Fréttir

true

Myndband frá Akranesi

Faxaflóahafnir hafa birt fallegt myndband frá Akranesi á Youtube. Upptakan var gerð í tengslum við komu franska skemmtiferðaskipsins Le Bellot sem mætti í höfnina á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Le Bellot er lúxusskip sem tekur 184 farþega og í áhöfn eru 110 manns. Um borð eru 92 svítur og allar með svölum og meðal vistarvera er…Lesa meira

true

Veðurstofan opnar síðu um horfurnar

Senn líður að almyrkvadeginum, miðvikudeginum 12. ágúst. Nokkur óvissa ríkir um hversu margir muni leggja leið sína um Vesturlandið vegna hans, en ljóst er að það verður umtalsverður fjöldi svo gera má ráð fyrir umferðartöfum. Eins er ekki víst hvernig veðrið muni leika landsmenn og erlenda ferðalanga. Veðurstofa Íslands hefur opnað sérstakt spásvæði og yfirlitssíðu…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíð – aðaldagskrá í dag

Í dag er hápunktur Hvanneyrarhátíðarinnar og þar er að finna fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem sveitasæla, landbúnaðarsaga og tónlist tvinnast saman, segir í tilkynningu frá forsvarsfólki hátíðarinnar. Hátíðin hófst í gær með frisbígolfmóti, tvísöng í Hvanneyrarkirkju og öflugum ungmennatónleikum. En í dag er sem sagt aðaldagur hennar og verður hún formlega…Lesa meira

true

Gleðiganga Hinsegin daga í dag

Gleðiganga Hinsegin daga fer fram í Reykjavík í dag og má sjá frekari upplýsingar og dagskrá hátíðarinnar á vefsíðunni hinsegindagar.is. Fyrsta Gleðigangan í Reykjavík fór fram árið 2000 og upp frá því hafa Hinsegin dagar vaxið og dafnað með ótrúlegum hraða. Hinsegin dagar í Reykjavík eru dagana 4.-9. ágúst í ár og hófust með setningarhátíð…Lesa meira

true

Skagamær leiðir Íslandsmótið í golfi eftir glæsilegan fyrsta hring

Skagamærin Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi hefur komið sér í kjörstöðu á Íslandsmótinu í golfi eftir frábæran fyrsta keppnishring. Elsa lék á fjórum höggum undir pari, setti jafnframt vallarmet og er með þriggja högga forskot á ríkjandi Íslandsmeistara, Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Elsa, sem er 21 árs, er nýkomin heim eftir háskólanám og…Lesa meira

true

Ný bílaþvottastöð Löðurs opnaði í dag í Borgarnesi

Ný snertilaus bílaþvottastöð Löðurs við Brúartorg 6 í Borgarnesi hefur nú opnað fyrir viðskiptavini. Unnið hefur verið að framkvæmdinni í rúmt ár en samkvæmt upplýsingum frá Alfreð Ari Chiarolanzio, rekstrarstjóra Löðurs, hefur verkefnið tekið lengri tíma en upphaflega var áætlað, meðal annars vegna uppsetningar nýrrar spennistöðvar og rafmagnstenginga. Löður býður upp á umhverfisvænni bílaþvott og…Lesa meira

true

BREK heldur tónleika í Dalíu annað kvöld

Hljómsveitin BREK heldur tónleika í Dalíu í Búðardal á morgun, 8. ágúst og hefjast þeir klukkan 21. Þar mun sveitin flytja lög af væntanlegri plötu, sem kemur út í haust, ásamt efni af fyrstu plötu sinni og léttum ábreiðum. BREK hefur getið sér gott orð á undanförnum árum og meðal annars verið tilnefnd til Íslensku…Lesa meira

true

Hvanneyrarhátíðin hefst í dag

Dagana 7.–8. ágúst er Hvanneyrarhátíðin haldin og þar er að finna fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna þar sem sveitasæla, landbúnaðarsaga og tónlist tvinnast saman, segir í tilkynningu frá forsvarsfólki hátíðarinnar. Hátíðin hefst föstudaginn 7. ágúst með frisbígolfmóti, tvísöng í Hvanneyrarkirkju og öflugum ungmennatónleikum, en laugardagurinn er aðaldagur hennar og verður hún formlega sett…Lesa meira

true

Seinkun á opnun nýrrar rennibrautar í sundlauginni í Borgarnesi

Margir bíða spenntir eftir opnun Stefnt er að því að nýjar rennibrautir við sundlaugina í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi verði teknar í notkun síðar í þessum mánuði. Brautirnar hafa verið lokaðar frá miðjum maí á meðan unnið hefur verið að endurnýjun þeirra, en framkvæmdir hafa tafist bæði vegna anna hjá verktaka og tafa sem komu upp…Lesa meira

true

Öruggur sigur ÍA á Sauðárkróki

ÍA sótti þrjú dýrmæt stig norður á Sauðárkrók þegar liðið lagði Tindastól 4:2 í 13. umferð Lengjudeildar kvenna í gærkveldi. Með sigrinum færist ÍA upp í fjórða sæti deildarinnar með 18 stig. Skagakonur náðu góðum tökum á leiknum í fyrri hálfleik. Alexa Maletis kom ÍA í 2:0 með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla um…Lesa meira