Fréttir

true

Hægt að sækja um viðhaldsstyrki

Árið 2015 samþykkti bæjarstjórn Akraness að stofna sérstakan sjóð til að styrkja einstaklinga og fyrirtæki til viðhalds á fasteignum á Akranesi, eins og greint var frá í Skessuhorni á sínum tíma. Úr sjóðnum er úthlutað styrkjum til viðhalds, endurgerðar eða viðgerðar á ytra byrði húsa eða annarra mannvirkja til að bæta ásýnd ákveðinna svæða í…Lesa meira

true

Ferðamenn allan ársins hring

Vart hefur farið framhjá nokkrum að ferðamenn leggja leið sína hingað til lands allt árið. Einnig þeir sem kjósa að leigja sér bíla og gista svo þar sem slíkt er leyfilegt, þ.e. á tjaldsvæðum. Tjaldsvæði hér á landi hafa hins vegar fram að þessu ekki verið opin nema yfir sumartímann og þá lenda tjaldferðamenn og…Lesa meira

true

Vígja hús erlendra fræða

Í hádeginu í dag mun Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, tilkynna um niðurstöðu samkeppni um heiti nýs húss erlendra tungumála við skólann. Húsið verður síðan vígt við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl nk. Efnt var til samkeppni um heiti hússins og bárust hátt í 800 tillögur frá rúmlega 1.000 einstaklingum. Valnefnd…Lesa meira

true

Fataðist flugið á lokahringnum

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í 50. sæti á Lalla Meryem Cup mótinu sem fram fór í Marokkó nú um páskana. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð Evrópu. Var þetta annað mót tímabilsins hjá Valdísi á mótaröðinni. Valdís lék fyrsta hring mótsins á 76 höggum, eða fjórum yfir pari en…Lesa meira

true

Bjarki sigraði á sterku amerísku háskólamóti

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson kom, sá og sigraði á Boilermaker Invitational mótinu sem fram fór í bandaríska háskólagolfinu um helgina. Á Kylfingi.is segir að Bjarki, sem spilar fyrir Kent State háskólann, hafi leikið hringina þrjá á fjórum höggum undir pari og lék höggi betur en liðsfélagi hans, Josh Whalen. Á lokahringnum gerði Bjarki fá mistök, fékk…Lesa meira

true

Veðurhæð nær hámarki síðdegis

Nú er óveður á Kjalarnesi og á veginum við Hafnarfjall. Ófært og óveður er á Útnesvegi og milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar og víða komnir hálkublettir eða snjóþekja. Hálkublettir eru á Holtavörðurheiði og Bröttubrekku. Spá um storm og hríðarveður á fjallvegum virðist ætla að ganga eftir í öllum meginatriðum, að sögn starfsmanna Vegagerðarinnar. Óveðrið byrjaði vestan-…Lesa meira

true

Óveður við Hafnarfjall

Þrátt fyrir viðvaranir um slæmt veður í dag er mikil umferð á veginum við Hafnarfjall, en 75 bílar hafa ekið þar um síðustu 10 mínúturnar. Þar er vaxandi vindur og fer vindhraði nú yfir 40 m/sek í hviðum. Meðfylgandi mynd var tekin þar nú rétt í þessu. Flutningakerra var á hliðinni á veginum og var…Lesa meira

true

Leik Snæfells og Keflavíkur frestað til morguns

Búið er vegna veðurs að fresta leik Snæfells og Keflavíkur sem átti að fara fram í kvöld í úrslitum Domino´s deildar kvenna. Verður leikurinn spilaður á morgun þriðjudaginn 18. apríl í Stykkishólmi. Þar sem leikur KR og Grindavíkur í úrslitum Domino´s deildar karla er á dagskrá á morgun verður honum hnikað til. Fer hann fram…Lesa meira

true

(Frestað) Úrslitin hefjast í kvöld

Snæfell og Keflavík mætast í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik. Ríkjandi Íslandsmeistarar Snæfells sópuðu Stjörnunni úr undanúrslitunum með þremur sigrum gegn engum en Keflvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitunum með því að leggja Skallagrím í oddaleik á skírdag. Það sama gildir í úrslitum og undanúrslitum, það lið sem fyrr sigrar þrjár leiki sigrar viðureignina…Lesa meira

true

Stórsýning Rafta og Fornbílafjelagsins verður 13. maí

Hin árlega stórsýningu Bifhjólafjelagsins Rafta og Fornbílafjelags Borgarfjarðar í Brákarey í Borgarnesi verður laugardaginn 13. maí klukkan 13 til 17. Sýningin hefur fyrir margt löngu skapað sér verðugan sess meðal áhugafólks um bíla og mótorhjól. Þessi dagar er til að mynda sá sem margir viðra fáka sína fyrst úr vetrargeymslunni. Af þeim sökum má sjá…Lesa meira