Fréttir

true

Snæfell fór létt með Njarðvík

Snæfell situr sem fastast á toppi Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik eftir auðveldan sigur á Njarðvík á miðvikudag. Liðin mættust í Stykkishólmi og Snæfell einfaldlega rúllaði gestunum upp. Lokatölur urðu 82-55, Snæfelli í vil. Njarðvíkurliðið hafði heldur yfirhöndina í upphafi leiks og komst í 5-11 seint í fyrsta leikhluta. Þá breyttu Snæfellskonur um takt í…Lesa meira

true

Reiknaðar afurðir í sauðfjárrækt hafa aldrei verið meiri

Uppgjöri skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir árið 2016 er nú að mestu lokið. Á nýjum vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins er sagt að uppgjör ársins 2016 komi „glimrandi vel út og hafa reiknaðar afurðir eftir hverja kind í skýrsluhaldinu aldrei verið meiri í sögu skýrsluhaldsins en formleg uppgjör eru til frá árinu 1954.“ Reiknaðar afurðir síðasta árs eru…Lesa meira

true

Ferðaþjónustufólk hvatt til að vara ferðafólk við

Þorsteinn Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við ruv.is að björgunarsveitarfólk vonist til að fólk verði ekki á ferðinni í dag að óþörfu. „Hluti af okkar forvarnarstarfi gagnvart ferðamönnum var virkjað í gær. Þá sendum við varnaðarupplýsingar um veðrið á tæplega þrjú þúsund ferðaþjónustufyrirtæki víða um land sem þau geta prentað út og hengt upp.…Lesa meira

true

Ófært um Kjalarnes

Hvassviðri sem spáð var færist hraðar inn á landið en áætlað var. Veginum um Kjalarnes hefur nú verið lokað, en þar er mjög hvasst og hált og ekkert ferðaveður, að sögn vegfarenda sem höfðu samband við Skessuhorn. Veðrið mun verða slæmt í dag um allt land, fyrst á suðvesturhorni landsins og síðan munu skil lægðarinnar …Lesa meira

true

Ógna náttúrulegu lífríki

„Stjórn Veiðifélags Norðurár í Borgarfirði lýsir áhyggjum sínum af ástandinu í fiskeldismálum við Íslandsstrendur vegna þess að fiskur hefur sloppið úr eldiskvíum og ógnar þar með náttúrulegu lífríki í íslenskum ám,“ segir í ályktun sem stjórn veiðifélagsins samþykkti á fundi 19. febrúar síðastliðinn.Lesa meira

true

Iðnnám er líka fyrir stelpur

Helga Dögg Lárusdóttir og Sólveig María Arnórsdóttir eru meðal þeirra kvenna sem eru í iðnnámi við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þær eru báðar á sinni fjórðu og jafnframt síðustu önn í grunnnámi málmiðngreina. Þeim líkar námið vel, segja það fjölbreytt og skemmtilegt. „Ég var búin að ákveða að læra þetta þegar ég var enn í grunnskóla. Mig…Lesa meira

true

Opið hús í FVA þar sem námsframboð verður kynnt

Iðn- og verkmenntaskólar landsins hafa í samvinnu við Samtök iðnaðarins, hrundið af stað herferð sem ber nafnið #kvennastarf. Með því er ætlunin að brjóta niður úreltar hugmyndir og benda ungu kynslóðinni á að fyrir bæði kynin eru allar leiðir færar í námi og starfi. Tilgangurinn er m.a. að vekja athygli á fjölbreyttum störfum í iðn-,…Lesa meira

true

Vegagerðin boðar lokun vega á morgun

Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú í kvöld kemur fram að vegna slæmrar veðurspár megi búast við að færð spillist mjög víða á morgun föstudaginn 24. febrúar og ekkert ferðaveður verði á landinu. Af þeim sökum megi búast við eftirfarandi lokunum á vegum: Kl. 09:00 – 18.00: Eyjaföll og Hellisheiði. Kl. 11:00 – 18:00: Mosfellsheiði og…Lesa meira

true

Andlát – Georg Breiðfjörð Ólafsson

Georg Breiðfjörð Ólafsson, sem var elsti Íslendingurinn, lést miðvikudaginn 22. febrúar á Dvalarheimili Stykkishólms. Georg varð jafnframt elstur karla hér á landi. Hann var fæddur 26. mars 1909 og vantaði því tæpan mánuð upp á það að verða 108 ára. Georg var fæddur og uppalinn í Akureyjum við Skarðsströnd í Dalasýslu. Foreldrar hans voru hjónin…Lesa meira

true

Hvassviðri er spáð á morgun föstudag

Veðurstofa Íslands bendir á krappa lægð sem gengur yfir landið á morgun, föstudag, en henni fylgir töluvert hvassviðri um sunnan- og vestanvert landið. Spáð er vaxandi suðaustanátt í fyrramálið, fyrst suðvestantil og verður víða þetta 20-28 m/s síðdegis. Gera má ráð fyrir að vindhraði í hviðum gæti náð 40 m/sek. Þessu fylgir snjókoma eða slydda…Lesa meira