Fréttir

true

Sjóminjasafninu afhentur styrkur

Skömmu fyrir áramót veitti Menningarsjóðurinn Fegurri byggðir, Sjóminjasafninu í Sjómannagarðinum á Hellissandi viðurkenningu og styrk að upphæð 200.000 krónur. Stjórn Sjóminjasafnsins með Þóru Olsen í fararbroddi hefur unnið mikið starf í uppbyggingu á húsnæði safnsins ásamt því að settar hafa verið upp metnaðarfullar sýningar. Markmið menningarsjóðsins er að veita viðurkenningar og styrki til framfara- og…Lesa meira

true

Matarlind í Borgarnesi

Starfsleyfi hefur verið veitt fyrir matarsmiðju, sem fengið hefur nafnið Matarlind, í Sólbakka í Borgarnesi. Um er að ræða matarsmiðju sem hugsuð er fyrir fólk sem vill framleiða eigin matvæli til að selja en hefur ekki viðurkennt eldhús undir framleiðsluna. Eru það Ljómalind og SSV sem standa að verkefninu. Matarlindin er vel tækjum búin en…Lesa meira

true

Fyrsta barn ársins fæddist á nýársdag

Fyrsta barn ársins á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi kom í heiminn að kvöldi nýársdags klukkan 22:16. Var það myndar stúlka sem vó 3.822 grömm og er 52 sentímetrar að lengd. Stúlkan er búsett í Reykjavík en foreldrar hennar eru þau Karlotta Maria Scholl úr Borgarnesi og Morgan Walford sem kemur frá Ameríku. Stúlkan er fyrsta…Lesa meira

true

Söfnuðu 90 milljónum fyrir Kvennaathvarfið

Átakið Á allra vörum afhenti skömmu fyrir áramót Kvennaathvarfinu söfnunarfé sem safnaðist í haust. Um 78 milljónir króna söfnuðust í landssöfnuninni Á allra vörum með frjálsum framlögum og sölu á varasettum. Auk fjármunanna skilaði söfnunin gjöfum og öðrum framlögum að andvirði 12 milljónum króna. Í ár var kastljósinu beint að málefni tengdu Kvennaathvarfinu og safnað…Lesa meira

true

2017 – Gleðilegt nýtt ár – 2018

Starfsfólk Skessuhorns sendir lesendum sínum til sjávar og sveita bestu þakkir fyrir árið 2017. Megi árið 2018 verða landsmönnum öllum gjöfult og gæfuríkt. Skessuhorn hlakkar til samskipta við íbúa á Vesturlandi á afmælisári. Hvetjum jafnframt alla til aðgæslu við meðferð skotelda og að mönnum sem málleysingjum verði sýnd tillitsemi þegar árið verður sprengt út og…Lesa meira

true

Uppfærð frétt – leit hætt á Hvalfirði

Um hádegisbil í dag barst björgunarsveitum á Akranesi, Kjalarnesi og Reykjavík útkallsbeiðni vegna báts sem virðist í vanda staddur innarlega í Hvalfirði. Vegfarandi  sem þar var á ferð taldi sig merkja neyðarkall sem gefið var með ljósmerki úr bátnum. Félagar í Björgunarfélagi Akraness eru nú á leið á staðinn bæði á sjó og landi, en…Lesa meira

true

Faxabraut lokuð fyrir gangandi og akandi umferð

Lögreglan á Vesturlandi hefur nú lokað fyrir alla umferð um Faxabraut á Akranesi. Ástæðan er sú að í dag mistókst að sprengja og fella fjögur efnissíló á lóð Sementsverksmiðjunnar og er því mikil hrunhætta á svæðinu, enda hallast sílóin mikið og bygging ofan á þeim. Falli sílóin getur brak úr þeim hæglega þeyst út á…Lesa meira

true

Tilraun til að fella efnissíló mistókst

Í dag var gerð tilraun til að fella fjögur samliggjandi efnissíló á lóð Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Sprengiefni var komið fyrir og umferð lokað um Faxabraut af öryggisástæðum. Meðfylgjandi myndband var tekið upp þegar sprengt var. Sýnir það heljar mikinn sprengihvell og hvernig sílóin byrjuðu að falla í suðaustur í átt að Faxabraut, en stöðvuðust þá;…Lesa meira

true

Tólf brennuleyfi gefin út á Vesturlandi

Sýslumaðurinn á Vesturlandi hefur úthlutað tólf leyfum til brennuhalds um áramót og fram að þrettándanum í alls átta sveitarfélögum. Meðfylgjandi upplýsingar má finna á vef sýslumannsembættanna:   Akranes: Innesvegur sunnan Víðigrundar 31.12. 2017 kl. 20:30. Leyfishafi: Steinar Dagur Adolfsson. Borgarbyggð: Á barði norðvestur af félagsheimilimu Þinghamri, Varmalandi 2.1. 2018 kl. 20:00. Í umsjón Ungmennafélags Stafholtstungna…Lesa meira

true

Sendir reikning fyrir jörð sinni ef skotæfingasvæði verður samþykkt

„Þið hafið fengið fjöldamörg skrifleg mótmæli. Þeim var ekki svarað. Í síðasta bréfi var sveitarstjórn sent ástæða þess að þið eruð bótaskyld,“ skrifaði Trausti Eiríksson eigandi Lækjarkots ofan við Borgarnes í opnu bréfi til sveitarstjórnar Borgarbyggðar 22. desember sl. Með bréfi Trausta fylgir jafnframt reikningur fyrir Lækjarkoti, sem hann kveðst ætla að láta reyna á…Lesa meira