Fréttir

true

„Ná börnunum í skólana með því að gefa þeim mat“

Hjónin Sveinn Kristinsson og Borghildur Jósúadóttir eru búsett á Akranesi. Þau eru nýverið komin heim úr ferð, þar sem þau heimsóttu Malaví, eitt fátækasta land heims. Ferðin var farin á vegum Rauða krossins en Sveinn er formaður Rauða krossins á Íslandi. Borghildur er kennari við Grundaskóla, sem um árabil hefur safnað til stuðnings við fátæk…Lesa meira

true

Ætla að klifra í Akrafjalli fyrsta sumardag

Síðustu ár hafa Skagamenn klifrað í Akrafjalli á Sumardaginn fyrsta og í ár verður engin breyting á. „Við hittumst á bílastæðinu við Berjadalsánna með búlderdýnur, kaffi og góða skapið og rífum svo í berg þar til blæðir úr fingurgómum,“ segir í tilkynningu frá Klifurfélagi Akraness sem er vaxandi íþróttafélag á Akranesi með fjölda félagsmanna. Þá…Lesa meira

true

Snæfell tapaði í æsispennandi leik

Snæfell og Keflavík mættust í gær fyrsta leik úrslitaviðureignar Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi og var leikurinn afar jafn og spennandi. Að lokum fór þó svo að Keflavík hafði betur, 69-75 og tók þar með forystuna í einvíginu og náði heimavallarréttinum.   Gangur leiksins Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum. Liðin…Lesa meira

true

Fremur köldu spáð í upphafi sumars

Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur köldu veðri næstu daga. Á morgun, sumardaginn fyrsta, er spáð vestlægri átt, 8-15 m/s og og éljum, norðlægari nyrst  en léttskýjað austan til. Hiti 0 til 5 stig, en sums staðar vægt frost um landið norðanvert. Hæg vestlæg eða breytileg átt á föstudag, skýjað með köflum og lítilsháttar él við…Lesa meira

true

Eitt tilboð í rekstur á Gufuskálum

Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni keypti Snæfellsbær fyrr á þessu ári hluta Ríkissjóðs í húsakosti á Gufuskálum, alls um 3.300 fermetra. Þar með talið er gistirými, íbúðarhúsnæði, skrifstofur og geymslur sem áður tilheyrðu gömlu Lóranstöðinni. Undanskilið í kaupum Snæfellsbæjar er mastur og mannvirki í eigu Ríkisútvarpsins og húsnæði sem tilheyrði starfsemi Þroskahjálpar…Lesa meira

true

Kynningarfundur um strandhreinsiverkefni

Í Átthagastofu Snæfellsbæjar verður í dag klukkan 15 haldinn kynningarfundur um væntanlegt strandhreinsiverkefni á Snæfellsnesi. „Snæfellsnes hefur verið valið sem fyrsta íslenska svæðið fyrir samnorræna strandhreinsiverkefnið Nordic Costal Cleanup 2017. Verkefnið er í undirbúningi en þann 6. maí munu sjálfboðaliðar ganga fyrirfram ákveðnar strandlengjur og tína rusl. Allt rusl verður flokkað og sent í endurvinnslu,“…Lesa meira

true

Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanna

Laugardaginn 8. apríl voru afhent verðlaun og viðurkenningar þeim nemendum sem náðu bestum árangri í Stærðfræðikeppni grunnskólanna sem fram fór í Fjölbrautaskóla Vesturlands 24. mars síðastliðinn. Mikill fjöldi keppenda tók þátt að þessu sinni. Peningaverðlaun voru að launum fyrir efstu þrjú sætin í hverjum bekk en tíu efstu nemendur fengu sérstök viðurkenningarskjöl. Stuðningsaðilar keppninnar voru…Lesa meira

true

Þorskstofninn mælist í góðu ástandi

„Stofnvísitölur þorsks, gullkarfa og löngu mældust háar miðað við síðustu þrjá áratugi. Vísitala ýsu er nú nálægt meðaltali tímabilsins, en vísitölur steinbíts eru lágar. Helstu markmið verkefnisins eru að fylgjast með breytingum á stærð, útbreiðslu og líffræðilegu ástandi botnlægra fiskistofna og hitastigi sjávar á landgrunninu,“ segir í niðurstöðu stofnfiskmælinga botnfisktekunda sem Hafrannsóknastofnun kynnti í dag.…Lesa meira

true

Skessuhorn kemur út á morgun

Þrátt fyrir frídaga um páska verður lokahönd lögð á Skessuhorn til prentunar í dag og kemur blaðið út á morgun, síðasta vetrardag. Enn eru örfá pláss laus til auglýsinga og bent á símann 433-5500 eða auglysingar@skessuhorn.is. Efni til ritstjórnar skal sent á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is fyrir klukkan 14 í dag.    Lesa meira

true

Ásta Sjöfn hættir sem skólastjóri

Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, skólastjóri Reykhólaskóla, hefur sagt starfi sínu lausu og hættir 1. ágúst næstkomandi. Hún hefur gegnt starfinu undanfarin þrjú og hálft ár, eða frá því hún tók fyrst við sem staðgengill skólastjóra í nóvember 2013. Þá hafði hún starfað sem kennari við Reykhólaskóla í áratug, síðan 2003. Ásta kveðst aldrei hafa ætlað sér…Lesa meira