
Það var gleði og söngur sem einkenndi sálmakvöld í Safnaðarheimili Ingjaldshólskirkju 1. mars síðastliðinn. Þar mættu Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju og Kór Ingjaldshólskirkju ásamt kórstjórum og undirleikara. Tilgangur kvöldsins var að hittast og syngja en Margrét Bóasdóttir verkefnastjóri kirkjutónlistar var í heimsókn til að kynna nýja sálmabók sem gefin verður út í haust. Einnig kenndi hún kórunum.…Lesa meira








