Fréttir

true

Skallagrímur stal heimaleikjaréttinum

Skallagrímur hafði sigur gegn Keflavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaviðureigninni um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Keflavík í gærkvöldi. Eftir nokkuð jafnan leik sem heimakonur leiddu naumlega komust Skallagrímskonur yfir í lokafjórðungnum og stálu sigrinum eftir æsispennandi lokamínútur. Lokatölur urðu 68-70, Skallagrími í vil.   Gangur leiksins Keflvíkingar höfðu heldur yfirhöndina í…Lesa meira

true

Skaginn 3X hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017

Fyrirtækið Skaginn 3X hf. hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2017 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í morgun. Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans, veitti verðlaununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Nýsköpunarþingið var haldið á Grand Hótel Reykjavík undir yfirskriftinni Draumaland nýsköpunar. Skaginn 3X hefur undanfarin ár verið leiðandi fyrirtæki í nýsköpun í matvælaiðnaðinum…Lesa meira

true

Nýr tækjakostur í málmiðnadeild FVA

Þessa dagana er unnið við uppsetningu á nýjum tölvustýrðum fræsara í málmiðnadeild Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Tæki þetta er af gerðinni HAAS, TM-1P og er afar fullkominn fræsari sem býður upp á mikla möguleika í framleiðslu ólíkra hluta úr málmi. Með fylgihlutum er áætlað að tækið kosti um tíu milljónir króna. Hörður Baldvinsson deildarstjóri málmiðnadeildar…Lesa meira

true

„Snýst allt um að fólki líði vel í ræktinni“

Jón Einar Hjaltested nemur íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík og hyggur á útskrift í vor. Samhliða námi starfar Jón sem einstaklingsþjálfari á Akranesi. „Ég byrjaði að þjálfa á áramótum og líkar vel. Þetta er það sem ég vil gera í framtíðinni. Ég ákvað að byrja á að þjálfa á meðan ég er enn í skólanum…Lesa meira

true

Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan!

Félagar úr Ungmennafélagi Stafholtstungna eru að um þessar mundir að ljúka æfingum á farsanum Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Frumsýning verður næstkomandi föstudag í félagsheimilinu Þinghamri. Æfingar hafa staðið síðan í byrjun febrúar. Sex leikarar eru í sýningunni. Í henni segir frá piparsveininum Jónatan sem heldur við þrjár flugfreyjur sem…Lesa meira

true

Fresta uppsögnum og taka upp viðræður um bætta aðstöðu í Akraneshöfn

Stjórn HB Granda ákvað í dag að ganga til viðræðna við bæjarstjórn Akraness um bætta aðstöðu í Akraneshöfn með tilheyrandi vinnu við skipulag, uppfyllingu og sjóvarnir. Um leið slær fyrirtækið á frest til 1. september nk. boðuðum uppsögnum 93 starfsmanna í fiskvinnslu á Akranesi. Á fundi trúnaðarmanna HB Granda og forsvarsmanna fyrirtækisins sem var að…Lesa meira

true

Eftirhermann og orginalinn í Landnámssetrinu

Félagarnir Guðni Ágústsson og Jóhannes Kristjánsson flakka þessar vikurnar um landið með skemmtun. Meðal annars munu þeir verða í Landnámssetrinu í Borgarnesi föstudagskvöldin 31. mars og 7. apríl kl. 20. Þeir félagar lofa mögnuðu sagnakvöldi með þjóðsögum og eftirhermum. Nánari upplýsingar á Landnámssetrinu í síma 437-1600.Lesa meira

true

Margt býr í hafinu – leikrýni

Leikdeild Ungmennafélagsins Dagrenningar hefur yfirleitt ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar kemur að verkefnavali. Deildin var stofnuð árið 1995 og hefur síðan þá sett upp sex verk, allt öndvegisbókmenntir. Mörgum er minnisstæð sýningin á Sjálfstæðu fólki fyrir rúmum tuttugu árum, Íslandsklukkunni um aldamótin og Sölku Völku árið 2012 svo eitthvað sé…Lesa meira

true

Ölvun og of hraður akstur

Lögreglan á Vesturlandi hafði afskipti af 17 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í vikunni sem leið. Einn var tekinn við akstur og hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Þrír ökumenn voru teknir úr umferð vegna gruns um ölvun við akstur og einn til viðbótar er grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Loks voru skráningarmerki…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Sjómannagarðinn á Hellissandi

Miklar framkvæmdir hafa að undanförnu staðið yfir í Sjómannagarðinum á Hellissandi. Að sögn Þóru Olsen, sem ásamt Erni Hjörleifssyni og fleirum hafa staðið fyrir framkvæmdum, á að stækka safnið um 70 fermetra og hafa þar afgreiðslu og móttöku gesta. Einnig verður aðkomu að safninu breytt. „Við erum búin að taka bæði húsin i gegn. Í…Lesa meira