Fréttir

true

Ungur Skagamaður æfir með Ajax

Ungur knattspyrnumaður frá Akranesi, Ísak Bergmann Jóhannesson, hélt á mánudag til Hollands þar sem hann mun æfa með stórliði Ajax í Amsterdam til loka þessarar viku. Ísak er fæddur árið 2003 og leikur með 3. flokki ÍA. Með honum í för verður annar þjálfara hans, Heimir Eir Lárusson. Ajax er sögufrægt lið í evrópskri knattspyrnu…Lesa meira

true

Ferðasaga nemenda úr Grunnskóla Borgarness til Þýskalands

Dagana 4.-10. desember sl. fórum við, sex nemendur Grunnskólans í Borgarnesi, ásamt tveimur kennurum, til Þýskalands á vegum Erasmus+ Evrópuverkefnisins. Verkefnið nefnist „Water around us“ eða WAU, en Grunnskólinn í Borgarnesi tekur þátt í því ásamt sex öðrum skólum. Í Þýskalandi voru tveir skólar sem tóku á móti hópnum og eru þeir í litlu bæjunum…Lesa meira

true

Andlát – Ólöf Nordal fv. ráðherra

Ólöf Nordal alþingsmaður, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fv. innanríkisráðherra er látin, 50 ára að aldri, eftir erfið veikindi. Frá þessu var greint á Alþingi í dag og var þingfundi sem hefjast átti klukkan 15 frestað af þessum sökum. Ólöf lætur eftir sig eiginmann og fjögur börn. Ólöf Nordal fæddist í Reykjavík 3. desember 1966. Hún varð…Lesa meira

true

Nýr golfskáli gæti jafnframt orðið fjölnota frístundamiðstöð

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi hefur nú um nokkurt skeið undirbúið byggingu nýs klúbbhúss við Garðavöll. Núverandi félagsaðstaða Leynisfólks er fyrir löngu sprungin utan af starfseminni og beinlínis aftrar hún því að Leynir geti tekið að sér stærri mót. Í skipulagi fyrir Garðavöll er skilgreindur byggingarreitur fyrir nýtt klúbbhús og munu hundrað bílastæði sem fyrir eru…Lesa meira

true

Valdís Þóra hefur leik í kvöld

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hefur leik á sínu fyrsta móti á Evrópumótaröðinni í golfi þegar Oates Viv Open mótið hefst nærri Melbourne í Ástralíu. Er þetta í fyrsta sinn sem Valdís Þóra leikur á mótaröðinni en hún er þriðja íslenska konan sem tryggir sér keppnisrétt á þessari sterkustu mótaröð Evrópu. Í samtali…Lesa meira

true

Umferð mikil um þröngan, dimman og illa farinn veg

“Fyrir löngu er tímabært að Vesturlandsvegur og ástand hans komist í umræðuna af alvöru. Gríðarleg umferðaraukning hefur átt sér stað á landinu öllu og nú er það svo að umferðaræðar út frá höfuðborgarsvæðinu eru komnar í þokkalegt lag fyrir utan Vesturlandsveg,” skrifar Björn Bjarki Þorsteinsson forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar í aðsendri grein hér á vefnum. “Umferð…Lesa meira

true

Fiskverkakonur skoruðu á sjómenn í samstöðukeilu

Síðastliðið miðvikudagskvöld var boðað til keilumóts í keilusal íþróttahússins við Vesturgötu á Akranesi. Ekki var um að ræða Íslands- eða bikarmót, heldur höfðu fiskverkakonur í HB Granda á Akranesi skorað á sjómenn í keilu. Það var Jónína Björg Magnúsdóttir, eða Nína eins og hún er oftast kölluð, sem átti frumkvæðið að viðburðinum. „Mér fannst vanta…Lesa meira

true

Tillaga um stuðning við staðbundna fjölmiðla á landsbyggðinni

Á dagskrá Alþingis um nónbil í dag er umræða um þingsályktun nokkurra þingmanna um að gerð verði úttekt á starfsemi fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins og leiðir til að tryggja stöðu þeirra. Fyrsti flutningsmaður er Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir alþingismaður VG. Þar er lagt til að mennta- og menningarmálaráðherra verði falið að skipa starfshóp sem geri úttekt á…Lesa meira

true

Sara hlutskörpust í söngkeppni SamVest

Söngkeppni SamVest fór fram á Hólmavík síðastliðinn fimmtudag. Þar var saman kominn fjöldi ungmenna frá félagsmiðstöðvum af Vesturlandi, auk miðstöðvanna í Strandabyggð og á Reykhólum. Hlýddu krakkarnir á atriði frá sínum félagsmiðstöðvum og öðrum, blönduðu geði við önnur ungmenni og skemmtu sér. Að sögn aðstandenda keppninnar var mætingin mjög góð og telja þeir að sjaldan…Lesa meira

true

Reglur ríkiseinokunar útiloka smærri framleiðendur

Lítil brugghús hér á landi hafa litla sem enga möguleika á að koma vöru sinni til almennra neytenda. Það er íslenska ríkið sem sér til þess í gegnum einkaleyfi ÁTVR til sölu áfengis og reglur sem ríkisstarfsmenn fara eftir við val á vörutegundum í Vínbúðirnar. Þannig sér ríkið til þess að stórir framleiðendur á markaði…Lesa meira