Fréttir

true

Ný heimasíða SSV komin í loftið

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa tekið í notkun nýja heimasíðu http://ssv.is.  Hönnuður síðunnar er Aron Hallsson vefhönnuður. „Það er von okkar að með nýrri síðu takist að bæta upplýsingamiðlun og þjónustu við sveitarfélögin, stofnanir, atvinnulífið og einstaklinga sem nýta sér hana. Á nýrri heimasíðu verða jafnframt ýmiskonar upplýsingar og fróðleikur um Vesturland,“ segir í…Lesa meira

true

Áttan heimsótti grundfirska unglinga

Tveir meðlimir samfélagsmiðlahópsins Áttunnar heimsóttu félagsmiðstöðina Eden í Grundarfirði á dögunum. Þá komu þau Nökkvi Fjalar Orrason og Anna Lára Orlowska og hittu krakkana í félagsmiðstöðinni. Þau fóru í leiki með þeim og spjölluðu svo um allt mögulegt enda margar spurningar sem brunnu á krökkunum. Félagsmiðstöðin Eden fékk veglega styrki frá G.Run hf, Blossa ehf,…Lesa meira

true

Hefja sölu á Sögu Borgarness í 150 ár

Á morgun, 22. mars 2017, verða 150 ár síðan Borgarnes fékk verslunarréttindi. Á afmælisdaginn verður sveitarstjórn Borgarbyggðar með hátíðarfund kl. 15:00 í Kaupangi sem er elsta hús bæjarins. Í tilefni dagsins verður tekin skóflustunga að viðbyggingu við Grunnskólann í Borgarnesi að loknum hátíðarfundi sveitarstjórnar. Á afmælisdaginn verður opnuð ljósmyndasýningin „Tíminn gegnum linsuna“ kl. 17:00 í…Lesa meira

true

Fjölmenni á matarmarkaði Búrsins

Um síðustu helgi mátti í Hörpu í Reykjavík kynnast mörgu af því nýjasta sem bændur og ýmsir aðrir framleiðendur hafa verið að fást við í nýsköpun og framleiðslu. Þar stóð yfir matarmarkaður Búrsins. Að vanda var ýmislegt fróðlegt að sjá og fullt af nýsköpun. Má þar nefna fjallakryddaða kæfu af Austurlandi, eðalsnakk frá Gullauga, gulrætur…Lesa meira

true

Spiluðu á Borðeyri

Síðastliðinn laugardag lögðu briddsspilarar land undir fót og héldu árlegt Borðeyrarmót í tvímenningi í bridds, að þessu sinni með þátttöku 18 para. Þar komu saman Borgfirðingar, Hólmvíkingar, Dalamenn, Húnvetningar og Skagfirðingar aukn nokkurra úr Reykjavík.  Spiluð voru 44 spil. Borgfirðingar gerðu góða ferð, en með sigur af hólmi fóru Ingimundur Jónsson og Jón H Einarsson…Lesa meira

true

Byssusýning í Veiðisafninu á Stokkseyri

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri, sem í ár verður í samvinnu við verslunina Hlað, verður haldin laugardaginn 25. og sunnudaginn 26. mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri. Þar mun Hjálmar í Hlað og félagar sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði, til sýnis og sölu. Fjölbreytt úrval…Lesa meira

true

Dixon Oktettinn kom sá og sigraði

Fernir svæðistónleikar Nótunnar 2017, uppskeruhátíðar tónlistarskóla, fóru fram um síðustu helgi. Hátt í fimmhundruð nemendur frá tónlistarskólum af öllu landinu tóku þátt. Sjö framúrskarandi tónlistaratriði á hverjum svæðistónleikum fyrir sig fengu sérstakar viðurkenningar og verðlaunagrip Nótunnar. Þau atriði öðluðust jafnframt þátttökurétt á lokahátíð Nótunnar, þriðja og síðasta hluta uppskeruhátíðarinnar, sem verður haldin 2. apríl í…Lesa meira

true

UMFG Íslandsmeistarar í 4. deild

Meistaraflokkur UMFG í blaki kvenna varð um helgina Íslandsmeistari í greininni eftir síðustu mótaröðina sem haldin var í Garðabæ. Keppnisfyrirkomulagið í 4. deild er þannig að leikið er á þremur helgarmótum. Lið Grundarfjarðar hafnaði í efsta sæti með 34 stig eftir mótin þrjú. Til að mynda vann liðið allar hrinur sínar um helgina og sýndu…Lesa meira

true

Skallagrímur kláraði Njarðvík í lokafjórðungnum

Skallagrímur tók á móti Njarðvík í næstsíðustu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik á föstudag. Skallagrímur lék án Tavelyn Tillman, sem var frá vegna meiðsla og Njarðvíkingar hafa þegar sent Cameron Tyson-Thomas heim, eins og körfuknattleiksáhugamenn þekkja. Nokkuð jafnræði var með liðunum lungann úr leiknum og það var ekki fyrr en í lokafjórðungnum að Skallagrímskonur…Lesa meira

true

Samfelld sigurganga Leiknis/Skáneyjar í Vesturlandsdeildinni

Sigurganga liðs Leiknis/Skáneyjar hélt áfram í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum en keppt var í gæðingafimi í Faxaborg á föstudaginn. Þetta var fjórða mótið í röð sem liðið hreppti liðsplattann fyrir bestan sameiginlegan árangur í grein kvöldsins. Nú leiða því Reykdælingar keppnina með yfirburðum og eru í dágóðri stöðu hvað framhaldið varðar nú þegar tvær keppnisgreinar eru…Lesa meira