Fréttir

true

Fjölga starfsmönnum barnaverndar

Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt að heimild verði veitt fyrir nýju 100% stöðugildi á velferðar- og mannréttindasviði bæjarins. Um er að ræða starfsmann hjá félagsþjónustu Akraneskaupstaðar, á sviði barnaverndar. Í lok árs 2016 var farið yfir fjölda tilkynninga til barnaverndar Akraneskaupstaðar og í kjölfarið var sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs falið að greina stöðu málaflokksins. Óskað var…Lesa meira

true

Gleðilega páska!

Það vekur ávallt lukku hjá unga fólkinu þegar litlir ungar klekjast úr eggjum sínum. Þegar ljósmyndari Skessuhorns var á ferðinni í Grundarfirði nýlega voru nokkrir ungar komnir á kreik og verða þeir orðnir sprækir og upp á sitt besta um páskana. Gleðilega páska!Lesa meira

true

Hlé á vinnu við Borgarfjarðarbrú

Hlé er gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páska og verða báðar akreinar brúarinnar opnar til 23. apríl næstkomandi. Framkvæmdum er þó ekki lokið og vill Vegagerðin ítreka að akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring verður á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst. Vinna við brúna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl…Lesa meira

true

Víðast greiðfært á láglendi

Á Vesturlandi er greiðfært á láglendi en hálka eða hálkublettir á fjallvegum. Þegar þessi orð eru rituð er hált á Bröttubrekku og hált eða hálkublettir í Dölum. Hálkublettir eru sömuleiðis á Skógarströnd, Heydal og Laxárdalsheiði. Greiðfært er víðast hvar í Reykhólasveit, að frátöldum hálkublettum á Hjallahálsi og hálku á Klettshálsi. Hálka er á Arnkötludalsvegi um…Lesa meira

true

Valdís Þóra flaug í gegnum niðurskurðinn

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, flaug í gegnum niðurskurðinn á Lalla Meryem Cup mótinu í Marokkó, en mótið er sem kunnugt er hluti af LET Evrópumótaröð kvenna. Hún lék frábært golf á öðrum hring mótsins í gær og kláraði hann á 71 höggi, einu undir pari pari og var því samtals á þremur…Lesa meira

true

Heppinn að vera á lífi eftir alvarlegt sagarslys

„Ég var að saga spýtur með handhjólsöginni minni úti í bílskúr og þá allt í einu fór sögin á móti mér og inn í höndina rétt fyrir neðan úlnlið. Ég man ekki mikið eftir augnablikunum í kjölfarið en sögina vantaði tæpan sentimeter til að komast í gegn,“ segir Jón Heiðar Jónsson íbúi á Akranesi í…Lesa meira

true

Vantar 4.600 íbúðir á markað

Íbúðalánasjóður hefur að beiðni Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, unnið að greiningu á vöntun á húsnæðismarkaði á Íslandi. Fjölgun eigna hefur ekki haldist í hendur við mannfjöldaþróun í landinu undanfarin ár. Samkvæmt greiningu sjóðsins er uppsafnaður munur á framboði og eftirspurn húsnæðis á landsvísu er 4.600 íbúðir, sé tekið tillit til þess að um1.600 íbúðir…Lesa meira

true

Vetur og myrkur í Haukadal

Í Dölum er í undirbúningi ferðaþjónustuverkefnið Iceland Up Close – Vetur og myrkur í Haukadal. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða verkefni í vetrarferðaþjónustu og að því standa Bjarnheiður Jóhannsdóttir og Reynir Guðbrandsson á Jörva, Ásta Ósk Sigurðardóttir og Jóel Bæring Jónsson á Saursstöðum og Sigurbjörg Kristmundsdóttir og Pétur Guðsteinsson á…Lesa meira

true

Sinueldur slökktur í Hvammssveit

Slökkvilið Dalabyggðar var kallað út vegna sinuelds við Ketilsstaði í Hvammssveit um kl. 14 í dag. Skessuhorn náði tali af Jóhannesi Hauki Haukssyni slökkviliðsstjóra rétt fyrir kl. 16. Þá var nánast alveg búið að ráða niðurlögum eldsins og verið að slökkva í síðustu glæðunum. Jóhannes sagði slökkvilistarfið allt hafa gengið mjög vel. „Slökkvistarf gekk vonum framar…Lesa meira

true

Páskaeggjaleit í Búðardal

Klukkan 16:30 í dag hefst allsherjar páskaeggjaleit í Búðardal, en KM-þjónustan og Búðardalur.is standa fyrir henni og ætla að gefa tvö páskaegg. Það eina sem þarf að gera til að hreppa vinninginn er að vera staddur í Búðardal kl. 16:30 í dag, föstudaginn langa og fylgjast með facebook-síðu Búðardalur.is. Þar verður bein útsending frá Búðardal og…Lesa meira