiðafirði

Karoline Daae kemur frá Danmörku og er nemendi í margmiðlun. Hún tók á dögunum myndband á sjókajaknámskeiði á Breiðafirði, en námskeiði er hluti af átta mánaða háskólanámi leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku á vegum Keilis. Sjá má myndbandið hér að neðan. „Ég elska að búa til ævintýramyndir og þegar ég heyrði af þessu námskeiði þá vissi ég…Lesa meira

true

Vestlendingar valdir í úrvalsliðin

Körfuknattleikstímabilið 2016-2017 var gert upp á lokahófi KKÍ sem haldið var í dag. Voru veitt ýmis einstaklingsverðlaun leikmanna, þjálfara og dómara auk þess sem valið var í úrvalslið tveggja efstu deilda karla og kvenna. Það eru fyrirliðar liðanna, þjálfarar og formenn sem kjósa ásamt nokkrum sérfræðingum. Vestlendingar áttu sína fulltrúa. Berglind Gunnarsdóttir úr Snæfelli og…Lesa meira

true

Arnar látinn fara frá Svendborg Rabbits

Borgfirðingurinn og körfuknattleiksþjálfarinn Arnar Guðjónsson mun ekki halda áfram þjálfun danska úrvalsdeildarliðsins Svendborg Rabbits. Forsvarsmenn félagsins hafa ákveðið að endurnýja ekki samning Arnars, sem rann út eftir tímabilið. Arnar stýrði liðinu nýverið til bronsverðlauna í dönsku úrvalsdeildinni, fyrstu verðlauna liðsins síðan 2013. Hins vegar segir í tilkynningu á heimasíðu Svendborg Rabbits að stjórn félagsins vilji…Lesa meira

true

Sveitarstjórn stendur fast á fyrri ákvörðun um lóðir við Brákarsund

Á fundi í byggðarráði Borgarbyggðar í gær var samþykkt ályktun vegna mótmæla við úthlutun lóðanna við Brákarsund. „Byggðaráð úthlutaði 12. apríl 2017 þremur lóðum við Brákarsund á grunni gildandi deiliskipulags. Athugasemdir hafa borist frá fjórum aðilum við þessa úthlutun. Því vill byggðaráð árétta eftirfarandi: “Vinnu við endurskoðun deiliskipulags gamla miðbæjarins, sem hófst 2013 lauk ekki,…Lesa meira

true

Ströndin á Snæfellsnesi hreinsuð á morgun

Á morgun, laugardaginn 6. maí, fer fram Norræni strandhreinsunardagurinn á Snæfellsnesi. Að honum standa Landvernd og nokkur umhverfisverndarsamtök á Norðurlöndum auk annarra skipuleggjenda á Íslandi sem eru Svæðisgarðurinn Snæfellsnes, EarthCheck Snæfellsnesi, Lionshreyfingin á Íslandi og Blái herinn. Snæfellsnes varð fyrir valinu því þar hefur lengi verið hugað að umhverfismálum, sveitarfélögin fimm eru öll með EarthCheck…Lesa meira

true

Jákvæð rekstrarniðurstaða Eyja- og Miklaholtshrepps

Ársreikningur Eyja- og Miklaholtshrepps fyrir árið 2016 var tekinn til fyrri umræðu á fundi hreppsnefndar í gær, fimmtudaginn 4. maí. Þar kemur fram að reksturinn var jákvæður um 22,1 milljón króna. Er það betri niðurstaða en áætlað hafði verið fyrir í fjárhagsáætlun, en þar var áætlað að rekstur samstæðunnar myndi skila 86 þúsund króna afgangi.…Lesa meira

true

Hlutkesti látið ráða hverjir fengju lausar lóðir í Borgarnesi

Í gær var fjórum byggingarlóðum úthlutað í Bjargslandi í Borgarnesi. Það er svo sem ekki í frásögu færandi nema fyrir þær sakir að vegna fjölda umsókna þurfti að varpa hlutkesti um hverjir hlytu þrjár þessara lóða. Að undanförnu hefur fasteignaverð verið á hraðri uppleið í Borgarbyggð og nú er eftir hlé í rúman áratug aftur…Lesa meira

true

Straumleysi í Reykholtsdal á mánudaginn

Rafmagnslaust verður í Reykholtsdal í Borgarfirði mánudaginn 8. maí frá klukkan 15:00-15:30 vegna tengivinnu við háspennustreng Rariki. Straumlaust verður, samkvæmt tilkynningu frá Rarik, á svæðinu frá Deildartunga til hreinsistöðvar í Reykholti.  Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.Lesa meira

true

Tíundu bekkingar í starfskynningum á vegum rótarýklúbbsins

Rótaryklúbbur Borgarness hefur um árabil beitt sér fyrir því að nemendur í tíunda bekk grunnskólanna í héraðinu heimsæki fyrirtæki og vinnustaði til að kynnast því sem þar fer fram. Þekkt eru dæmi þess að nemendur sem þannig hafi fengið tækifæri til að kynnast ólíkum vinnustöðum hafi beinlínis heillast af því sem þar fer fram og…Lesa meira

true

„Þurfum að vera tólfti maðurinn á vellinum“

Á komandi sumri leikur karlalið ÍA í Pepsi deild karla og konurnar í 1. deildinni. Karlarnir hófu leik sunnudaginn 30. apríl þegar liðið mætti Íslandsmeisturum FH á Akranesvelli. Fyrsti leikur kvennaliðsins er föstudaginn 12. maí þegar ÍA mætir Tindastóli, einnig á Akranesvelli. Stuðningsmenn ÍA bíða knattspyrnusumarsins með eftirvæntingu og verður Sigrún Ríkharðsdóttir að teljast með…Lesa meira