Fréttir

true

Valdís Þóra tilnefnd sem Íþróttamaður ársins

Samtök íþróttafréttamanna gangast í 62. sinn fyrir vali á Íþróttamanni ársins. Verður greint frá því hver hreppir nafnbótina við hátíðlega athöfn í Hörpu í kvöld, 28. desember. Kunngjört hefur verið hvaða tíu íþróttamenn hlutu flest atkvæði í kjörinu og skipa fimm karlar og fimm konur tíu efstu sætin. Þar á meðal er Skagakonan Valdís Þóra…Lesa meira

true

Búast við afgangi af rekstri Reykhólahrepps

Fjárhagsáætlun Reykhólahrepps var lögð fram til síðari umræðu á fundi sveitarstjórnar 14. desember síðastliðinn. Skemmst er frá því að segja að gert er ráð fyrir 16 milljóna króna rekstrarafgangi af samstæðu A og B hluta árið 2018. Tekjur sveitarfélagsins á árinu eru áætlaðar 558 milljónir kóna, þar af 127 milljóna útsvarstekjum og 176 milljónir frá…Lesa meira

true

Klakabönd við Ólafsvíkurhöfn

Veður var fremur kalt á Snæfellsnesi yfir jólahátíðina, frost samhliða norðanátt. Við þessar aðstæður geta myndast falleg klakabönd eins og við einn af löndunarkrönunum á bryggjunni í Ólafsvík. Alfons Finnsson tók þessa mynd af syni sínum á annan dag jóla.Lesa meira

true

Útkall í Gilsfjörð á jóladag

Erlendir ferðamenn á bílaleigubíl lentu í ógöngum í Gilsfirðinum á jóladag. Hugðust þeir aka Steinadalsheiðina áleiðis á Ísafjörð. Ferðamennirnir höfðu fylgt GPS tæki bifreiðarinnar sem vísaði þeim stystu leið en talsvert er um útköll þar sem fólk treystir á tæknina án þess að meta aðstæður og heldur á lokaða vegi. Starfsmaður bílaleigunnar óskaði eftir aðstoð…Lesa meira

true

Mannbjörg þegar farþegabátur steytti á skeri

Farþegabátur steytti á skeri við Skoreyjar, um þrjá kílómetra utan við Stykkishólm, á þriðja tímanum í dag. Um borð var skipstjóri og sjö manna bresk fjölskylda. Einn farþeganna fékk höfuðhögg og skurð við óhappið. Þrjár björgunarsveitir af Snæfellsnesi voru kallaðar út vegna slyssins sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. Rétt fyrir klukkan þrjú var öllum skipverjum bjargað…Lesa meira

true

Sautján í kjöri til íþróttamanns Akraness 2017

Sautján íþróttamenn eru að þessu sinni tilnefndir í kjöri Íþróttamanns Akraness 2017.  Fær verðlaunahafi Friðþjófsbikarnum afhentan við hátíðalega athöfn á þrettándanum. Bikarinn er gefinn til minningar um Friðþjóf Daníelsson af móður hans og systkinum. Valið fer fram með þeim hætti að níu manna nefnd greiðir atkvæði í kjörinu en auk þeirra er eitt atkvæði í…Lesa meira

true

Skrifað undir samning um byggingu fiskvinnsluhúss

Fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði og verktakafyrirtækið Ístak skrifuðu undir samning föstudaginn 22. desember sl. um byggingu á nýju fiskvinnsluhúsi fyrirtækisins. Hafist verður handa við byggingu hússins fljótlega eftir áramótin. Skrifað var undir samning um bygginguna við ilmandi skötulykt í matsal fyrirtækisins. Þegar menn höfðu lokið sér af með vel kæsta skötuna var skrifað…Lesa meira

true

Alvarlegt slys á Suðurlandi

Alvarlegt rútuslys varð um sex kílómetra vestan við Kirkjubæjarklaustur um ellefuleytið í morgun. Rúta með á fjórða tug farþega lenti utan vegar og valt. Nokkrir eru alvarlega slasaðir, margir með minniháttar áverka. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er einn látinn. Farþegarnir eru erlendir ferðamenn. Í tilkynningu frá Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð segir að aðgerðarstjórn á Suðurlandi hafi…Lesa meira

true

Stærsti samningur Skagans 3X frá upphafi

Forsvarsmenn Skagans 3X undirrituðu skömmu fyrir jól stærsta samning sinnar tegundar sem íslenskt tæknifyrirtæki hefur gert. Þar er færeyska útgerðarfélagið Varðin Pelagic sem kaupir vinnslubúnað fyrir nýja uppsjávarvinnslu í Suðurey í Færeyjum. Virði samningsins er um fimm milljarðar íslenskra króna. Nýja vinnslan mun hafa afkastagetu fyrir allt að 1.300 tonn af pakkaðri vöru á sólarhring.…Lesa meira

true

Góð færð og aðstæður á vegum á Vesturlandi

Í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun segir að mikið til sé autt á láglendi og með sjónum á Vesturlandi, en meiri hálka til landsins. Það er hálka og skafrenningur á Hellisheiði en hálkublettir og jafnvel hálka er víða á Suður- og Suðvesturlandi, þó er á einstaka stað þæfingsfærð á útvegum. Mokstur er langt kominn á…Lesa meira