Fréttir

true

Ingólfur og Skaginn 3X hljóta viðskiptaverðlaun

Ingólfur Árnason forstjóri Skagans 3X tók í gær við viðskiptaverðlaunum Viðskiptablaðsins. Það var Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sem afhenti Ingólfi verðlaunin. Í rökstuðningi Viðskiptablaðsins segir m.a.: „Hátæknifyrirtækið Skaginn 3X er að umbylta matvælaiðnaði, sérstaklega í sjávarútvegi, með nýjum og framsæknum lausnum. Fyrirtækið sérhæfir sig í kæli- og vinnslutækni og framleiðir í dag íslaus kælikerfi, alsjálfvirk lestarkerfi…Lesa meira

true

Fyrsti golfarinn til að verða Íþróttamaður ársins

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, var í gærkvöldi útnefnd Íþróttamaður ársins 2017. Sem fyrr voru það Samtök íþróttafréttamanna sem stóðu fyrir kjörinu sem lýst var í Hörpu. Ólafía hlaut 422 stig af alls 520 stigum mögulegum. Knattspyrnumennirnir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson voru í næstu sætum á eftir. Valdís Þóra Jónsdóttir…Lesa meira

true

Ábendingar til að draga úr ofsahræðslu dýra vegna flugelda

Áramótin nálgast óðfluga og vill Matvælastofnun minna dýraeigendur á að huga vel að dýrum sínum á meðan á flugeldaskotum stendur. Slíkar sprengingar kunna að valda dýrunum ofsahræðslu og geta þau valdið slysum á sjálfum sér og öðrum við slíkar aðstæður. Hægt er að fyrirbyggja slys með því að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana fyrir gamlárskvöld og…Lesa meira

true

Grundfirðingar vilja lengri opnunartíma

Þegar Kjörbúðin var opnuð í Grundarfirði í haust þá var um leið styttur opnunartími verslunarinnar frá því sem var í Samkaupsversluninni. Nú er búðinni lokað klukkan 19:00 í staðinn fyrir klukkan 20:00 áður. Nokkrir heimamenn eru ósáttir við þetta og hrundu af stað undirskriftasöfnun til að mótmæla skertum opnunartíma. Bæði er þetta skerðing á þjónustu…Lesa meira

true

Fuglavernd harmar niðurskurð á fé til náttúrustofa

Stjórn Fuglaverndar harmar niðurskurð á fé til náttúrustofa. Stjórnin skorar á fjárlaganefnd, að auka framlag til stofanna. „Á náttúrustofunum eru unnar þýðingarmiklar grunnrannsóknir á lífríki Íslands. Í því sambandi vill stjórn Fuglaverndar benda á mikilvægt hlutverk stofanna við vöktun stofna bjargfugla og lunda. Stofnar nær allra sjófugla sem verpa á Íslandi hafa átt undir högg…Lesa meira

true

Ástríður ráðin leikskólastjóri Andabæjar

Ástríður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Andabæjar á Hvanneyri. Frá ráðningunni var greint á vef Borgarbyggðar skömmu fyrir jól. Tveir umsækjendur voru um stöðuna. Ástríður er leikskólakennari að mennt. Hún er Hvanneyringur að uppruna og hefur um áratugaskeið starfað sem deildarstjóri við Andabæ, leyst af sem aðstoðarleikskólastjóri og leikskólastjóri. „Hún hefur verið farsæl í starfi…Lesa meira

true

Flugeldasalan hefur allt að segja fyrir rekstur björgunarsveitanna

Björgunarsveitir víðsvegar um landið byggja að stórum hluta afkomu sína og rekstur á afrakstri flugeldasölu fyrir áramótin. Þannig afla sveitirnar allt að 95% rekstrartekna sinna með þeim hætti. Í dag og fram á gamlársdag verður opið hjá þeim flestum, en þó eru mismunandi opnunartímar eftir sveitarfélögum. Flugeldasala Björgunarsveitanna Brákar í Borgarnesi og Heiðars í Borgarfirði…Lesa meira

true

Komið til aðstoðar vélarvana báti

Laust fyrir klukkan 8 í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð frá fiskibátnum Kára SH-78. Hann var þá vélarvana um tvær sjómílur vestan við höfnina á Rifi, tæpa hálfa sjómílu frá landi. Tveir voru um borð í bátnum. Aðeins mínútu eftir að beiðni um aðstoð barst hafði Sverrir SH-126 samband við stjórnstöð Gæslunnar. Hann…Lesa meira

true

Ásatrúarfólk blótar níu nætur á laugardaginn kl. 18

Ásatrúarfólki hefur fjölgað mjög á Akranesi og nágrenni á síðustu árum, að sögn Jóhönnu Harðardóttur Kjalnesingagoða sem býr í Hlésey skammt innan við minni Hvalfjarðar. „Á Skaganum er nú margt fullorðið, heiðið fólk og auk þess margar ungar fjölskyldur með börn og unglinga. Nú mun ég halda hátíðablót að Görðum daginn fyrir gamlársdag, á laugardaginn…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi

Fimmtudaginn 21. desember voru 62 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Dröfn Viðarsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál haustannar 2017; Elvar Már Sturlaugsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Óli Örn Atlason fyrrverandi nemandi skólans flutti ávarp. Hilmar Örn Jónsson hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2017. Þá ávarpaði Ágústa Elín…Lesa meira