Fréttir

true

Formaður og varaformaður FEBAN segja af sér

Með bréfi til félaga sinna í Félagi eldri borgara á Akranesi og nágrenni hafa Jóhannes Finnur Halldórsson formaður félagsins og Júlíus Már Þórarinsson varaformaður boðað afsögn sína úr stjórn frá og með framhaldsaðalfundi í félaginu sem fram fer 31. mars nk. Ástæða afsagnarinnar eru m.a. deilur um húsnæðismál félagsins og ávirðingar í þeirra garð vegna…Lesa meira

true

Elsti núlifandi Grundfirðingurinn

Laugardaginn 18. mars síðastliðinn fagnaði Elna Bárðarson 95 ára afmæli sínu á Dvalaheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði, en hún er elsti núlifandi Grundfirðingurinn. Elna tók á móti gestum á laugardaginn og var fjölmenni í veislunni. Starfsmenn Fellaskjóls sungu afmælissönginn á finnsku fyrir afmælisbarnið en Elna fæddist í Finnlandi en hefur búið á Íslandi mestan part ævi…Lesa meira

true

Stækkun Hólabúðar á Reykhólum er hafin

Skessuhorn greindi frá því í nóvembermánuði að fyrirhuguð væri stækkun á húsnæði verslunarinnar Hólabúðar á Reykhólum. Búðin verður lengt um þrjá metra og svo breikkuð um 4,8 metra til austurs. Framkvæmdir hófust formlega í gær, þriðjudaginn 21. mars, þegar Brynjólfur Smárason verktaki mætti á gröfunni og byrjaði að grafa fyrir stækkuninni. „Reyndar var byrjað að…Lesa meira

true

Þriðji færeyski línubáturinn sem landar í Ólafsvík

Færeyski línubáturinn Skörin Fd-750 landaði rúmum 32 tonnum í Ólafsvíkurhöfn á síðasta laugardag. Er þetta þriðji færeyski báturinn sem landar í Ólafsvík í vetur. Allir þessir bátar eru útbúnir með togarakössum sem hafa hingað til verið hífðir upp úr bátunum og sturtað í kör á bryggjunni. Kallaði það á meiri mannskap en vegna veðurs um…Lesa meira

true

Tungnamenn öflugir í einmenningi

Síðastliðið mánudagskvöld fór fram árleg keppni Briddsfélags Borgarfjarðar í einmenningi. Spilað var á fimm borðum. Keppni var fremur jöfn framan af en þó höfðu efstu spilarar áunnið sér dágott forskot þegar yfir lauk. Nágrannar úr Stafholtstungunum sigruðu með glæsibrag og ljóst að á þeirra bæjum mun ekki skorta páskaegg. Kristján Axelsson í Bakkakoti varð hlutskarpastur…Lesa meira

true

Deildarbikar á loft í Stykkishólmi

Stúlkurnar í Snæfelli fengu í gærkvöldi afhentan deildarmeistarabikar eftir að lokaumferð deildarinnar lauk, þar sem Snæfell tók á móti Keflavík. Það var Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ sem afhenti bikarinn Gunnhildi Gunnarsdóttur fyrirliða Snæfells. Eilítið skyggði á gleðina að Snæfell tapaði viðureign sinni við Keflavík með 59 stigum gegn 72. Snæfell mætir Stjörnunni í undanúrslitum úrslitakeppninnar,…Lesa meira

true

Eurovision stjarna setur sig inn í vestlenskt mannlíf

Rússneska eurovision stjarnan Díma Bilán hefur verið á ferðalagi um Vesturland síðustu daga. Af Instagram síðu hans að dæma hefur hann mest haldið sig í Borgarfirðinum og augljóslega notið dvalarinnar. Bilán skaust upp á stjörnuhiminnin í Evrópu þegar hann hafnaði í öðru sæti í Eurovison söngvakeppninni sem fram fór í Aþenu í Grikklandi árið 2006,…Lesa meira

true

Skóflan lýkur við Vesturgötuna

Nýverið voru opnuð hjá skipulags- og umhverfisráði Akraneskaupstaðar tilboð í yfirlögn Vesturgötu á Akranesi. Í verkinu felast jarðvegsskipti, nýjar lagnir og yfirborðsfrágangur. Verkkaupar eru Akraneskaupstaður, Veitur og Míla. Fjögur tilboð bárust í verkið og var ákveðið að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem er Skóflan hf. Tilboð Skóflunnar hljóðaði upp á rétt tæpar 190 milljónir…Lesa meira

true

Fékk hjólsög í höndina

Lögregla og sjúkralið var einnig kallað að bílskúr við heimahús á Akranesi í vikunni sem leið. Þar hafði karlmaður á fertugsaldri fengið hjólsög í höndina. Slasaðist hann talsvert og var fluttur til aðhlynningar á Landspítalann. Sjö umferðaróhöpp voru að sögn lögreglu tilkynnt í liðinni viku og var um minniháttar meiðsli að ræða í nokkrum þeirra.…Lesa meira

true

HB Grandi opnar sorpflokkunarstöð á Akranesi

HB Grandi mun næstkomandi fimmtudag opna með formlegum hætti nýja sorpflokkunarstöð við Vesturgötu 4 á Akranesi. Tilgangurinn með starfrækslu stöðvarinnar er að safna saman á einn stað öllu sorpi sem fellur til vegna starfsemi félagsins og dótturfélaga þess á Akranesi. Stöðin mun draga úr urðun sorps og auka hlutfall til endurvinnslu. Fyrirmynd af sorpflokkunarstöðinni eru…Lesa meira